Freyr - 01.09.1990, Síða 25
500
400
300
200
100
0
Fjöldi bœja með votheysverkun, ásamt fjölda bœja með verkun í rúllum og
turnum eða gryfjum, eftir kjördæmum:
Fjöldi beja
RN VL VF NV NE AL SL
Kjördæmi
Vothey Rúllur í 1 Turn/Gryfja
taldar. Öftustu þrír dálkarnir sýna
í fyrsta lagi vothey sem hundraðs-
hluta af heildargróffóðri og í öðru
Iagir hve stór hundraðshluti rúll-
urnar eru af votheyi og loks af
gróffóðri alls. Athygli skal vakin á
því að tölur í sviga sýna hlutdeild
votheys í heyfeng árið 1982, árið
áður en votverkun í rúllum hefst
hér á landi. Á 3. mynd er sýnd
hlutdeild votheys í heildargróf-
fóðri árin 1982 og 1989 eftir kjör-
dæmum.
Eins og sjá má skera Vestfirðir
sig algerlega úr hvað varðar mikla
votheysverkun, en rúlluverkun er
aftur á móti minnst þar. Verulegur
munur er þó innan Vestfjarða á
umfangi votheysverkunar og er
hún langmest í Strandasýslu. Þar
eru rúm 94% heyaflans verkuð í
vothey en voru tæp 86% árið 1982.
Aukning í votheysverkun hefur
verið hlutfallslega mest á Austur-
landi, en þar er jafnframt hæsta
hlutfall votheys verkað í rúllum
eða tæp 84%. Á Norðurlandi
eystra eru rúm 79% verkuð í
rúllum. Það vekur einnig athygli
að á Vestfjörðum þar sem votheys-
verkun hefur lengi verið ráðandi,
er nálægt þriðjungur af votheyinu
verkað í rúllum. Ef skoðaðar eru
tölur um votheysverkun í einstök-
um sýslum frá 1982 kemur í Ijós að
votheysverkun var langminnst í
Austur-Skaftafellssýslu og Eyja-
fjarðarsýslu. 2,0% og2,5% heyafl-
ans. Árið 1989 eru þessar tölur
komnar upp í 33,3% og 15,6%.
í 5. töflu er sýndur fjöldi bæja
með þurrheys- eða votheysverkun
í einstökum kjördæmum árið 1989.
Aftasti dálkurinn sýnir hve stór
hundraðshluti bæjanna í hverju
kjördæmi er með votheysverkun.
Tölur í sviga sýna samsvarandi töl-
ur frá 1982 og endurspegla vel
aukninguna í votheysverkun sem
kom fram í 4. töflu. Vestfirðir eru
þó undantekning, en þar hefur
hlutfall bæja með votheysverkun
lækkað h'tillega þrátt fyrir að stærri
hluti heyaflans sé þar verkaður í
vothey en áður. Á 4. mynd sést
fjöldi bæja þar sem verkað er í
vothey eftir kjördæmum og einnig
hve margir þeirra eru með verkun í
rúllum og í turnum eða grvfjum.
Vera má að ýmsir hafi áhuga á
að skoða þróunina nánar í einstök-
um landshlutum, s.s. eftir sýslum.
Um er að ræða of mikið talnasafn
til að unnt sé að rekja þróunina svo
náið hér, en í 6. töflu má lesa
upplýsingar um það hvernig vot-
heysöflun var háttað í einstökum
sýslum á síðasta ári.
Fyrsti talnadálkurinn sýnir
heildarvotheysmagn í sýslunni og
annar dálkurinn þann hluta vot-
heysins sem er verkaður í rúllum.
Áður er lítillega drepið á hlutdeild
votheys í heidarfóðri í einstökum
sýslum. Ef litið er aðeins nánar á
hlutdeild rúlluvotheys í heildarvot-
heysmagni kemur í ljós að hlutfall
rúlla er hæst í Austur-Skaftafells-
sýslu, 88%. Fast á eftir komaaðrar
sýslur á Austúrlandi og Norður-
5. tafla. Fjöldi bæja eftir aðferðum við heyöflun og eftir kjördæm-
um árið 1989
Fjöldi bæja með: % baeja
gróffóður þurrhev vothey með vothev
Reykjanes....................... 82 (117) 80 26 32(20)
Vesturland .................... 608 (648) 589 297 49(34)
Vestfirðir..................... 290 (329) 211 216 74(78)
Norðurl.-V..................... 639 (691) 603 295 46(30)
Noröurl. E..................... 678 ( 757) 660 286 42(19)
Austurland..................... 435 (520) 418 190 44(18)
Suðurland............... 963(1011) 941 421 44(29)
Landið.................. 3691(4073) 3498 1728 47(30)
() Tölur í sviga eru fyrir árið 1982
17, SEPTEMBER 1990
Freyr 633