Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1990, Síða 19

Freyr - 01.09.1990, Síða 19
Brottfall nemendafrá námi við Búvisindadeild er lítið og mun minna en gerist i sambœrilegu háskólanámi. Myndin er úr nemendagarði á Hvanneyri (Ijósm.: Gísli Sverrisson). Nemendurfrá deildinni og helstu störf þeirra. Undanfarna mánuði hefur verið unnið að því að endurskoða námið við Búvísindadeild. Meðal annars hefur verið reynt að greina fram- tíðarþörf fyrir nám af þessu tagi og rætt um það, hvernig náminu beri að haga svo að uppfylla megi þess- ar þarfir. Ollum „framleiðendum" er það hagsmunamál að vita um afdrif afurða sinna, hvort og þá hvernig markaðurinn tekur við henni. Út frá því er metið hvort markmiði „fyrirtækisins" er náð eða hvort breyta þurfi til á einhvern veg. Að sínu leyti er Búvísindadeild fram- leiðandi sérmenntaðra starfskrafta (búfræðikandidata) fyrir landbún- aðinn. Fyrir framtíðarskipulag náms og kennsluhátta við deildina er gagnlegt að kanna hver var bak- grunnur nemenda hennar, hvað um þá hefur orðið, hvaða störf tóku þeir sér fyrir hendur o.s.frv. í þessu skyni var gerð dálítil athug- un á nemendahópum, sem hófu nám við Búvísindadeild á árunum 1972-1986, og áttu því að útskrifast 1975-1989. Samtals eru það átta námshópar. Verður nú sagt frá helstu niðurstöðum athugunarinn- ar. Innritun - brottfall nemenda. Sá háttur hefur verið hafður á allt frá stofnun deildarinnar að taka nýnema aðeins inn annað hvert ár. Á tímabilinu, sem könnunin nær til, hafa að jafnaði 10-11 nýnemar verið skráðir til náms í hverjum hópi. Af þeim hafa að meðaltali 8- 9 lokið burtfararprófi. Brottfall nemenda er mjög lítið, sé borið miðað við annað háskólanám - aðeins tæp 20%. Til samanburðar má nefna, að nýleg könnun á brottfalli nemenda við ýmsar deildir Háskóla íslands sýndi, að þar var það að meðaltali 47%. í Verkfræði- og raunvísinda- deild, sem helst má bera Búvís- indadeildina saman við, var brott- fallið minna - um 42%. Hér verður að hafa í huga, að inntökuskilyrði í Búvísindadeild eru fremur ströng, og skipan námsins þannig, að nem- endur ráða hraða sínum síður en í ntörgu öðru háskólanámi. Svo til allir, sem hurfu frá námi í Búvísindadeild, gerðu það á eða að loknu fyrsta námsári. Meginá- stæða brottfallsins er sú, að nem- endur náðu ekki tilskilinni fram- haldseinkunn, en nokkrir tóku til við annað nám, svo sem búvísinda- nám erlendis, eða annað háskóla- nám innanlands. Uppruni nemenda - kyn - fjölsky I d u hag ir. Um það bil 63% nemendanna voru skráðir til heimilis í sveit, er þeir hófu nám sitt við Búvísindadeild. Hlutfall sveitamannanna var held- ur hærra á fyrri helmingi tímabils- ins (1975 til 1981) - 66% á móti 59% á seinni helmingi þess (1983 til 1989). Meðalhlutfall stúlkna er 16%. Hefur það hækkað verulega; var 5% framan af tímabilinu en 31% á síðari hluta þess. í síðasta námshópnum (þeim er braut- skráðist 1989) náðu stúlkurnar meirihluta í fyrsta sinn í sögu Bú- vísindadeildar. Svo er að sjá, að hlutur stúlkn- anna hafi vaxið heldur hraðar í nemendahópi Búvísindadeildar en Bændadeildar skólans. Þessi þró- un er þekkt úr erlendum landbún- aðarháskólum, þar sem stúlkurnar hasla sér í vaxandi mæli völl á sviði búvísindanna. Nemendum í sambúð af einu eða öðru tagi hefur fjölgað á tíma- bilinu, sem könnunin nær til, - úr hér um bil 18% í 28%. Þetta end- urspeglar almenna samfélagsþró- un. Með tilkomu nemendagarð- anna á Hvanneyri batnaði einnig aðstaða fjölskyldufólks til náms við Búvísindadeild. Undirbúningsmenntun- stúdentspróf- búfræðipróf. Inntökuskilyrði í Búvísindadeild eru búfræðipróf ineð fyrstu ein- kunn og stúdentspróf eða jafngildi þess í mikilvægum grunngreinum. Um 94% nemenda, sem í Búvís- indadeild komu á athugunartíma- bilinu, voru búfræðingar frá Hvanneyrarskóla, en 6% frá Hóla- skóla. Ekki var um að ræða nem- endur með búfræðipróf frá erlend- um búnaðarskólum. Af nemendunum höfðu 55% stúdentspróf eða verulegan hluta framhaldsskólanáms að baki, er þeir hófu námið. Hlutfall þeirra hefur hækkað mjög með árunum, - 17, SEPTEMBER 1990 Freyr 627

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.