Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.09.1990, Qupperneq 16

Freyr - 01.09.1990, Qupperneq 16
flutningi matvæla milli heimshluta. Hvert land eða landsvæði verður að tryggja eigin fæðuöflun. Þær þjóðir, sem treysta að verulegu leyti á heimsverslun til að sinna frumþörfum sínum fyrir fæðu, geta lent í meiri erfiðleikum en aðrar, ef uppskerubrestur verður. Ég tel einnig ástæðu til að víkja að því, að loftslagsbreytingar munu ekki síður hafa áhrif á nátt- úruleg vistkerfi en á landbúnað. Víða getur skort skilyrði til þess að þau aðlagist ört. Þannig er t.d. spáð stórfelldum skógardauða. Reyndar er aðlögun skógræktar sérstaklega erfið, vegna þess hve tré eru lengi að vaxa. I Bretlandi er þegar farið að vara við því að gróð- ursetja sitkagreni, vegna þess að það muni ekki þrffast í hlýrra lofts- lagi. Aukinn koltvísýringurí andrúmslofti. í því sem á undan er komið, hefur eingöngu verið tekið tillit til áhrifa, sem breytingar á veðurfari geta haft. Hins vegar getur breytt samsetning andrúmslofts einnig haft bein áhrif. Fyrst og fremst er það aukning koltvísýrings, sem gæti aukið sprettu. Við þekkjum vel, að í gróðurhúsum er koltvísýr- ingi bætt í loftið til að auka vöxt. Samkvæmt lífeðlisfræðilegum rannsóknum eykst tillífun með auknum styrk koltvísýrings. Margt bendir þó til. að aðrir þættir tak- marki víða vöxt, svo að þessi áhrif komi ekki beint fram. Um þetta mætti hafa langt mál, og sömuleiðis það, á hvern hátt búskapur hefur áhrif á myndun eða eyðingu þeirra efna í andrúms- lofti, sem valda gróðurhúsaáhrif- unum (meðferð mýra, sinu- brennsla, búfjárhald), en það væri efni í annað erindi. Góðir fundarmenn! Ég hef nú stiklað á stóru um mikið efni og fæstu gert nokkur skil að gagni. Ég nefndi í upphafi nokkra þætti, sem þarf til virkjunar okkar jarðarbúa á sólarljósinu til matvælaöflunar. Þótt gróðurhúsa- áhrifin komi fram, verður sólar- ljósið lítt breytt, breytingar á skýjafari verða vart svo miklar að skipti sköpum. Jarðvegur verður sömuleiðis hinn sami. Hins vegar eru mörg svæði viðkvæm fyrir breytingum á vatnsbúskap. Þá mun tilflutningur á ræktunarbelt- um valda því, að víða getur vantað aðlagaðan nytjagróður, og nauð- synlega ræktunarþekkingu getur skort, þar sem nýir möguleikar opnast. Nærtækt dæmi er að hugsa til þess, ef skyndilega verður unnt að rækta bygg víða hér á landi. Þá mun koma að góðu gagni sú reynsla, sem þegar er fengin af byggrækt. Nú eru liðlega 6 áratugir frá því byggrækt hófst að nýju í tilraunaskyni. Hún hefur þó lítt náð fótfestu fyrr en hin síðustu ár. Sumpart er það merki þess, að ákveðin ræktunarmenning hefur fest rætur, þótt breytingar á mark- aðsskilyrðum hafi e.t.v. ráðið meiru. Miklu máli skiptir, að markvisst er unnið að kynbótum á byggi, þótt í smáum stfl sé. Þessar kynbætur eru dæmi um rannsókn- ir, sem geta búið í haginn fyrir þær breytingar, sem spáð hefur verið. Það er erfitt að spá. Ég fylli flokk þeirra, sem telja hæpið að spá miklu um gróðurhúsaáhrifin umfram það að slá því föstu, að miklar breytingar eru að verða á meginþáttum í umhverfi okkar og þær hljóta að valda breytingum á landbúnaði um heim allan. Hætt er við, að þær birtist sem skyndilegur uppskerubrestur með meðfylgj- andi hallæri. Þótt hallæri séu stað- bundin, geta þau haft áhrif um heim allan. Hin jákvæðari áhrif loftslagsbreytinga munu skila sér smátt og smátt, og því má búast við, að hin neikvæðu yfirgnæfi fyrst, hvað sem síðar verður. Hvað Island varðar spái ég því, að hagnýting lands til ræktunar, bæði landbúnaðar og skógræktar, muni verða mun mikilvægari þátt- ur í tilveru þjóðarinnar en nú er, jafnvel þótt svo fari, sem vel getur verið, að hin beinu áhrif gangi hér hjá garði. Rétt er að minna á, að óvíða munu vera svo víðáttumikil óræktuð en ræktanleg landssvæði sem hér á landi. Það skiptir mestu að mannlífið sé gott. Frh. afbls. 620. Frumkvæði heimamanna hefur hins vegar verið sáralítið og svart- sýnin er kannski þröskuldurinn. Teljið þið það gróið viðhorf hér? Já, og hvernig má annað vera eins og saga þessarar sveitar hefur verið undanfarna áratugi. Hafísárin í lok sjöunda áratugarins tóku sinn toll af íbúatölunni, kvótakerfið sýnir sennilega sínar verstu hliðar þar sem sauðfjárbúskapur er næstum 624 Freyr eina lifibrauðið og núna eru menn í sárum eftir refaævintýrið og verða það næstu ár. Utanaðkomandi aðstæður hafa mikið breyst síðan við komum hingað, hér er kominn sjálfvirkur sími, rafmagnið hangir inni flesta daga ársins og póstferðum hefur fjölgað. Það er einna helst að sam- göngumálin, mál málanna á svona stað, þróist hægt. Það sem annars skiptir mestu máli um búsetu úti á landi hvort sem það er hér eða annars staðar, er að mannlífið sé gott, að fólk langi til að eiga heima þar sem það býr og að sveitin verði ekki ein- hvers konar verbúð. Þetta hefur víða verið vanrækt. að stuðla að mannlífi sem er skemmtilegt og auðgandi fyrir íbúana þó að at- vinnan sé náttúrulega undirstaðan. M.E. 17, SEPTEMBER 1990

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.