Freyr - 01.09.1990, Qupperneq 20
Árgarður og Hlégarður - nemendagarðar Búvísindadeildar, teknir í notkun
1987. Bygging garðanna stórbœtti aðstöðu búvísindanemanna á Hvanneyri
(Ljósm.: Bjarni Guðmundsson).
úr 42% í 72%. Hlutfall stúdenta í
sveitamannahópnum er ögn lægra
en í hópnum, sem kom úr þéttbýli
(52% á móti 60%). Nokkrir nem-
endur (tæp 5%) höfðu áður hafið
háskólanám (m.a. í líffræði), sem
þeir hurfu frá á ýmsum stigum.
Frekara nám.
Kannað var, hve margir höfðu far-
ið í viðbótarnám að loknu prófi frá
deildinni. Er þá talið allt nám, sem
staðið hefur tvö misseri eða leng-
ur. Töldust 28% nemenda hafa
lagt slíkt nám fyrir sig, - liðlega
tveir þriðju höfðu lokið því með
einhvers konar iokaprófum þar af
þrír (5%) með doktorsprófi. Nú er
ekki réttmætt að telja hópinn frá
1989 með í þessum útreikningi, þar
eð nemendum úr honum hefur vart
gefist tími til að hefja framhalds-
nám, hvað þá Ijúka því. Fellum við
þann hóp út, verður hlutur kandi-
data með framhaldsmenntun 33%.
Af sveitamannahópnum voru
það 24%, sem bætt höfðu við sig
námi, en 36% af hinum. Hluta-
munurinn á milli hópanna skýrist
af því, hve margir úr fyrrnefnda
hópnum hafa horfið til búskapar
að námi loknu, eins og síðar verður
vikið að.
Við hvað starfa þeir?
Búvísindanámið er fyrst og fremst
sérfræðinám í þágu landbúnaðar-
ins. Því var athugað hvaða störf
brautskráðir nemendur höfðu val-
ið sér. Störfin voru flokkuð í sex
flokka. Var miðað við aðalstarf
eins og af því fréttist í októbermán-
uði 1989. Skiptust nemendur
þannig eftir störfum, sjá mynd 1.
Ekki verður annað sagt en nem-
endur Búvísindadeildar nýtist
landbúnaðinum vel, því að um það
bil 90% þeirra nemenda, sem
komu til starfa á tímabilinu 1975-
1989, eru nú í þjónustu hans með
einum eða öðrum hætti.
Skoða má skiptingu í stærstu
starfshópunum eftir útskriftaraldri
nemenda:
Yngri Eldri
hópur hópur
(1975-1981) (1983-1989)
Bændur 16% 50%
Ráðunautar 38% 21%
37,30%
25,40%
■ Bændur
IH Ráðunautar
ffl Kenn. og ranns.menn
□ Við önnur sérfr.störf
ii Við nám
m Ekki við landbúnað
Skipting nemenda frá Búvísindadeild 1975-1989 eftir störfum. Allurþorriþeirra er nú að störfum íþága landbúnaðar-
ins.
628 Freyr
17. SEPTEMBER 1990