Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1983, Blaðsíða 16

Freyr - 01.09.1983, Blaðsíða 16
Kal í túni í Skagajirði í júní 1981 Ljósm. Bjarni Guðleijsson. bessaleyfi til að miðla upplýsing- um um þetta (óstaðfestum) þá vil ég geta þess, að í viðtali blaðsins Þjóðólfs á Selfossi við Eggert á Þorvaldseyri, þann merkisbónda, segir hann að kornrækt sín sé óhugsandi nema með því móti að kalka akrana með skeljakalki öðru hvoru. Getur ekki það sama gilt um túnin okkar? Til þess að koma í veg fyrir mistúlkun orða minna vil ég taka það fram, nú eins og áður, að ég tel ekki að kalksandur einn saman leysi allan vanda eða komi í veg fyrir kal þótt hann sé borinn á tún eða í flög. Þar kemur fleira til við breytilegar aðstæður, svo sem jarðvatn, fræval og fleira, sem ég hefi of takmarkaða þekkingu á. Þar þurfa að koma til rannsóknir og virk leiðbeiningaþjónusta. En ég er handviss um það, að mjög víða dregur sandurinn úr kalhættu og kemur í veg fyrir hana, einkum í rökum mómýrum og annars stað- ar þar sem jarðvegur er svo súr, að allur gróður á þar erfiða lífsaf- komu vegna þess að ekki hefur verið séð fyrir nægu kalki í þeim áburðarblöndum, sem notaðar eru. í þessum hugleiðingum hefi ég, eins og þeir Öttar og Eggert á Þorvaldseyri, sneitt hjá að ræða um áburðarkalkið frá Áburðar- verksmiðjunni. Ég held að það henti ekki í þessum tilgangi, en mér finnst tilfinnanlega vanta greinargóðar upplýsingar leiðbeiningamanna um notkun þess. Ég óttast að í höndum margra geti notkun þess orðið of fálmkennd og jafnvel valdið skaða vegna hins mikla köfnunarefnis- innihalds þess. Ég hefi enn lagt í að hreyfa þessu máli þrátt fyrir litla þekk- ingu mína, því að mér óar við að sjá fyrir augum mér það gróður- leysi, sem við blasir næstum hvar sem farið er og óþolandi er við að búa. Með þessum orðum mínum vildi ég vekja umræðu um þetta stóra vandamál og hvetja til um- hugsunar og úrbóta. Umræða um það þarf að vera önnur og meiri en smá fréttaklausur í dagblöðum og öðrum fjölmiðlum. Leiðbeiningaþjónustan þarf að taka betur við sér með raunhæfum aðgerðum og umræðu og freista þess betur en gert hefur verið og koma af stað raunhæfum úrbótum. Molar______________ Athugasemd. Vegna fyrirspurna skal það upp- lýst að forsíðumynd af ullarþvotti á Hosósi á 13. tölublaði var tekin árið 1966. Einkunnir hrúta á sæðingarstöðvunum. Frh. af bls. 677. hefðu einkunnir dætra átt að fara hækkandi en ekki lækkandi. Þetta getur einnig verið bendning um að stöðvarhrúta þurfi að velja enn strangar sem ærfeður en gert hef- ur verið nú um tíma. Athuga ber að einkunnir hrúta, sem fá nú sinn fyrsta dóm fyrir dætur eftir sæðingar, byggja ein- göngu á upplýsingum um vetur- gamlar ær. Reynslan virðist að vísu sýna að einkunnir byggðar á gemlingsári virðast segja mikið um síðari reynslu dætranna. Samt ber að hafa hugfast að þar eru eiginleikar dæmdir á nokkuð ann- an hátt og því hljóta að koma upp tilvik þar sem fram koma frávik á þessum dómum. Á það skal bent að nú er komin allnokkur reynsla á Þistilfjarðar- hrútana frá 1978 sem ærfeður. Því miður þá virðist enginn þessara hrúta ætla að reynast mjög góður ærfaðir og sumir þeirra í slöku meðallagi. Þetta sýnir að ætternis- dómur einn fyrir hrúta sem fá eins mikla notkun og stöðvarhrútarnir er verulegur ótraustur dómur. 664 — FREYR

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.