Freyr

Volume

Freyr - 01.11.1990, Page 7

Freyr - 01.11.1990, Page 7
Kartöflurækt á yfirstandandi ári Enn á ný hefur kartöflurækt orðið fyrir áfalli hér á landi. Að þessu sinni er það sjúkdómur- inn kartöflumygla sem skaðanum veldur. Þessi sjúkdómur er þekkur hér á landi en hefur ekki gert vart við sig í 37 ár eða síðan sumarið 1953. Eins og menn muna voraði vel á sl. vori eftir harðan og snjóþungan vetur. Einkumfór vorið vel af stað sunnan- og suðvestanlands en kuldakast gerði á Norðurlandi snemma í júní. Um 10 júlí breytti til um veður og hlýnaði þá norðanlands með miklu sólfari, en syðra var dumbungur með hlýindum. Uppskeruhorfur fyrir kartöflur voru því góðar um allt land og hófst sumarsala úr görðum sunnanlands í lok júlí sem er með fyrsta móti, en gerist í meðalár- ferði um miðjan ágúst. Hin öra spretta hélt áfram allan ágúst og hófust uppskerustörf í Þykkvabæ og í lágsveit- um Arnessýslu um mánaðamótin ágúst/sept- ember. Sigurgeir Ólafsson plöntusjúkdóma- fræðingur á Rala hafði bent á að veður eins og ríkti í ágúst, rakt og hlýtt, gæti gefið vaxtarskil- yrði fyrir kartöflumyglu. Hins vegar var svo langt um liðið frá því myglan hafði síðast valdið usla að menn gáfu því ekki mikinn gaum hvort hún væri í uppsiglingu. Snemma í september ræktaði Sigurgeir Ólafsson hins vegar kartöflumyglu úr sýnum af kartöflugrasi úr Þykkvabæ og um sama leyti kom sjúkdómurinn þar í ljós í nýuppteknum kartöflum. í framhaldi af því var stöðvuð upptaka frá og með 10. september en þá var búið að taka upp 2000-2500 tonn í sveitinni sem er um þriðjungur til fjórðungur af áætlaðri uppskeru þar á þessu ári. I framhaldi af því var ákveðið að úða garð- ana með efni sem drepur kartöflugrösin, Reglone, og var send flugvél til Danmerkur til að sækja það. Efninu þarf að úða í sæmilega þurru veðri og eftir það þurfa að líða 8 dagar uns upptaka getur hafist. Auk þess þola myglugróin ekki frost en dagana 17.-19. sept- ember gerði harðar frostnætur. Þar með var nokkuð tryggt að gróin hafi drepist. Vonast er til að þær kartöflur sem teknar voru upp eftir að uppskera hófst að nýju séu ekki í miklum mæli smiðaðar af myglu. Hins vegar má gera ráð fyrir að í þeim sé eitthvað af frostskemmdum, auk þess sem stöngulsýki þreifst vel við það veðurfar sem ríkti á liðnu sumri við suðurströndina. Samkvæmt því sem best er vitað takmarkast útbreiðsla kartöflumyglunnar við lágsveitir í Árnes- og Rangárvallasýslum. Hún hefur ekki verið staðfest í Hrunamannahreppi, Austur- Skaftafellssýslu, Eyjafirði né á Suðvesturlandi vestan Hellisheiðar, en á þessum svæðum öll- um er veruleg kartöflurækt. Reyndar er talið að engin skilyrði séu fyrir kartöflumyglu norð- anlands, þar sem þar fer ekki saman hlýtt veður og hátt rakastig. Hvergi á landinu er kartöflurækt jafn mikil- væg fyrir afkomu bænda og í Þykkvabæ en þar varð skaðinn einnig mestur að þessu sinni. Þó var hann afar mismikill og tilfinnanlegastur hjá þeim bændum sem höfðu tekið mest upp áður en hlé var gert á upptöku, hinn 10. september. Staða kartöflubænda hér á landi hefur verið afar erfið undanfarin ár eða frá því núgildandi búvörulög tóku gildi árið 1985 og Grænmetis- verslun landbúnaðarins var lögð niður. Meðan það fyrirtæki var starfandi var skipulag sölunn- ar á einni hendi en eftir það varð salan skipu- lagslaus og frjáls. Það hefur sýnt sig að kart- öfluframleiðendur hafa ekki kunnað með það frelsi að fara og útkoman orðið að hver treður niður skóinn af öðrum með undirboðum. Neytendur hafa þó ekki notið góðs af, því að milliliðakostnaður hefur aukist stórlega frá því skipulag sölunnar var á einni hendi. (Sjá grein Agnars Guðnasonar: „Markaðsmálin og kart- öflubændur“ íFrey, 7. tbl. 1989). Afleiðing þess samstöðuleysis sem ríkt hefur meðal kartöfluframleiðenda síðustu ár er að fjárhagsstaða þeirra hefur hrunið, einkum hjá þeim sem stunda þessa búgrein einvörðungu. Síðustu tvö ár hefur hagur kartöflubænda Frh. á bls. 848. 21, NÓVEMBER 1990 Freyr 831

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.