Freyr - 01.01.1983, Qupperneq 30
Gistihýsi við bændabýli
Magnús A. Ólafsson arkitekt er einn þeirra manna, sem hefur sýnt
ferðamannaþjónustu í sveitum áhuga og kynnti hann nokkrar hugmyndir sínar
um hana á aðalfundi ferðaþjónustubænda í Mývatnssveit í október sl.
Sýndi Magnús þá fundar-
mönnuin teikningar sínar, sem hér
fyigja-
I viðtali er fréttamaður Freys
átti við Magnús um þetta málefni,
sagði hann m. a.:
— Við skulum hugsa okkur hjón
með tvö börn, sem hafa hug á
að fara í ferðalag að sumarlagi
um byggðir hér á landi. Hjónin
eru úr þéttbýli og vinna bæði
úti og vilja því njóta bæði hvíld-
ar og útiveru þennan frítíma.
Hvaða möguleika hafa þau á
að njóta ferðalagsins og hvaða
ferðamáti stendur þeim til
boða? Einkabíllinn gefur mesta
möguleika á yfirferð og
frjálsræði, en hvað um dvalar-
staði og gistingu? Fjöldi hótela
starfa yfir sumartímann vítt og
breitt um landið en þau eru
ekki beint til þess fallin að nota
þau ef fólk hyggur á útivist og
frjálsræði, því að gista á hóteli
er eins og flytja úr einu þéttbýl-
inu í annað.
— Hin hefðbundna aðferð í dag er
að liggja úti í tjaldi. Ef farið er
með tjald, svefnpoka, dýnur,
eldunartæki, mat og allt það
sem slíku ferðalagi fylgir, fer
mikill tími og vinna ( en það er
nú það sem hjónin okkar helst
vilja sleppa við) í að koma sér
fyrir og af stað aftur.
— Mikið yrði það hentugt ef hægt
væri að ferðast um landið og
gista í hýsum, sem eru ef til vill
ekki mikið stærri en tjald. Þessi
hýsi gætu verið þannig útbúin
að húsgögnin gætu breyst í
svefnbálka með einu handtaki.
Á þennan hátt gætu hjónin
skilið allt eftir heima nema
börnin, svefnpokana og
matinn.
Magnús hefur, sem fyrr sagði,
hannað þessi hús, en Trésmiðjan
AKUR hf. á Akranesi framleiðir
þau. Hugmyndin er að bændur
geti sett niður eitt eða nokkur hýsi
í túnjaðrinum og haft af því nokkr-
ar tekjur. Húsin eru mjög einföld
að gerð og eru af tveint stærðum
NÆTURHÍÐI 15 m2 án snyrting-
Magnús A. Ólafsson.
ar og HELGARHRÍÐ 20 m2 með
snyrtingu. Hægt verður að fá hýs-
in afhent á nokkrum framleiðslu-
stigum en sennilega væri hentug-
ast að fá þau afhent fullbúin á
vörubílspalli að túnjaðrinum.
Magnús telur að tilkoma slíkra
22 — FREYR