Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1990, Síða 36

Freyr - 01.09.1990, Síða 36
Ný landbúnaðarstefna í Svíþjóð Sænskur landbúnaður markaðsvæddur með lögum frá Riksdagen Sœnska þingið samþykkti í júní sl. að markaðsvœða landbúnaðinn með róttœkum breytingum á landbúnaðarkerfinu. Ætlað er að 10-15 þúsund bændur bregði búi á nœstu fimm árum en það er sá tími sem það á að taka að laga sœnskan landbúnað að nýja kerfinu. Nú vinna 200 þúsund manns við landbúnað í Svíþjóð. Með þessari uppstokkun á sænska landbúnaðarkerfinu á að draga saman framleiðslu og útflutning á búvöru, mest á korni og mjólk, og hvetja um leið til annarrar fram- leiðslu, t.d. skógræktar. Alls verður 13,6 milljörðum sænskra króna varið til þess að aðhæfa landbúnaðinn markaðs- kerfinu á fimm árum. Af því fara kr. 3,9 milljarðar til þess að styrkja bændur til nýbreytni í búskap og er þá helst rætt um skógrækt og land- búnað sem lýtur að umhverfis- vernd og lífrænum orkubúskap. Markaðsaðlögun Með því að leggja niður útflutn- ingsbætur og framleiðslukvóta telja sænsk stjórnvöld að hægt sé að halda matvöruverði niðri og aðhæfa landbúnaðinn markaðn- um. Víðtæk samstaða náðist á sænska þinginu um þessa nýju landbúnaðarstefnu, nema að Græningjar telja að lögin brjóti í bága við stefnu þeirra í umhverfis- og hollustuverndarmálum. Sam- kvæmt lögunum á að draga úr hefðbundinni búvöruframleiðslu og gera sænskan landbúnað sam- keppnishæfan við erlendan og framleiðslan verður aðhæfð fram- boði og eftirspurn. Fénu, 13,6 milljörðum sænskra króna, verður varið til þriggja meginverkefna: 1) Að auðvelda rosknum bænd- um að komast á eftirlaun. 2) Að bæta bændunt upp tekju- tap sem þeir verða fyrir þegar framleiðsla þeirra dregst saman vegna minnkandi útflutnings. 3) Að styðja bændur til þess að stunda nýjar búgreinar. Talið er að leggja þurfi niður hefðbundinn landbúnað á sjött- ungi ræktaðs lands eða 500 þúsund hekturum í Svíþjóð til að ná jafn- vægi í búvöruframleiðslu. Þegar eftir næstu áramót verða bændum greiddar bætur eftir flat- armáli ræktunarlands. Þær fara síðan lækkandi og lýkur um áramót 1994-1995. Þá hljóta bændur, sem fara út í skógrækt eða framleiðslu sem beinist að lífræn- um orkubúskap, sérstaka styrki til áramóta 1993-1994. Nýju lögin heimila líka styrki til að halda jörð- um trjá- og skóglausum. Það er kallað að „viðhalda sveitalands- lagi“ (hálla jordbrukslandskapet öppet). Með því að leggja niður mjólk- urkvóta og hætta að greiða útflutn- ingsbætur á mjólk er talið að mjólkurverð lækki um tíma um 20—30% og að mjólkurkúm fækki um 160þúsundniðurí400þúsund. Hætt verður líka að greiða byggða- styrk, nema í Noður-Svíþjóð, af ótta við að land fari þar annars í eyði. Innflutningsvemd verður áfram. Jöfnunargjald verður áfram lagt á innfluttar búvörur til Svíþjóðar. Þess vegna leiðir nýja landbúnað- arstefnan ekki til lægra matvöru- verðs nema innlendar vörur lækki fyrst. Sænskirbændur vonsviknir. Breytingar á landbúnaðarkerfinu hafa um árabil verið á dagskrá í Svíþjóð í viðræðum rnilli stjórn- valda og LRF, stéttarsambands sænskra bænda. Forystumenn LRF segjast hafa orðið fyrir von- brigðum með nýju lögin og gagn- rýna yfirvöld fyrir að hafa farið of geyst í sakirnar á óljósum forsend- um. Það sé með öllu ófyrirséð til hvers nýja stefnan leiði og óvíst hvernig síðan verði brugðist við. Sænskir bændur telja að þessar að- gerðir valdi meira atvinnuleysi í þeirra röðum en ætlað er. Margir forystumenn sænskra bænda eru svartsýnir á að fimm ára áætlunin takist ef hætt verður með öllu að styrkja útflutning, því að það leiði til verðhruns á búvörum og upp- lausnar í landbúnaði. Aðrir benda á að siðferðissjónarmið vegi þungt og telja siðlaust að draga úr mat- vælaframleiðslu þegar þurrð sé á mat víða um heim. Byggl á heimildum frá Upplýsingaþjónuslu landbúnaðarins. 644 FREYR 17. SEPTEMBER 1990

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.