Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.1983, Side 10

Freyr - 01.09.1983, Side 10
búfjárstofna hefur komið fram, að þrenn sjónarmið ráði mestu um tilganginn með verndun: 1. Hagnýtt og hagfræðilegt sjón- armið, sem leyfir virkt kyn- bótastarf sem getur mætt breyttum kröfum um afurðir eða breyttu umhverfi og að- búnaði. 2. Vísindalegt og fræðilegt sjón- armið, þar sem aðaláhugaefnið er að halda við sem mestum erfðabreytileika til að nota hann við líffræðilegar rann- sóknir. Veigamikill þáttur í slíkum rannsóknum gæti oirðið mæling á erfðaframförum í hin- um kynbættu stofnum. 3. Menningarsöguleg sjónarmið, þar sem Iögð er almenn áhersla á að varðveita menningarsögu- legt umhverfi. Búféð er snar þáttur í menningu þjóðanna, og hún verður ekki varðveitt handa komandi kynslóðum nema búféð og umhverfi þess sé varðveitt líka. Þetta vernd- unarsjónarmið tengist líka rannsóknum og kennslu í menningarsögu. Útrýmingarhætta. Talið er að mjög alvarlega horfi um verndun erfðaefnis í búfé víða um heim. I yfirlitserrindinu sem Kalle Maijala, prófessor í Finnlandi og Nils Kolstad, prófessor í Noregi héldu á fundi norrænnar búfjár- genbankanefndar í Reykjavík sumarið 1982 nefndu þeir meðal annars eftirfarandi dæmi um tap- aðan erfðaefnivið eða alvarlega fækkun kynja. Finnska kúakynið, bæði norð- ur-, austur- og vesturfinnskt, er á hröðu undanhaldi. Finnska sauðféð hefur dreifst út um allan heim til blöndunar við önnur fjárkyn, en fækkaði heima fyrir úr 1200 000 kindum árið 1950 í 100 000 kindur árið 1970. Finnska hænan er því nær horfin og sömu sögu er að segja um finnsku geitina. Veruleg hætta er á, að finnski dráttarhesturinn glatist. í Svíþjóð hefur kúm af sænska kollótta kyninu fækkað alvarlega. í Noregi voru um 30 kúakyn um 1930, en eru nú 2—3, og í Vestur- Þýskalandi glötuðust 5 af 8 svína- kynjum frá 1952—1970. Samkvæmt úttekt á verndunar- þörf búfjárkynja í Evrópu, sem gerð var fyrri hluta árs 1982 var fjöldi kynja í útrýmingarhættu sem hér segir: Hænsnastofnum hefur stór- fækkað, eftir að blendingsrækt í hænsnum ruddi sér til rúms. Oft byggist val á milli búfjár- kynja á takmarkaðri þekkingu eða einhliða upplýsingum. Þekkt gagn af gömlum kynjum. Nokkur dæmi eru um það, að búfjárkyn, sem voru lítt þekkt, hafi náð vinsældum og notkun þeirra stóraukist vegna breyttra skilyrða. Meðal slíkra kynja eru: Charolais nautgripir til kjöt- framleiðslu. Finnskt sauðfé vegna hárrar frjósemi. Gotlandsfé vegna feldgæða. Piétrain svín vegna vöðva- söfnunar. Kínversk svín vegna frjósemi. Cornish hænur vegna holdsemi. Þá eru nokkur dæmi til um einstaka erfðavísa, sem hafa varð- veist og eru að koma að gagni í nútíma kynbótum. Þar á meðal eru eftirtaldir erfðavísar: Erfðavísir fyrir hárri frjósemi í Booroola fé. Erfðavísar sem tengjast vatns- vöðva í svínum (Halotanprófun). Kynbundnir erfðavísar í hænsn- um til kyngreiningar. Erfðavísar fyrir dvergvexti í holdakjúklingum. Auk þessa hefur komið fram við rannsóknir á gömlu norsku landhænunni, að enda þótt hún skili mun minni afurðum heldur en kynbættir stofnar af varphæn- um, hefur hún reynst mjög vel til blendingsræktar. Einnig hefur komið í ljós, að í norsku hænunni virðast skurngæði eggjanna mun meiri heldur en í ræktuðum stofn- um, og sá munur virðist stafa af erfðum (Kolstad, 1982). Aðferðir við verndun búfjárstofna. Þrjár aðferðir eru tiltækar til að vernda búfjárstofna, þ. e.: 1. Viðhald og ræktun lifandi stofna. 2. Geymsla á djúpfrystu sæði. 3. Geymsla á djúpfrystum fóst- urvísum (embryoer). Viðhald lifandi stofna getur orðið mjög dýrt, ef um er að ræða stofna, sem liggja langt að baki öðrum í afurðasemi og eru e. t. v. mikið skyldleikaræktaðir. Sumsstaðar hefur verið brugðið á það ráð að geyma lifandi búfjár- stofna í eins konar lifandi dýra- söfnun, þar sem þeir eru til sýnis gegn aðgangseyri. Slíkum söfnum hefur verið komið á fót í Finnlandi og Ungverjalandi og að hluta til í Bretlandi. Aðsókn að finnska búfjárdýrasafninu hefur verið mjög góð. Þangað komu 30 000 manns árið 1981 og 50 000 manns árið 1982. Geymsla á djúpfrystu sæði er ódýrasta aðferðin til varðveislu á Fjöldi Fjöldi skráöra kynja í % af öllum Búfjártegund kynja hættu kynjum Nautgripir ............................... 172 74 43 Hross .................................... 139 28 20 Svín........................................ 61 26 43 Sauðfé ................................... 259 60 23 Geitur...................................... 76 9 12 Samtals.............................. 707 197 28 658 — FREYR

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.