Freyr - 01.09.1990, Blaðsíða 30
Óttar Geirsson,
jarðræktarráðunautur
Um hcyvcrkun
Upplýsingarfrá hcyverkunarhópi Búnaðarfélags íslands
Fyrir röskum áratug voru fjórir ráðunautar Búnaðarfélags íslands tilnefndir í sk.
heyverkunarhóp, sem átti að beina kröftum sínum í auknum mœli að leiðbeiningum í
heyverkun. I því tilefni tókum við fjórmenningarnir saman nokkur atriði sem varða
aðstöðu bœnda til heyverkunar og studdumst þar fyrst og fremst við spjaldskrá
Búnaðarfélagsins yfir jarðabœtur.
Upplýsingarnar sem þá voru tekn-
ar saman spönnuðu jarðabætur á
árunum 1958 til 1978. Til fróðleiks
skal nú sýnt hvernig staðan var tíu
árum síðar, þ.e. árið 1988.
Hlöðurými
Fyrst skulum við líta á hlöðurými
miðað við þá ræktun sem til er.
Hlöðurými gefur okkur einhverja
hugmynd um það hversu mikinn
hluta heyfengs ætti að vera hægt að
geyma til vetrarins á öruggan hátt.
I 1. töflu er hlöðurými í rúmmetr-
um á hvern ha túns skráð og skipt-
ing þess í þurrheyshlöður og vot-
heyshlöður.
Það sem fyrst vekur athygli við
þessa töflu er að votheysrými hefur
aukist í hlutfalli við þurrheysrými.
Á þessu 10 ára tímabili hefur
breytt tækni við votheysverkun
haft áhrif á byggingar. Verkun vot-
heys í flatgryfjum varð til þess að
votheyshlöður voru byggðar stærri
en áður og það skýrir að einhverju
leyti þá auknu hlutdeild sem vot-
heyshlöður eru orðnar í hlöðurým-
inu. En nánar um aðrar votheys-
verkunaraðferðir og hlutfall milli
votheys og þurrheys síðar.
Eins og sjá má af 1. töflu er
hlöðurými að meðaltali 20-30
rúmmetrar á hvern ha ræktaðs
lands og er reyndar víða komið yfir
30 rúmmetra árið 1988. í töflunni
sker Reykjanes sig dálítið úr og er
eina svæðið þar sem hlöðurými á
ha virðist hafa minnkað á þessu 10
ára tímabili. Þetta er þó trúlega
ekki rétt, heldur sýnir þetta að
skráning bæði túna og byggðra
hlaða er ófullkomin í skýrslum
Búnaðarfélagsins. Á starfssvæði
1. tafla. Hlöðurými á ha túns árin 1978 og 1988
t’urrheyshlööur Votheyshlööur Hlööur alls Hlutdeild
1978 1988 1978 1988 1978 1988 votheysrýmis
m'/ha m'/ha m'/ha m'/ha m'/ha m'/ha í hlöðum, %
1978 1988
Reykjanes................................... 16,1 14,5 1,7 2,6 17,8 17,1 9,8 15,8
Vesturland.................................. 19,9 23,2 3,7 6,5 23,6 29,7 15,7 21,8
Vestfirðir.................................. 15,0 16,4 10,7 18,3 25,7 34,7 41,5 52,8
Norðurland vestra........................... 22,6 25,1 3,4 6,4 26,0 31,5 13,0 20,4
Norðurland eystra........................... 24,4 29,4 1,5 2,6 25,9 32,0 5,6 8,0
Austurland ................................. 18,2 21,9 1,8 3,2 20,0 25,1 8,8 12,8
Suðurland................................... 22,1 25,0 1,8 3,1 23,9 28,1 7,4 11,1
Allt landið................................ 21,2 24,4 2,7 5,0 23,9 29,4 14,5 20,3
638 FREYR
17. SEPTEMBER 1990