Freyr - 15.01.1984, Side 14
dýr og þá eru þetta mjög skemmti-
leg dýr að fást við. Auk þess eru
menn ekki háðir því að vera í
daglegu vegarsambandi, við að-
drætti eða við að koma frá sér
afurðum eins og í sumum öðrum
búgreinum.
Það er líka alltaf eitthvað að
gerast á kanínubúi. Kanínan er
klippt fjórum sinnum á ári, kindin
er rúin einu sinni á ári. Kindur
eiga lömb einu sinni á ári, en
kanínan getur átt unga hvenær
sem er á árinu.
Heldur þú kannski líka að menn
gcetu orðið ósammála um háfættar
og lágfœttar kanínur?
Já, það efa ég ekki og vaxtarlagið
líka. Stórar kanínur éta meira og
gefa meira kjöt, en ef þú ætlar að
hafa þær fjögur ár í búri þá er
ekkert betra að þær séu mjög
stórar. Það er auðvelt að stækka
stofninn með kynbótum en sú
stærð sem við höfum hérna er
talin heppilegust, þ. e. hún gefur
mikla ull og sæmilega skrokk-
stærð. Þetta teljast rúmlega með-
alstórar kanínur.
Tekjur?
Ég held að okkur eigi að takast að
fá af okkar kanínum þetta 1000—
1200 g af hári á ári þegar við erum
komnir yfir byrjunarörðuleikana.
Markaðsverð í Þýskalandi eru
76—86 mörk á kg.
/ hvað er hárið notað?
Því er blandað saman við ull og
gerviefni, annað hvort eða hvort
tveggja. Ég er með verðlista frá
fyrirtæki sem framleiðir vörur úr
angórahári. Þar er værðarvoð,
1,5x2 m, sem kostar 668 þýsk
mörk frá verksmiðjunni. Það er
50% angóra og 50% kindaull. Út
úr búð kostar svona teppi yfir
1000 þýsk mörk.
Það eru framleiddar margs kon-
ar flíkur úr þessu svo sem nærföt,
náttföt, peysur, vettlingar, sjöl og
treflar.
Frh. á bls. 73.
Kanínur fyrir og eftir klippingu.
Kanínur gera sér hreiður svipað og fuglarnir.
undaneldisdýrum algjörlega að- u
skildum frá aðalhjörðinni. e
Eftir þrjár klippingar er þannig ii
töluverðum hluta unganna slátrað a
og af þeim fæst mjög gott kjöt, g
sem er eftirsótt erlendis. En þó að e
kjöt af ungri kanínu sé lystamatur a
þá er kjöt af gömlum kanínum s
seigt og yfirleitt ekki notað til e
matar. e
Notkun á hárinu og verð? f
Það er stöðugleiki á markaði fyrir s
hárið. Það byggist á því að það er J
ekki hægt að framleiða þessa af- r
urð með neinu verksmiðjulagi,
eins og egg eða fuglakjöt. Klipp-
ingin er t. d. eitt atriði sem strand-
ar á. Mikla þjálfun þarf til að ná
góðum tökum á henni. Það er
ekki hægt að skipta um fólk eins
auðveldlega og í sumum öðrum
störfum, þannig að þessi búgrein
er langmest stunduð af fólki sem
er með fjölskyldurekstur.
Petta er þá álitlegur kostur fyrir þá
sem draga saman sauðfjárrœkt?
Já, margir sem stunda sauðfjár-
rækt hafa gaman af að umgangast
54 — FREYR