Freyr

Volume

Freyr - 01.09.1990, Page 18

Freyr - 01.09.1990, Page 18
 Frá Hvanneyri. Með Framhaldsdeildinniþar var stofnað tilfyrsta innlenda háskólanámsins utan Reykjavíkur árið 1947 (Ljósm.: Gísli S verrisson). Bjarni Guðmundsson, Hvanneyri Búvísindadeildin á Hvanneyri I Nemendurog störf að námi loknu Flestum mun kunnugt að við Hvanneyrarskóla er starfrœkt búvísindadeild. Deildin er „vísindaleg frœðslu- og rannsóknastofnun á sviði landbúnaðar“ og á hún að veita „vísindalega fræðslu í búfrœði og undirstöðugreinum hennar,“ svo að vitnað sé til búfrœðslulaga nr. 55/1978, en eftir þeim starfar deildin. Næstelsti innlendi háskólinn! Búvísindadeildin rekur sögu sína til haustsins 1947, er stofnað var til framhaldsnáms fyrir búfræðinga á Hvanneyri. Framhaldsdeildin, eins og hún var löngunt nefnd, varð fyrst og fremst til fyrir fram- sýni og dugnað Guðmundar Jóns- sonar, þáverandi skólastjóra þar. Með búfræðslulögunum frá 1978 var háskólastig deildarinnar form- lega staðfest. Lengi vel efuðust ýmsir um eða litu fram hjá því að þarna væri um að ræða háskólanám í búfræði, svo sem oft hefur gerst á bernskuárum hliðstæðra stofnana. Nemendur frá deildinni réðust þegar til starfa við fræðslu, leiðbeiningar og síðar rannsóknir í þágu landbúnaðarins, svo sem nám þeirra stóð til. Hefur hlutur þeirra við miðlun þekkingar til bænda og í faglegri framvindu landbúnaðarins orðið mikill, og hafa þeir með störfum sínum borið búvísindanáminu vitni. 626 Freyr 17, SEPTEMBER 1990

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.