Freyr - 15.01.1984, Blaðsíða 12
fóðri á dag. Þetta er trénisrík
fóðurblanda sem flutt er inn en
auðvelt ætti að vera að framleiða
hana hér á landi þegar markaður
leyfir það.
Svo þarf kannski líka hey til að
bera undir þœr?
Það fer eftir því hvers konar búr-
um þær eru í. Þessi búr sem þú
sérð hér eru þannig að þær geta
átt í þeim unga og þess vegna eru
þau stærri en önnur búr. Gólf-
flötur þeirra er 80x70 cm og loft-
hæð er 60 cm. Hins vegar eru
venjuleg búr talsvert minni um sig
og lægri undir loft, 50 cm breið og
60—70 cm djúp.
Kanínum líður annars best þeg-
ar þær eru á trégrind eða heyi eða
hálmi, en ekki t. d. á neti. Þessum
dýrum leiðist ekki þótt þau séu ein
í búri. Þau eru róleg, alveg gagn-
stætt refum og minkum sem mér
finnst að hljóti að finna mikið fyrir
frelsissviptingunni.
Rœktunin?
Það er mikið atriði að velja ein-
göngu bestu einstaklingana til
undaneldis. Annars dregur fljótt
úr hárvexti í stofninum.
Segjum svo að við séum að
hefja kanínurækt. Við hleypum þá
til þegar kanínurnar eru nýklippt-
ar. Það er gert til að samhæfa
ungaeignina og hárvöxtinn til að
lenda ekki í vandræðum. Það er
t. d. ekki heppilegt að klippa kan-
ínu um það leyti sem hún er að
fara að eiga unga og ekki heldur
þegar hún er nýbúin að eiga þá,
heldur þegar hún er búin að koma
þeim upp. Tilhleypingin fer fram
stuttu eftir khppingu, en það eru
17 dagar milli beiðmála, þótt þar
sé ekki algjör regla á. Venjulegur
meðgöngutími er 31—32 dagar og
kanínurnar eiga þetta 5—8 unga í
einu.
Sá sem stundar kanínurækt
verður að skrifa allt niður; hver er
móðirin, faðirinn, og hvenær
hleypt er til. Kanínurnar gera sér
hreiður og það þarf að sjá þeim
Klippingfer fram á þriggja mánaða fresti. Pá hefur hárið náð yfir 6 cm lengd. Fyrst er
klippt eftir endilöngum hrygg.
fyrir efni í það. Ungarnir lifa ekki
án þess að vera í hreiðri.
A meðan kanínan er að ala upp
ungana sína í tvo mánuði þarf hún
tvö hólf af stærðinni 80x70 cm
með litlum dyrum á milli. Hún
gerir hreiðrið í öðru hólfinu og þar
er haft hey. Hinum megin er hún
fóðruð og þar er vatnið. Þar er
hún á trégrind.
Ungarnir eru blindir fyrstu 10
dagana, en úr því fara þeir að
skríða um og éta fóður með
mömmu sinni. Þeir þurfa mikla
mjólk og kanínan þarf því mikið
fóður um það leyti.
Við tveggja mánaða aldur eru
ungarnir teknir undan og merktir
og klipptir og skráðir á viðkom-
andi blað.
Og þá vigtar þú þá?
Já, það getur verið ágætt en það er
ekki nauðsynlegt ef maður sér að
Klipping á kanínum krefst mikillar þjálfunar. Byrjað er á að kemba kanínuna.
52 — FREYR