Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.1990, Side 39

Freyr - 01.09.1990, Side 39
Fréttabréf veiðistjóra Út er komið 8. tbl. Fréttabréfs veiðistjóra, 6. árgangur, en útgáfa þess hefur legið niðri um hríð af ýmsum ástæðum. Samkvæmt lögum um hið ný- stofnaða umhverfisráðuneyti flyst embætti veiðistjóra frá Iandbúnað- arráðuneyti til umhverfisráðuneyt- is. Páll Hersteinsson veiðistjóri getur þess í formála að hann telji þann flutning réttlætanlegan á þeirri forsendu að embættið hljóti smám saman að þjóna fleirum en bændum, þó að sú þjónusta verði alltaf mikilvægurþáttur. Embættið vinni nú þegar fyrir fleiri atvinnu- vegi en landbúnað, t.d. fyrirtæki í fiskvinnslu, fiskeldi o.fl. Um aðgerðir til að hafa áhrif á stærð einstakra dýrastofna segir veiðistjóri að mikilvægt sé að gera sér grein fyrir því að embætti veiði- stjóra líti hlutlaust á stofna villtra dýra og að það hljóti að reyna að samræma hagsmuni bænda og at- vinnuveganna annars vegar og hagsmuni náttúrunnar hins vegar. Stundum fari þessir hagsmunir saman en ekki alltaf. Því fari fjarri að það séu ávallt hagsmunir nátt- úrunnar að allar tegundir skuli friðaðar og ekki séu það einu sinni alltaf hagsmunir viðkomandi stofns að vera friðaður, „þótt það séu að vísu hagsmunir viðkomandi einstaklings að vera ekki veiddur“. Veiðistjóri bendir á að tilfinn- ingasemi megi ekki ráða þegar ákvarða á veiðar og friðun og vísar til þess hvaða áhrif tilfinningasemi hefur haft á markað fyrir selskinn og um leið fyrir stjórn selveiða hér á landi. En jafnframt sé annars konar tilfinningasemi, þ.e.a.s. hat- ur, jafnvarasamur grunnur þegar ákveða skal stærð stofns. Hagnýtar dýrafræðirannsóknir hófust fyrir nokkrum árum hjá veiðistjóraembættinu og jukust með því að veitt var fé á fjárlögum þessa árs sérstaklega til þess að rannsaka það hve sílamáfur verpir víða á Suðurlandi og sömuleiðis að kanna yfirferð svartbaks og sílamáfs. Til þessa verkefnis var ráðinn Arnór Þórir Sigfússon líf- fræðingur. Um muninn á hagnýtum og grundvallarrannsóknum segir veiðistjóri að hagnýtum rannsókn- um sé einkum ætlað að svara spurningum um hagnýtar leiðir til þess að hafa áhrif á núttúruna í kringum sig en með grundvallar- rannsóknum sé reynt að skýra hvers vegna náttúran sé eins og hún er. í tilefni af átakinu „Norrænt um- hverfisár“ getur veiðistjóri þess að íslendingar hafi lengi ímyndað sér að þeir séu góðu börnin í umhverf- ismálum en það sé öðru nær. „Hér á landi eru frárennsli og sorpeyð- ing mjög víða í mesta ólestri“. Þetta verkar á stofnstærð og út- breiðslu máfa og hrafna og greiðir fyrir útbreiðslu skaðlegra gerla t.d. Salmonellu. Ný og mannúðleg aðferð við vinnslu yrðlinga á grenjum heitir grein eftir Einar Guðnason og Hrafnkel Karlsson, þar sem þeir segja frá reynslu sinni af því að nota bandarískar gildrur af gerð- inni Conibear 160-2. Páll Hersteinsson skrifar um nýtt hundahús veiðistjóraembætt- isins, einnig greinarnar Hlutfall mórauða og hvíta litarafbrigðisins í íslenska refastofninum og Máfar, hrafnar, búfé og salmonella. Þar segir m.a.: „Með því að hætta að laða til sín hrafna allan veturinn má einnig fyrirbyggja tjón á sauð- burði ...“ Sami höfundur ritar greinina Frjósemi refastofnsins. Þar varpar hann fram þeirri kenn- ingu að íslenski refurinn sé upp- runalega kominn af frjósamari stofni refa en hann er nú og rök- styður hana. Páll ritar einnig fleiri greinar í Fréttabréfið. Arnór Þórir Sigfússon líffræðingur, sem hefur sérhæft sig í lifnaðarháttum sjó- fugla, ritar greinarnar Merkingar á máfum, Greiningar á íslenskum máfum og Skráning máfavarpa. J.J.D. Lausaganga skemmir klaufir nautgripa. hefur Nordisk Jordbrugsforskning eftir sænskum dýralækni. Krister Berg í Skörum. Segir hann að það þurfi að lóga mörgum mjólkurkúm af þeim sökum í Svíþjóð. Ástæðan eru viðbrigði að fara af bási á gróft, steinsteypt gólf eða á steypta rimla.

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.