Freyr

Volume

Freyr - 01.09.1990, Page 12

Freyr - 01.09.1990, Page 12
Gamli bœrinn á Bakka í Bjarnarfirði þar sem þau Arnlín og Magnús bjuggu áður. þannig að við erum níu um þennan rekstur. Er einhver ein fyrir hópnum? Nei, við höfum rekið þetta algjör- lega í sameiningu. Við höfuð ákveðna verkaskiptingu og hún er breytileg milli ára; hver tekur ákvarðanir, hver er í bókhaldinu, innkaupunum o.s.frv. Þetta hefur gengið ágætlega upp og hlutirnir komast til skila. Á hvaða grunni eru laun greidd? Þau eru greidd út á vinnuframlag hvers og eins. Þegar búið er að greiða kostnað er afganginum skipt eftir vinnustundafjölda hverrar og einna. Tímakaupið er alveg viðunandi, einkum miðað við það að við erum allar vanar að þurfa að fara lengra að heiman í atvinnuleit en því fylgir óhjá- kvæmilega ýmis kostnaður. í þessu tilfelli höfum við hins vegar hálfs dags vinnu heima hjá okkur. Ég þykist finna að þið fundið ykkur í þessu umhverfi, ekki síst þarsem þið eruð búin að koma ykkur hér upp húsi. Hverersaga þessa húss? Það er upphaflega reist fyrir alda- mót sem verslunarhúsnæði fyrir Pöntunarfélag Fljótsdalshérðas á Seyðisfirði. í eina tíð höfðum við hug á að setjast að á Seyðisfirði og höfðum þá augastað á þessu húsi. Þess í stað fluttum við í Bjarnar- fjörð. Seinna komum við á Seyðis- fjörð, þá var húsið komið í niður- níðslu, mest vegna staðsetningar þess, og stóð til að fjarlægja það, svo að við keyptum það þótt mörg- um fyndist það hinn mesti hjallur. Þegar við rifum það kom í ljós að það var ótrúlega heilt og undanfar- in ár höfum við verið að endurreisa það hér í sem næst upprunalegri mynd. Viðfluttuminnhérídesem- ber 1988 en þá var liðið hálft annað ár frá því að við hófum að reisa grindina. En eins og sjá má er langt frá því að húsið sé frágengið þótt við séum flutt inn. Nú er þetta nokkuð fastmótað umhverfi sem þið flytjið hér inn í. Ég minnist þess að hafa lesið bráðskemmtilega frásögn í ársskýrslu Búnaðarsambands Strandamanna sem þú, Árlín, og önnurkona stóðuðað. Þaðvarað skilja að þið kvenfulltrúará aðalfundinum hafið ekki passað þar inn í umhverfið. Hvernig finnið þið ykkur í þessu umhverfi? Við höfum ekki verið og verðum sjálfsagt aldrei fullgildir aðilar að þessu samfélagi. Við erum alltaf svolítið fyrir utan. Við þekkjum mjög vel fólkið á öllum bæjunum og vinnum með því að því sem að okkur snýr, en þetta er lítil sveit með sögu sem við þekkjum ekki af eigin reynslu, hér er að vissu leyti ættarsamfélag sem við tilheyrum ekki og auk þess er allur okkar reynsluheimur gjörólíkur reynslu- heimi fólksins hér. Svo að við skiljum ekki alveg við garðræktina. Seljið þið mest á höfuðborgarsvæðið? Já, að vísu vorum við fyrstu sumrin með útimarkað vikulega á Hólmavík og gekk ágætlega. Þá vorum viðfjögurum þetta. En eftir að við urðum tvö höfum við ekki lengur tök á því. Hvernig er veðurfar hér til garðræktar? Dalurinn hér er það lokaður að það er ekki nema í ákveðnum áttum sem hvassvirði eru til baga og úr því erum við að reyna að bæta. Hins vegar erum við það langt frá sjó að sumarhiti er ein- hverjum gráðum hærri en næstu veðurathugunarstöðvar gefa til kynna, og fyrir bragðið er heldur ekki jafn umhleypingasamt og víða við sjó. Nú búið þið hérá svæði sem óneitanlega hefurveriðá undanhaldi hvað búsetu vaðar. Sjáið þið leiðir til að snúa því við? Já, möguleikarnir eru það margir hér bæði til lands og sjávar. Hlunn- indabúskapur var til dæmis meiri hér um slóðir áður fyrr, áður en miðstýringin leiddi til þessa ein- hæfa fjárbúskapar. Svo má nefna að hér eru meiri möguleikar til ferðamannaþjónustu en annars staðar í sýlunni, hér er fyrirtaks sundlaug, silungsá og ótal lítt þekktar gönguleiðir. Svo má nefna þá möguleika sem heita vatnið hér gefur en það hefur sáralítið verið kannað hvernig hægt væri að nýta það. Frh. á bls. 624. 620 Freyr 17. SEPTEMBER 1990

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.