Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1983, Blaðsíða 35

Freyr - 01.09.1983, Blaðsíða 35
vegar um land, bæði í viðtölum og tímamælingum, auk annarra aðila. Árstíðabundnar breytingar á seleni í blóði sauðfjár. Tilraun á Hvarmeyri 1980. Höf- undar: Guðný Eiríksdóttir, Baldur Símonarson, Porsteinn Porsteins- son, Bjarni Guðmundsson, Jón Viðar Jónmundsson. Tilraunin var gerð til að kanna selen í ám um meðgöngutímann og til að athuga hugsanlegan mun á seleni í ám eftir því hvort þær eru fóðraðar á þurrheyi eða votheyi. Þegar selen vatnar í fóður veikist búfé af svo nefndri hvítvöðva- veiki, einkum ungviði. Selen- skortur getur líka valdið vanþrif- um í lömbum, fóstrum, hildunt í kúm og ófrjósemi í ám. Niðurstöður tilraunarinnar sýndu lítinn ntun á seleni í þurr- heyi og votheyi. í greinaryfirliti segir m. a.: „Selen í heysýnum var alltaf minna en 80 ng/g nema í þurrhey- inu í apríl. Með fóðurbætisgjöf mátti bæta selenfóðrunina, en gjöf um fengitímann hafði engin áhrif til að auka GPx-virkni í blóði ánna um meðgöngutímann." Meðgöngutími íslenskra kúa. Höfundar: Gunnar Ríkharðsson og Jón Viðar Jónmundsson. í yfirliti um rannsókn á með- göngutíma íslenskra kúa segir: „Raktar eru niðurstöður rann- sóknar á meðgöngutíma íslenskra mjólkurkúa. Meðaltal 4223 með- göngutíma reyndist 286,5 dagar og meðalfrávik 4,86 dagar. Kýr, sem báru í febrúar, gengu lengur með kálf en aðrar kýr. Fyrsta kálfs kvígur gengu rúm- um tveimur dögum skemur með kálf en fullorðnar kýr. Kýrnar reyndust ganga réttum degi lengur með nautkálf en kvígukálf. Tví- kelfingar hafa 4—5 dögum skemmri meðgöngu en eitt fóstur. Arfgengi notað sem eiginleiki mæðra var 0.13 ± 0.04, en sem eiginleiki fósturs 0.27 ± 0.05.“ Tengsl beinna áhrifa og móðuráhrifa á haustþunga lamba Höfundur: Jón Viðar Jón- mundsson. I inngangi segir m. a.: „Við kynbætur sauðfjár er reynt að bæta fjölda eiginleika í stofnin- um samtímis. í íslenskri sauðfjár- rækt eru mikilvægustu eiginleikar án efa frjósemi, vænleiki lamba og gæðaeiginleikar (kjöt, ull, gærur). Eiginleiki eins og haustþungi lamba ræðst bæði af umhverfis- og erfðaþáttum. Pessi eiginleiki ræðst bæði af eðli lambsins sjálfs til vaxtar, — því sem hér eru kölluð bein áhrif, — og eigin- leikum móðurinnar til að sjá lambinu fyrir næringu, sem hér er nefnt móðureiginleikar. Að sjálf- sögðu er hugsanlegt, að þessir tveir þættir erfist ekki óháðir, heldur séu einhver erfðatengsl milli þeirra. I ritgerð þessari er skýrt frá niðurstöðum rannsóknar á þessu atriði.“ í yfirliti segir: „Rannsókn er gerð eftir upplýs- ingum úr skýrslum fjárræktarfé- laganna um 3325 hrúta, sem höfðu átt hið fæsta 10 afkvæmi skýrslu- færð og 10 afkvæmi hjá dætrum. Erfðafylgni þessi reyndist — 0.43, þegar gert er ráð fyrir, að arfgengi beinna áhrifa og móðuráhrifa sé 0.20.“ Out-of-season breeding in lcelandic sheep Tilhleypingar utan hins árstíða- bundna fengitíma íslenskra áa. Höfundur: Ólafur R. Dýrmunds- son. Ritgerðin er skrifuð á ensku, en greinargott íslenskt yfirlit fylgir. Segir þar m. a. að helstu niður- stöður úr þessari tilraun hafi verið kynntar í Frey 3. tbl. bls. 79—82, 1980. Að lokum segir í yfirlitinu: „Af 32 ám, sem hleypt var til í ágúst báru 25 eða tæplega 80% og fæddust að meðaltali 1,76 lömb á ána. Það má telja góðan árangur. Athyglisvert er, að ærnar, sem innsprautaðar voru með 500 al- þjóðaeiningum af PMSG, reyndust frjósamari en þær ær, sem fengu stærri skammtinn, 750 einingar. Þótt fleiri egg losni, eftir því sem hormónaskammturinn er stærri, getur fósturdauði orðið til- tölulega meiri snemma á með- göngutímanum. Að minnsta kosti er ljóst, að 500 einingar nægja með svömpunum til að framkalla beiðsli hjá íslenskum ám utan hins árstíðabundna fengitíma." Seasonal variation in testis size of lcelandic rams Arstíðabundinn breytileiki á eistnastœrð íslenskra hrúta. Höfundar: Ólafur R. Dýrmunds- son, Pétur Sigtryggsson og Stefán Sch. Thorsteinsson. Ritgerðin er á ensku með íslensku yfirliti. Þar segir m. a.: „Niðurstöður þvermálsmælinga eistna fjórum sinnum á ári, að hausti, vetri og vori og sumri um tveggja ára skeið, sýndu svipaðar árstíðarbundnar breytingar bæði árin. Haustmálin voru stærst, næst komu vetrarmálin, þá sumarmál- in, en þvermál eistna var minnst á vorin. Samkvæmt þessum mæling- um voru eistun 15% stærri á haustin en á vorin, að meðaltali. í ályktunum er fjallað um breyt- ingar á stærð eistna eftir árstíðum og hugsanleg tengsl við dagsbirtu, með hliðsjóna af erlendum rannsóknarniðurstöðum á þessu sviði.“ Mites of stored hay in lceland. Maurar í þurrheyi á íslandi. Höfundur: Thorkil E. Hallas, Danmörku. Heymæði hefur margan fjármann og kúahirði bagað og jafnvel hafa bændur orðið að hætta búskap vegna hennar. I inngangi ritgerðarinnar sem er á ensku segir (í lauslegri þýðingu) að talið sé að heysýki valdi viðvar- andi sjúkdómum, líklega ofnæmi í öndunarfærum. Fyrir þremur árum fundu vísindamenn (Guth- FfíEYR — 683

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.