Freyr - 01.09.1990, Page 11
Félagsheimilið Laugarhóll í Bjarnarfirði, þar sem Klúkuskóli er jafnframt.
meira en svo að hægt sé að réttlæta
hana.
Hafið þið svo bætt við
garðyrkjuþekkinguna með
reynslunni?
Já, og með lestri, við höfum komið
okkur upp þó nokkru safni bóka
um ræktun. Útkoman er nokkuð
góð, plönturnar vaxa og ef tekst að
láta þeim líða vel er nokkuð öruggt
að uppskeran verði heilbrigð eins
og til var sáð.
Garðyrkjangefurekki nógartekjur
til að lifa af, vænti ég, og þið hafið
trúlega fleira við að vera?
Það er rétt en garðyrkjan nýtist
okkur mjög vel varðandi eigin
neyslu.
Eruðþiðjurtaætur?
Nei, ekki eingöngu. Við borðum
mikið grænmeti en snúum ekki
baki við öðrum mat, kj öti eða fiski,
og lifum ekki eftir neinum kenn-
ingum í þeim efnum.
Við, nokkrar konur í Bjarnarfirði,
höfum tekið að okkur að reka sumar-
hótel í Klúkuskóla í sameiningu.
Önnurstörf ykkar?
Magnús: Þau eru töluvert fjöl-
breytt. Ég hef stundað þýðingar
alltaf öðru hverju, unnið verka-
mannavinnu og gripið í smíðar og
annað sem til fellur. Vandamálið
er helst það hvað langt þarf að
sækja alla vinnu.
Arnlín: Ég hef kennt. bæði á
Hólmavík og svo stundakennslu
hér í Klúkuskóla. Svo höfum við,
nokkrar konur hér í Bjarnarfirði,
tekið að okkur að reka sumarhótel
í skólanum og félagsheimilinu á
Laugarhóli, sem stendur á Klúku-
jörðinni.
Áður voru það yfirleitt aðkomu-
menn í hálfgerðu verbúðalífi sem
ráku þarna sumarhótel í u.þ.b. tíu
vikur á sumrin. Svo fæddist sú hug-
mynd að við konurnar í sveitinni
tækjum aðstöðuna á leigu. Engin
okkar vildi út í þetta upp á þau býti
að vera bundin allt sumarið,
17, SEPTEMBER 1990
Freyr 619