Freyr - 01.09.1990, Side 34
Magnús Sigsteinsson var ráðinn
forstöðumaður Byggingaþjónustu
Búnaðarfélags íslands frá 1. júní
sl. Til hennar var stofnað í fram-
haldi af því að ákveðið var að
Byggingastofnun landbúnaðarins
yrði lögð niður.
Magnús er jafnframt bygginga-
og bútækniráðunautur hjá Búnað-
arfélagi íslands.
Bjarni E. Guðleifsson, fram-
kvæmdastjóri Ræktunarfélags
Norðurlands, sem jafnframt hefur
unnið að kalrannsóknum hjá
Rannsóknastofnun landbúnaðar-
ins við Tilraunastöðina á Möðru-
völlum, mun frá 15. ágúst á þessu
ári vinna að slíkum rannsóknum
við Tilraunastöðina á Vágónes við
Bodö í Norður-Noregi um eins árs
skeið. Jafnframt hefur hann sagt
lausu starfi sínu sem framkvæmda-
stjóri Ræktunarfélags Norður-
lands frá sama tíma.
Sigurður Sigvaldason hefur verið
ráðinn verkfræðingur hjá Bygg-
ingaþjónustu Búnaðarfélags ís-
lands. Hann var áður verkfræðing-
ur hjá Byggingastofnun landbún-
aðarins.
Guðbjörn Árnason var ráðinn hag-
fræðingur hjá Stéttarsambandi
bænda frá 1. júní sl. í fjarveru
Gunnlaugs A. Júlíussonar.
Guðbjörn er frá Teigi í
Fljótshlíð, fæddurárið 1960. Hann
lauk stúdentsprófi frá Framhalds-
deild Samvinnuskólans árið 1981
og Dipl.lng. Agrar-prófi í land-
búnaðarhagfræði frá Universitát
Hohenheim í Stuttgart vorið 1990.
Lokaritgerð hans fjallaði um þró-
un framleiðslu og eftirspurnar á
kjöti á íslandi á tímabilinu 1970-
1988.
Sambýliskona hans er Hlín
Hólm, llugumferðarstjóri, frá
Keflavík.
Eysteinn Traustason hefur verið
ráðinn tækniteiknari hjá Bygginga-
þjónustu Búnaðarfélags íslands.
Eysteinn ólst upp á Hvanneyri
en foreldrar hans eru Jakobína
Jónasdóttir og Trausti Eyjólfsson
kennari við Bændaskólann þar.
Eysteinn Iauk prófi í tækniteikn-
un frá Fjölbrautaskóla Vestur-
lands á Akranesi árið 1987.
Helgi Jóhannesson tók við starfi
ráðunautar hjá Sölufélagi garð-
yrkjumanna frá 1. maí 1990. Starf
hans er nýtt hjá fyrirtækinu og er
verkefni hans að leiðbeina fram-
leiðendum garðávaxta og gróður-
húsaafurða sem eru félagsmenn
SFG. Einnig annast hann gæðaeft-
irlit hjá fyrirtækinu.
Helgi var áður kennari við
Garðyrkjuskóla ríkisins á Reykj-
um.
642 FREYR 17.SEPTEMBER 1990