Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.1983, Side 14

Freyr - 01.09.1983, Side 14
Guðmundur P. Valgeirsson Bæ, Trékyllisvík Úrbóta er þörf Víða að berast fréttir um að tún séu meira kalin nú en áður eftir langan snjóa- og klakavetur, og lítillar uppskeru sé að vœnta á þessu sumri, og í heilum sveitum sé fyrirsjáanlegur uppskerubrestur. Kal í túnum er svo sem ekkert nýtt fyrirbæri. Árum saman hafa þau verið meira og minna kalin og tjón bænda af þeim sökum mikið og ómælanlegt. Fátt er bændum ömurlegra en að horfa á tún sín svo illa farin og sjá ræktunarstörf margra ára að engu orðin, án þess að fá nokkuð raunhæft að gert. Við, bændur í Árneshreppi, höfum ekki farið varhluta af þess- um skaðvaldi. Og í ár er fullt útlit fyrir að uppskera verði enn minni en hún hefur verið undanfarin ár, þótt hún hafi ekki verið mikil, og bændur verið í vandræðum með að halda litlum bústofni sínum, sem þeir eiga þó afkomu sína undir. Það er lengi búin að vera brýn þörf á að gera verulegt átak í endurræktun þessara gróðurlausu túna. Ýmsir hafa reynt það á und- anförnum árum, þótt í smáum stíl hafi verið. Árangur af þeirri endurrækt hefur þó ekki gefið þá raun, að það hafi hvatt menn til stórra hluta í þeim efnum. Gróður sá, sem sáð hefur verið til hefur reynst endingarlaus, og landið jafn dautt eftir 2-3 ár. Sú saga er ekki bundin við Árneshrepp ein- an. Víðsvegar um land heyrir maður sömu sögu. I því er lítil uppörvun og margir hafa lagt árar í bát í þeirri viðleitni. Hér er því sannarlega illt í efni og full þörf að leita leiða til úrbóta. Fleira veldur en kalt árferði, þó að það geri sitt til. Nauðsynlegt er að leiðbein- ingaþjónusta bænda taki virkari þátt í þeirri rannsóknastarfsemi sem nauðsynleg er til undirbún- ings endurræktuninni í von um að sama sagan endurtaki sig ekki. Það er eitthvað meira en lítið að, þegar jarðvegur túna er svo steindauður að ekki þrífst í honum illgresi, og í besta falli síðsprottið varpasveifgras sem enga eftirtekju gefur, eins og flestum bændum er kunnugt. Orsaka þessa jarðvegs- ástands verður að leita og bæta úr því ef mögulegt er, annars er þetta vonlaust verk. En það er heldur ekki hægt að horfa á þetta áruin saman án aðgerða. Óttar Geirsson, ráðunautur Búnaðarfélags íslands, skrifaði skilmerkilega grein um þetta efni í 15. tölublað búnaðarblaðsins Freys í fyrra, og gaf um leið greinagóðar leiðbeiningar um hvernig skyldi að því unnið. Fyrir þá, sem standa frammi fyrir þessu vandamáli og hugsa til úrbóta, er nauðsynlegt að lesa þá grein og leiðbeiningar, sem þar er að finna, áður en þeir hefjast handa. Eg vil sérstaklega benda á eitt atriði sem Óttar nefnir í þessari grein sinni. Það er að kalka landið með skelja- kalki. Menn taki eftir: Með skelja- kalki, en ekki með áburðarkalki frá Aburðarverksmiðjunni. Eg tel þetta einna athyglisverðustu ábendingu þeirrar greinar og bið bændur að gefa því gaum. En þá vaknar spurning: Hvernig eiga þeir bændur, sem búa í órafjar- lægð frá skeljakalksnámunni á Akranesi, að afla sér skeljakalks til þess að geta framfylgt þessu þýðingarmikla atriði? Þá möguleika (eða ómöguleika) hefði Óttar eða einhver annar sem til þekkir, mátt ræða nánar. Að mínum dómi er nær ófram- Kalið tún við bæ á Suðurlandi 1981. Ljósm. Jónas Jónsson. 662 — FREYR

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.