Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.1990, Side 22

Freyr - 01.09.1990, Side 22
Pétur Þór Jónasson, ráðunautur, Búnaðarfélagi Islands Þróun í heyöflun á árunum 1981-1989 Miklar breytingar hafa orðið í heyverkun hér á landi síðustu ár. Par velditr mestu að fjölmargir bœndur verka orðiðfóður í rúllum, þó að í mismiklum mœli sé. Um langtskeið hafa bœndur verið hvattir til aukinnar votheysverkunar, einkum sunnan- og vestanlands. Heldur hefur votheysverkun sótt á þó að mörgum hafi þótt miða hœgt. Eðlilega hafa margir velt því fyrir sér að undanförnu hvaða áhrif rúlluverkunin hafi haft á þessa þró- un. Upplýsingar um umfang þess- arar heyverkunar hafa hins vegar verið nokkuð óljósar. Eftirfarandi samantekt er gerð í því skyni að varpa nokkru Ijósi á þróunina i heyöflun síðustu ár og þá gífurlegu aukningu sem hefur orðið í votheysverkun eftir til- komu rúllutækninnar. Pessi sam- antekt byggir á upplýsingum úr Pétur Pór Jótiasson. forðagæsluskýrslum. Forðagæslu- skýrslur greina frá heyforða (bæði uppskeru og fyrningum) í rúm- metrum ásamt áætluðu fóðurgildi (fóðureiningum í rúmmetra). Hér eru einungis notaðar upplýsingar forðagæslumanna um uppskeru, en fyrningum sleppt. Frá og með árinu 1986 hafa vot- verkaðar rúllur verið skráðar undir sérstakan lið. Fyrir þann tíma var þess getið á skýrslunum, ef um var að ræða rúllur. Hér á landi var fyrst verkað í rúllum svo að einhverju næmi sumarið 1983. Verkað var í fáeinum rúllum í Nesi í Reykholts- dal haustið 1982. Gögn úr forða- gæsluskýrslum eru til á tölvutæku formi f.o.m. árinu 1981 og tekur þessi samantekt því yfir það tíma- bil. Þróunin á landinu í heild. í 1. töflu má lesa hve mikið af heyforðanum í landinu öllu var verkað í þurrhey annars vegar og í vothey hins vegar. Þriðji dálkurinn er þurrheysígildi alls, sem hér er kallað heildargróffóður, en hann gefur gleggri mynd af mun í upp- skeru milli ára en fyrri dálkarnir. Rúmmetri votheys reiknast sem ígildi tveggja rúmmetra af þurr- heyi. Síðasti dálkurinn sýnir hlut- deild votheys í heildargróffóðri 630 Freyr 17. SEPTEMBER 1990

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.