Freyr - 01.09.1990, Side 38
Uraldarsögu Búnaðarfélags Þingeyrarhrepps
ÚR
ALDARSÖGU
BÚNADARFÉIAGS
ÞINGEYRARHREPPS
1889-1989
Út er komið ritið „Úr aldarsögu
Búnaðarfélags Þingeyrarhrepps,
1889-1989“ og ber heiti þess með
sér um hvað það fjallar. Bjarni
Guðmundsson, kennari á Hvann-
eyri, sem er frá Kirkjubóli í Þing-
eyrarhreppi, tók efnið saman úr
fundargerðarbókum og reikning-
um félagsins sem og ýmsum fleiri
gögnum, þ.e. gögnum fleiri félaga í
hreppnum, jarðabótaskýrslum,
bréfasafni Sigurðar Sigurðarsonar,
ráðunautar hjá Búnaðarfélagi
íslands, sem var fyrsti starfsmaður
félagsins, o.fl.
Greint er frá helstu verkefnum
félagsins og ýmsum málum sem
það hefur fjallað um á aldarlöng-
um ferli sínum. Það er jafnframt
aldarspegill um það hvað um var
að vera í íslenskum landbúnaði á
hverjum tíma. Af einstökum verk-
efnum er jarðyrkja og ræktun mest
áberandi í starfi félagsins, þar sem
fyrst var beitt hestum fyrir jarð-
yrkjuverkfæri, síðar dráttarvélum
og loks jarðýtum. Þá hafa kynbæt-
ur og bætt meðferð búfjár verið
verkefni félagsins frá upphafi.
Hér eru ekki tök á að telja upp
öll þau fjölþættu verkefni sem fé-
lagið hefur haft á sinni könnu, en
með beinum tilvitnunum í fundar-
gerðir má greina það andrúmsloft
sem ríkti á hverjum tíma; uppgang
og framfarahug, kreppu, fylgifiska
heimstyrjalda, veltiár og samdrátt-
artíma í búskap sem gengið hafa
yfir umdæmi Búnaðarfélag Þing-
eyrarhrepps eins og annars staðar
á landinu.
Ritið er 32 bls., prýtt myndum
og súluritum. Það er á boðstólum
hjá umsjónarmanni þess, Bjarna
Guðmundssyni a Hvanneyri.
M.E.
BÆNDUR
Tœkin sem þið getið treyst
ELFA
GÆÐA TÆKI
Valin úrvals
merki með
áratuga reynslu
ELFA-OSO ELFA-CTC
Hitakútar úr ryðf ríu stáli Fjölbrennslukatlar - Olíukatlar -
Góð einangrun - Frábœr ending Rafmagnskatlar. Mjög góð
Stœrðir 30-50-120-200-300 Itr. hitanýting.Tœknileg ráðgjöf.
(®XS) 0<SX®XS)
ELFA-VORTICE
Loftrœstviftur fyrir gripahús.
Einnig fyrirliggjandi viftur fyrir
íbúðarhús. - Margar gerðir.
Blomberg Heimilistæki
Eldavélar - (sskápar - Gufu-
gleypar-Þvottavélar-Þurrkar-
arogfleira.
Hagstœtt verð og góðir greiðsluskilmálar.
Leitið upplýsinga.
sy/ Einar Farestveit & Co. hf.
Borgartúni 28, sími (91) 622900.