Freyr - 01.01.1983, Blaðsíða 37
Glóbusarmenn, þeir Sveinn Sveinsson og Magnús Ingþórsson hagrceða Fella Th 520-heyþyrlu í nýjum sýningarskáki fyrirlœkisins.
Baka til er Santini-heyhleðsluvagn. (Ljósm. J.J.D.)
Glóbus hf. 35 ára
Glóbus hf. hefur um árabil verið einn stœrsti búvélainnflytjandi hér á landi. Forstjóri
þess, Árni Gestsson, hefur byggt upp fyrirtækið af mikilli atorku á undanförnum
áratugum. Við það hefur hann notið aðstoðar góðra samstarfsmanna.
Fyrirtækið varð 35 ára á sl. ári og
varð það merkisár í sögu þess.
„Við notuðum tækifærið og um-
byltum ýmsu í tilefni af afmæl-
inu“, sagði Árni Gestsson. for-
stjóri, í viðtali við Frey. Til dæmis
um það má nefna, að opnuð var
ný þjónustumiðstöð, samtals 2000
nv, í öðru lagi flutti heildsölu-
deildin aðsetur sitt í miklu rýmra
og betra húsnæði í húsi félagsins, í
þriðja lagi var opnaður nýr,
fullkominn sýningarsalur fyrir bíla
og búvélar á fyrstu hæð hússins og
í fjórða lagi verður lokið við tölvu-
væðingu fyrirtækisins á þessu ári.
Glóbus haslaði sér frá upphafi
völl í innflutningi á búvélum. Hafa
forráðamenn þess verið glöggir á
tækninýjungar í landbúnaði og
duglegir við að afla sér umboða
fyrir góðum og gagnlegum tækj-
um. Má þar til dæmis nefna Gný-
blásarana og Kvemelands heykvísl-
arnar, sem urðu ákaflega algeng
tæki og hafa reynst vel. Þá flutti
fyrirtækið fyrst allra inn nýja gerð
af rakstrarvélum, þ. e. hjólrakstr-
arvélar, frá Vicon-verksmiðjunni í
Hollandi. Tæki frá þessari verk-
smiðju urðu fljótlega mjög algeng
í sveitum landsins. Glóbus lét
reyna fyrstu heyþyrlurnar hjá Bú-
tæknideildinni á Hvanneyri. Það
er og föst regla fyrirtækisins að
hefja ekki innflutning á nýjum
gerðum landbúnaðartækja fyrr en
að lokinni gagngerðri prófun.
Heyþyrlurnar urðu skjótt eitt al-
gengasta heyskapartækið á bæj-
um. Með tilkomu sjálfhleðslu-
vagna og heybindivéla hefur orðið
bylting í heyhirðingu, en þau tæki
eru meðal þess sem Glóbus flytur
inn.
íslensk-tékkneska verslunarfé-
lagið hf. (ístékk) er dótturfyrir-
tæki Glóbusar, stofnað árið 1969.
Hefur það flutt inn tékkneskar
vörur, einkum Zetordráttarvélar,
og má segja að önnur hver drátt-
arvél, sem seld hefur verið hér á
landi síðustu þrjú ár hafi verið af
þeirri tegund.
FREYR — 29