Freyr

Volume

Freyr - 01.09.1990, Page 37

Freyr - 01.09.1990, Page 37
Landsmarkaskrá 1989 Markaglöggir menn hafa löng- um notið virðingar og verið eftir- sóttir á réttum og í fjárragi til þess að þekkja mörk og skera úr um vafamörk, og helst þá fé er dregið í úrtíning. Meira reyndi þó áður fyrr á þá íþrótt að vera minnugur á mörk þegar engar voru marka- skrár. Elstu þekktu markaskrár hér á landi voru handskrifaðar fyr- ir tæpum tvö hundruð árum fyrir einstaka sveitir, síðar fyrir sýslur. Líklegt er þó að lengi áður hafi hreppstjórar átt skrár um mörk í næsta nágrenni sínu þó að ekki séu þekktar heimildir um það. Ein- staka menn hafa orðið landsfrægir fyrir það að þekkja og muna öll mörk í sinni sýslu og jafnvel hinum næstu. Dæmi um það er Marka- Leifi. Búnaðarfélag íslands hefur nú gefið út fyrstu landsmarkaskrána, undir ritstjórn dr. Ólafs R. Dýr- mundssonar. Þetta er væn bók að vöxtum með stinnum kápuspjöld- um, á stærð við símaskrána. í fróðlegum formála sem Ólafur skrifar fyrir bókinni drepur hann nokkuð á það sem vitað er um sögu eyrnamarka sauðfjár. Þar segir m.a.: „Árið 1855 komu fyrstu prentuðu markaskrárnar út, hafa þær haldist með svipuðum hætti síðan og verið endurskoðaðar og gefnar út all reglulega. Mörkum mun hafa fjölgað mjög á síðari hluta 19. aldar og um og upp úr síðustu aldamótum komu fram ýmsar tillögur um skýrari reglur varðandi skráningu, birtingu og notkun búfjármarka.“ Síðan hefur verið bætt úr mörgu í þessum efnum, m.a. með því að samræma markaheiti og marka- skrár og að útrýma sammerking- um. Þegarmarkaskrá 1988varundir- búin var Iögð áhersla á að fella LANDSMARKASKRÁ 1989 Ólalur R. Dýrmundsson hafði umsjón með útgáfunm Ulgefanði Bunaðartelag Islands Reykiavik. 1990 niður síðustu óleyfilegar sammerk- ingar í landinu og unnu marka- verðir gott starf við það. Getur Ólafur R. Dýrmundsson þess að flestir markaeigendur hafi þar sýnt góðan skilning. Markanefnd skar úr um á annað hundrað mál sem til hennar var vísað. Öll búfjármörk á landinu voru skráð í tölvu hjá Búnaðarfélagi íslands og var nú unnt að gefa þau út í einni skrá. I þessari fyrstu landsmarkaskrá eru alls 20941 markanúmer, en oftast eru margir eigendur að sama marki, enda þá búsettir víðsfjarri hver öðrum. Eins og í markaskrám frá 1988 má sjá framan við einstaka mark ýmist táknið * eða F. Hið fyrra merkir að eiganda þess sé heimilt að nota það fyrir stórgripi en ekki á sauðfé. F táknar að eigandi þess megi hafa markið á fullorðnu fé en ekki marka lömb undir það. Nýmæli er það að í landsmarkaskránni að birt er bæja- og staðaskrá með númer- um allra marka, skráða á viðkom- andi bæ eða stað, án tillits til eig- anda. Hins vegar er þar ekki nafnaskrá markeigenda eins og tíðkast í sýslu- og svæðaskrám og mun ýmsum eftirsjá að því. í lands- markaskránni er skrá yfir sýslutákn og númer allra sveitarfé- laga í landinu. Þá eru þar skráð markaheiti sem voru samræmd í reglugerð um mörk og takmörkun á sammerkingu búfjár 1987. Mark- heiti verða nú eins um allt land. Þannig er hamarskorið nú t.d. nefnt hamrað, stýfaður helmingur, stýft af; hálft af og vaglskorið er nefnt stig o.s.frv. Enginn vafi er á að hagkvæmt sé að samræma markaheiti, en tungan verður svolítið fátækari á eftir þegar gömlu heitin gleymast. Töflur eru yfir markaskrár 1988 og marka- verði 1989, ennfremur fyrir svo- nefnt markavarðamörk, en það eru þau mörk sem eru í vörslu markavarða. Þá eru birt í bókinni Lög um afréttamálefni, fjallskil o.fl. og Reglugerð um búfjármörk, markaskár og takmörkum á sam- merkingum búfjár. Þar hefði þurft að vera sérkort yfir allar sauðfjár- veikivarnagirðingar, en kort yfir litamerkingu búfjár á íslandi sýnir þær ekki allar. I heild er þessi fyrsta lands- markaskrá myndarlegt rit og vand- að og þeim sem að því hafa unnið og útgefanda til sóma. Skráin er 432 bls., hún fæst hjá Búnaðarfé- lagi íslands og kostar 4000 kr. J.J.D.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.