Freyr - 01.09.1990, Side 31
2. tafla. Hlöður og heyfengur árið 1988
Þurrhey Vothey
Hlööurými Heyfengur Hlöðurými Heyfengur
þús. m3 þús. m' þús. m3 þús. m’
Reykjanes....... 51,3 56,5 5,1 6,8
Vesturland .... 440,5 427,5 67,5 60,9
Vestfirðir...... 118,6 100,6 75,7 58,4
Noröurland vestra 528,8 528,8 69,2 54,4
Norðurlandeystra 673,3 643,8 32,4 33,1
Austurland .... 356,4 261,7 27,8 38,8
Suðurland....... 1085,7 934,3 73,6 73,8
Alltlandið .... 3254,5 2953,1 351,4 326,4
Bsb. Kjalarnesþings eru margar
jarðir og þar með mörg tún, sum
stór, að hverfa undir þéttbýli og
því er túnstærð oftalin í spjaldskrá
Búnaðarfélagsins og trúlega er
hvergi annars staðar á landinu að
finna jafnmikið af óskráðum hlöð-
um og þar, það eru hlöður hesta-
manna og sauðfjáreigenda.
Hlöður, sem reistar höfðu verið
frá árinu 1958, rúmuðu árið 1978
um 73% af heyfengnum en 95%
árið 1988, ef reiknað er með að
uppskera sé 2000 FE af hverjum
ha. Það sem á vantar hefur verið
geymt í hlöðum, sem eru frá því
fyrir 1958 eða það hefur verið
geymt í heyjum úti.
Árið 1978 voru hlöður samtals
3087 þús. rúmmetrar en heyfengur
3630 þús. rúmmetrar og 1988 var
hlöðurýmið 3910 þús. rúmmetrar
en heyfengur 3279 þús. m3. Árið
1978 hefur heyfengur því verið 17
% meiri en rúmaðist í hlöðum
byggðum eftir 1958, en 1988 vant-
aði 19% upp á að heyin fylltu allar
hlöður.
Af þessum tölum má draga þá
ályktun að í heild eigi íslenskir
bændur nú nóg hlöðurými fyrir
þann heyfeng sem þeir geta fengið
af túnum sínum í meðalárferði.
Þessar tölur segja hins vegar ekk-
ert um stöðu einstakra jarða.
Hlutfall þurrheys-og
votheysverkunar
Eins og fram kemur í 1. töflu hér
að framan hefur hlutdeild votheys-
rýmis í hlöðum aukist frá árinu
1978 til 1988. Að meðaltali yfir
landið hefur votheysrýmið vaxið
úr 11,4% í 16,6% en skyldi vot-
heysverkun hafa vaxið að sama
skapi? í forðagæsluskýrslum kem-
ur fram að 1978 voru 8,6% hey-
fengsins vothey en 18,1% árið
1988. Votheysverkun hefur aukist
enn meira en votheysrými. Þar
kemur til sögu votheysverkun í
rúlluböggum.
í 2. töflu eru tölur úr skrám
Búnaðarfélagsins um byggðar vot-
heyshlöður og úr forðagæslu-
skýrslum um heyfeng árið 1988.
Þar vekur athygli hve votheysverk-
un á Austuríandi er talin miklu
meiri 1988 en votheyshlöður gefa
tilefni til, og þar hlýtur skýringin
að vera rúllubaggavothey. Vot-
heysverkun er einnig meiri á
Reykjanesi, Norðurlandi eystra og
Suðurlandi heldur en hlöðurými
segir til um af sömu ástæðum. Töl-
urnar segja hins vegar ekkert um
það, hvort rúllubaggagerð þar er
meiri en á Vesturlandi, Vestfjörð-
um og Norðurlandi vestra. Á þeim
stöðum er hins vegar til hlöðurými
til að verka allt það vothey, sem
þar er verkað, en hvort heyið er f
rúllum í hlöðunum eða ekki, kem-
ur ekki fram í skýrslunum.
Súgþurrkun
13. töflu kemur fram, hvernig ætla
má að hlutfallið sé milli flatarmáls
hlöðubygginga og súgþurrkunar-
kerfa árin 1978 og 1988. Eftir þess-
um tölum að dæma hafa hlöður án
súgþurrkunar verið flestar að finna
á Norðurlandi vestra og Suður-
landi árið 1978 en árið 1988 er
komið kerfi í allar hlöður eða
a.m.k. hefur verið sett kerfi í jafn-
mikið eða meira af hlöðum og
byggt var frá 1958. Þar sem %-
talan fer yfir 100 er það vegna þess
að súgþurrkunarkerfi hafa verð
sett í hlöður sem reistar voru fyrir
1958.
Gera má ráð fyrir að nú séu
súgþurrkunarkerfi í velflestum
þurrheyshlöðum bænda og trúlega
er blásari eða aðstaða til að blása í
heyið í þeim flestum, þótt það
komi hins vegar ekki fram í
Stærð súgþurrkunarkerfa árin 1978 og 1988.
Þurrheys- Súgþurrkunar- Súgþurrkunarkerfi
hlööur m2 kerfi nr sem % af þurrheyshlöðu
1978 1988 1978 1988 1978 1988
Reykjanes......................... 9.149 10.239 8.742 9.473 95,6 108,1
Vesturland....................... 72.205 88.099 76.130 97.618 105,4 110,8
Vestfirðir....................... 21.331 23.724 22.962 25.349 107,6 106,8
Norðurland vestra................ 92.287 105.753 78.559 106.269 85,1 100,5
Norðurland eystra............... 108.398 134.661 112.260 143.769 103,6 106,8
Austurland....................... 57.905 71.287 59.647 72.673 103,0 102,1
Suðurland ...................... 185.491 217.137 173.227 218.739 93,4 100,7
Allt landið................ 547.235 650.899 531.527 673.890 97,1 103,5
17, SEPTEMBER 1990
Freyr 639