Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.09.1990, Qupperneq 23

Freyr - 01.09.1990, Qupperneq 23
reiknað út frá magntölum (vh% = 2*vh/2*vh+þh). Eins og sjá má hefur vothey aukist jafnt og þétt og árin 1988 og 1989 verður stóraukn- ing og er komið í 485 þús. rúm- metra, sem er liðlega fjórðungur heyaflans eða 26,2%. Ég hef kosið að reikna hlutdeild votheys út frá magntölum, en einnig er hægt að reikna út frá áætluðum fjölda fóð- ureininga (sjá töflur í sviga), en reynsla mín er að það gefi mjög líka niðurstöðu. Þá má benda á það að mat á magni er öruggara en mat á fóðurgildi. Aftasti dálkur töflunnar sýnir vothey verkað í rúllum sem % af votheyi alls. Þróunina í heildarvot- heysmagni og rúlluvotheyi má einnig lesa úr 1. mynd. A síðasta ári var 61% votheys verkað í rúllum og hafði aukist úr 122.489 rúmmetra í 295.197 rúmmetra milli áranna 1988 og 1989 og er því orðið um 16% af heildarheyfeng í landinu. Aukningin í rúlluvotheyi milli ára er því 172.708 rúmmetra á sama tíma og aukningin í votheyi alls er 158.957 rúmmetra, sem staðfestir að nokkuð er um að bændur hafa flutt sig yfir í rúllu- verkun sem áður votverkuðu hey á annan hátt. í framhaldi af þessu kann að vera fróðlegt að skoða hvernig fjöldi þeirra bæja þar sem verkað er gróffóður hefur breyst. Fyrsti dálkurinn í 2. töflu sýnir heildar- fjölda bæja í landinu þar sem verk- að er gróffóður af einhverju tagi, þurrhey eða vothey. Næstu tveir dálkar sýna á hve mörgum bæjum verkað er í þurrhey annars vegar og vothey hins vegar og síðustu tveir dálkarnir sýna aftur á móti hve stór hluti bæja það er. Það sem einkum er eftirtektarvert við þess- ar tölur er hin mikla fjölgun bæja milli áranna 1988 og 89, þar sem verkað er í vothey. Árið 1989 er verkað í vothey á 47% bæja í ein- hverjum mæli. Jafnframt fjölgar þeim sem eingöngu verka í vothey, en hlutur þeirra sem verka í þurr- hey hefur þá lækkað úr tæplega 99% í tæp 95%. Fjölgun votheys- Fjöldi b»ja 2000 n------------ 1500 - Fjöldi bœja með votheysverkun árið 1981-1989. 1. tafla. Uppskera gróffóðurs árin 1981-1989. Ár Þurrhcy (m3) Vothey (m3) Heildargróf- fóður Vothey % af grólf. Rúllur % af votheyi 1981 . . . 2.993.259 178.902 3.351.063 10.7 0 1982 . . 3.231.659 192.732 3.617.123 10.7 0 1983 . . 3.038.741 220.815 3.480.371 12.7 1.3 1984 . . 3.704.681 261.409 4.227.499 12.4 4.9 1985 . . 3.336.228 259.777 3.855.782 13.5 10.4 1986 . . 3.230.490 266.528 3.763.546 14.2 20.5 1987 . . 3.360.512 285.351 3.931.214 14.5 25.5 1988 . . 2.953.352 326.364 3.606.080 18.1(18.3) 37.5 1989 . . 2.736.737 485.321 3.707.379 26.2(25.2) 60.8 Tölurísviga sýna hlutdeild votheys í heildargróffóðri reiknað út frá áætluðu fóðurgildi. 2. tafla. Fjöldi bæja á landinu öllu eftir aðferðum við heyöflun árin 1981-1989 Fjöldi hæja með % af hæjum með Ár gróffóður þurrhev vothey þurrhey vothev 1981 . . 4137 4072 1263 98.4 31 1982 . . 4073 4011 1241 98.5 30 1983 . . 4020 3937 1333 97.9 33 1984 . . 3998 3940 1369 98.5 34 1985 . . 3955 3899 1300 98.6 33 1986 . . 3903 3829 1215 98.1 31 1987 . . 3805 3743 1213 98.4 32 1988 . . 3717 3613 1278 97.2 34 1989 . . 3695 3502 1731 94.8 47 17. SEPTEMBER 1990 Freyr 631

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.