Freyr - 01.09.1983, Síða 11
erfðaefni, en henni fylgir sá ókost-
ur, að erfðaefnið er í einlitna
formi í sæðinu. Ef kynið, sem
varðveitta sæðið er úr, deyr út,
þarf að nota sæðið í kvendýr af
öðrum stofni í fyrstu atrennu og
síðan í kvendýr af 1., 2., 3. blend-
ingsættlið, o. s. frv. til að endur-
byggja upp gamla kynið í upp-
runaíegri mynd. Eftirfarandi tafla
sýnir, hve ört erfðaeðli gamla
kynsins byggist upp við endur-
tekna notkun sæðis úr gamla kyn-
inu, fyrst í óskylt kyn og síðan í
hvern blendingsliðinn á fætur
öðrum.
Prósent af
Blendings- erfðaefni
ættliður nr. gamla kynsins
1 ....................... 50.00
2 ...................... 75.00
3 ...................... 87.50
4 ...................... 93.75
5 ...................... 96.88
6 ...................... 98.44
7 ...................... 99.27
Hægt er að djúpfrysta sæði
flestra búfjártegunda, en frjóvg-
unarárangur með djúpfrystu sæði
er misjafn eftir tegundum.
Djúpfrysting á fósturvísum (em-
bryoer), þ. e. frjóvguðum eggjum
á 32—64 frumu stigi er orðin þró-
uð á sviði nautgriparæktar og er
að valda byltingu á sviði naut-
gripakynbóta.
Aðferðin er fólgin í því, að
fjöldaegglosi (superovulation) er
komið af stað hjá kúnni með hor-
mónagjöf. Síðan er kýrin sædd
með venjulegu móti.
Á 6. eða 7. degi frá frjóvgun eru
frjóvguðu eggin flædd úr leginu
með sérstökum tækjabúnaði. Þeg-
ar það langt er komið, er hægt að
flytja frjóvguðu eggin beint í aðrar
kýr, sem eru á sama stigi beiðmáls
og flæddu kýrnar eða þá að þau
eru djúpfryst og geymd í fljótandi
köfnunarefni, þar til þeirra er
þörf.
Djúpfrystu eggin eru hraðþídd í
37°C heitu vatni, áður en þau eru
notuð. Þróaðar hafa verið aðferð-
ir til að leggja frjóvguð egg beint
inn í leg kúnna án uppskurðar, og
Kúrí-tarfur frá Chad. Þessir nautgripir reynasl þar vel til kjötframleiðslu.
Tuddi af Shetlandskyni. Nautgripir af því kyni eru harðgerðir og ekki fóðurvandir.
það eykur notagildi aðferðarinnar
mjög mikið.
Djúpfrystur fósturvísir er tví-
litna og verður að hreinræktuðum
einstaklingi gamla kynsins, þegar
honum er komið fyrir í legi á kú,
þar sem hann verður að fullburða
kálfi. Djúpfrysting á fósturvísum
er því mjög hagkvæm aðferð til
varðveislu nautgripakynja sem
eru í útrýmingarhættu.
Djúpfrysting hefur einnig tekist
vel á fósturvísum úr sauðfé, geit-
um og kanínum, en ekki er vitað
til að jákvæður árangur hafi feng-
ist með fósturvísa úr öðrum
dýrum.
Við djúpfrystingu á fósturvísum
úr kú má reikna með eftirfarandi
tölum (Prof. Rasbæk, Afd. for
seksualfysiologi, den Kgl. Veteri-
nær- og Landbohöjskole, Köben-
FREYR — 659