Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.1990, Side 10

Freyr - 01.09.1990, Side 10
Ibúðarhúsið á Bakka í Bjarnarfirði. Pað var upphaflega reist á Seyðisfirði fyrir síðustu aldamót sem verslunarhúsnœði Pöntunarfélags Fljótsdalshéraðs, en flutt og endurbyggt á Bakka á árunum 1987-1988. (Freysmyndir - M.E.). uninni en erum lélegir sölumenn. Okkur finnst milliliðakostnaður- inn mikill og viljum helst selja vör- una beint til neytenda. Við erum með svokallaða líf- ræna ræktun, þ.e. notum ekki til- búinn áburð eða eiturefni, og fyrir þess konar afurðir er nokkur markaður. Nú upp á síðkastið höf- um við mest selt svokallaða fjöl- skyldukassa sem í eru margar teg- undir grænmetis. Svona svipað því og kaupendur væru að taka upp úr eigin garði. Hvaða tegundir eru þetta? Neðst í kassanum fara kartöflur, síðan gulrófur og gulrætur. Svo erum við með hvítkál, blómkál, rauðkál, brokkolí og ýmsar krydd- jurtir svo sem timian, salvíu, ma- joram, estragon, mintu og melissu. Kryddjurtirnar höfum við líka selt svolítið í veitingahús. Þetta vex allt hérna? Já, en það þarf að sinna því vel. Þurrkið þið kryddjurtirnar? Við reynum að koma þeim fersk- um til viðskiptavinanna því að þær eru bestar þannig. Munurinn er svona álíka og á heyi og grasi. Það er þá haustið sem gefur tekjurnaraf þessu? Já, seinni hluti sumars og fram á haust. Uppskerutíminn dreifist samt töluvert. Ætlið þiðaðauka gróðurhúsaræktina? Já, en þá fyrst og fremst til að ala upp trjáplöntur í skjólbelti. Við höfum rekið okkur á að það vantar hér skjól við garðræktina. Með því að rækta hér upp plöntur og af- brigði sem vaxa hér fyrir vonumst við til að ráða bót á skjólleysinu. Þið nefnduð að þið stundið lífræna ræktun. Hvað felst í því? í fyrsta lagi notum við eingöngu lífrænan áburð; búfjáráburð, þara, fiskimjöl og fleira í |Deim dúr. Hæn- urnar vinna svo safnhaug úr öllurn matarleifum og því sem fellur til í garðinum. Þær kroppa úr þessu og róta því saman og úr verður fínasti áburður. I öðru lagi eru öll eitur- efni bannvara, við úðum til dæmis ekki á illgresi eða við neinum pöddum. Kærum okkur ekki um að eitra matinn. Eru hænsnin eina búféð sem þið hafið? Já, núna. Við vorum með sauðfé en lentum asnalega í kvótakerfinu, svo við ákváðum að taka ekki leng- ur þátt í þeim skrýtna leik. Þú, Arnlín, skrifaðir fyrir nokkrum árum grein um lífræna ræktun (sjá Frey, 15. tbl. 1985). Hvernig stóðá að þú gerðir það að áhugamáli þínu? Ég stundaði nám í læknisfræði og öðlaðist þá nokkuð góðan grund- völl í líffræði. Ég fór svo að stunda garðyrkju sem ég hafði aldrei kynnst neitt áður. Reyndar var það ágæt kona á Seyðisfirði sem kenndi mér fyrst til verka. Þegar ég lærði svo meira um ræktun og tengdi það líffræðiþekkingunni þá lá þessi af- staða til matjurtaræktunar eigin- lega í augum upp. Notkun allra þessara aðkomuefna í landbúnaði er óeðlileg og spillir náttúrunni 618 Freyr 17, SEPTEMBER 1990

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.