Freyr

Volume

Freyr - 15.01.1984, Page 35

Freyr - 15.01.1984, Page 35
Bréf til blaðsins Efnagreiningar á graskögglum Búnaðarblaöið Freyr Matthías Eggertsson ritstjóri Ég undirritaður sendi hér með fyrirspurnir sem mig langar til að biðja þig að fá svör við. Freyr hefur birt niðurstöður úr efnagreiningum á graskögglum, síðast í blaði nr. 2/1983 og er þetta þakkarvert því að ég hef ekki séð þessar upplýsingar annars staðar. Þar kemur fram að orkuflokkarnir eru þrír og nefnast 80, 70 og 64 og eiga að gefa mynd af fjölda fóð- ureininga í 100 kg af fóðri. Þá eru graskögglarnir einnig flokkaðir eftir próteinmagni og merktir bókstöfunum A, B og C. Þetta kemur fram í áðurnefndu blaði. Það er öllum bændum ljóst sem hafa gefið grasköggla að þeir eru allverulega misjafnir að gæðum og er nú komið að spurningunum. 1. Hvernig stendur á því að þessar niðurstöður eru ekki birtar fyrr? 2. Hvernig stendur á því að pok- arnir eru ekki merktir betur en nú er, t. d. orkuinnihald og próteinmagn? 3. Hvernig stendur á því að ekki er neinn verðmunur á milli gæðaflokka? 4. Er hægt að ætlast til að bændur greiði sama verð fyrir góða köggla og þá lakari? Ekki þýðir fyrir okkur bændur að segja að við viljum fá sama verð fyrir kjöt af lambi sem fer í 1. flokk og því sem fer í 3. flokk þó að það sé nú kjöt á báðum skrokk- unum. Ekki meira um grasköggla í bili. Nú á þessu hausti hefur verð á fiski- og karfamjöli hækkað mjög mikið. Við heyrum í fréttum að heimsmarkaðsverð á mjöli hafi hækkað og er þá talað um prót- eineiningu og þá spyr ég: 1. Hvaða eftirlit er með því mjöli sem flutt er úr landi? 2. Hvaða eftirlit er með því mjöli sem selt er innanlands? 3. Hvernig stendur á því að ekki er notuð sama verðviðmiðun til bænda og í útflutningi, þ. e. á próteineiningu, og bændur geti þá vitað um próteininnihald um leið og þeir kaupa nyjölið. Ég vona að þú fáir svör við þessu og birtir í Frey við fyrsta tækifæri. Hvalshöfða, 30. nóv., 1983. Trausti Jónasson. Blaðið leitaði til Gunnars Sigurðs- sonar deildarstjóra Eftirlitsdeildar Rannsóknastofnunar landbúnað- arins og forsvarsmanna fjögurra graskögglaverksmiðja og fara svör þeirra hér á eftir. Svör Eftirlitsdeildar Rala Svör við spurningum. 1. Astæðan fyrir þeim drætti sem er á birtingu efnagreininga á graskögglum er ekki ein heldur margar. Svo að ég reki þetta nú í tímaröð sýnisins, þá líður stundum of langur tími frá því sýnið er tekið og þar til það er sent okkur hér til efnagreining- ar. Það sem af er þessu ári hafa tækjabilanir í efnagreiningar- stofu, ntannekla vegna aðhalds í opinberum rekstri og fleira gert það að verkum að efna- greiningatíminn hefur orðið alltof langur. Framleiðendur graskögglanna fá niðurstöð- urnar sæmilega fljótt og eiga að gefa kaupendum upp efnainni- hald. Þó gátu þeir það ekki í öllum tilvikum í sumar vegna dráttar á efnagreiningum. 2. Vegna þess breytileika sem er á gæðum hráefnis er vonlaust að merkja og flokka kögglana við framleiðslu og sekkjun. Úr þessu eiga graskögglaframleið- endur hins vegar að bæta með því að láta upplýsingar um efnainnihald fylgja við sölu. Vegna spurninga þinna um fiskimjöl vil ég taka fram eftirfar- andi: 1. Eftirlit með því fiskimjöli sem flutt er úr landi er ekki í hönd- um Eftirlitsdeildar Rala. 2. Tvisvar á ári er öllum skráð- um fiskimjölsframleiðendum send skýrsla til útfyllingar. Á þessa skýrslu eiga þeir að skrá alla innanlandssölu. Sam- kvæmt þeim upplýsingum sem ég hef selja Síldarverksmiðjur ríkisins og verksmiðjur KEÁ á innanlandsmarkað, af þeim verksmiðjum sem á skrá eru á Norðurlandi. Vegna þess að framleiðslan er ekki samfelld er erfitt að koma við skipulegu eftirliti. Það eru einkum tvö atriði sem mestu ráða um breytileika í gæðum fiskimjöis. Bæði þessi atriði eru tengd hrá- efninu, en þau eru: Geymsla hráefnis fyrir þurrkun (tími og skilyrði). Úr skemmdu hráefni kemur aldrei gott fiskimjöl. Hlutfall beina í hráefni: Ef hráefnið kemst óskemmt í þurrkara þá er það hlutfall beina, fisks og fitu sem áhrif hefur á efnasamsetningu mjöls- ins. Ef mjölið er mjög feitt, er viss hætta á þránun í geymslu, þó svo að fitan sé kærkomin orkubót með heyjum og öðrum fitusnauðum efnum sem við fóðrum með. Natni þeirra sem stjórna eldþurrkurum er loks eitt af úrslitaatriðunum um hvort framleitt er gott eða lé- legt fiskimjöl. Ég hefi tíundað öll þessi atriði FREYR — 75

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.