Freyr - 01.11.1990, Page 36
Á
fundi Framleiðsluráðs landbúnaðarins 25. október sl. gerðist m.a. þetta:
Tilraunaráð Rala.
Akveðið var að tilnefna Hörð
Harðarson í Laxárdal í Tilrauna-
ráð Rala til næstu fjögurra ára.
Varamaður hans var tilnefndur
Guðmundur Þorsteinsson á
Skálpastöðum.
Slátrun utan fullvirðisréttar.
Fjallað var um samþykkt Fram-
kvæmdanefndar búvörusamninga
sem heimilar sláturleyfishöfum að
taka við fullorðnu fé til slátrunar
utan fullvirðisréttar samkvæmt
sérstökum reglum. Fram komu
mótmæli við umræddri heimild
vegna hættu á ruglingi slíks kjöts
við kjötframleiðslu innan fullvirð-
isréttar.
Samþykkt var að beina þeim til-
mælum til framkvæmdastjóra að
fast verði fylgt eftir þeim reglum
sem settar hafa verið af Fram-
kvæmdanefnd búvörusamninga
varðandi meðferð kjöts af full-
orðnu fé utan réttar.
Leiga á fullvirðisrétti.
Fjallað var urn leigu á fullvirðis-
rétti til framleiðslu mjólkur og
kindakjöts. Samþykkt var að
leggja til við landbúnaðarráðherra
að eftirfarandi reglur um þessa
leigu gildi á yfirstandandi verðlags-
ári.
Fyrir mjólkurframleiöslu:
„Framleiðsluráð landbúnaðarins
leggur til að leigugjald fyrir full-
virðisrétt til mjólkurframleiðslu á
verðlagsárinu 1990-1991, skv. 17.
gr. reglugerðar nr. 287/1990, verði
9% af grundvallarverði mjólkur 1.
rnars 1991. Þó er hverju búnaðar-
sambandi heimilt að ákveða hærra
leigugjald, allt að 12%.
Af greiðslu til leigusala er bún-
aðarsamböndum heimilt að taka
umsýslugjald, 0,25% af grundvall-
arverði mjólkur.
Við framkvæmdina verði miðað
við eftirfarandi tímamörk:
1. janúar 1991: Umsóknir skulu
hafa borist frá leigutökum til að
koma til greina.
1. febrúar 1991: gengið verði frá
leigusamningi innan þess tíma.
10. mars 1991: Eindagi greiðslu
frá leigutaka.
1. apríl 1991: Eindagi greiðslu til
leigusala.
Hafi leigutaki ekki greitt á ein-
daga er búnaðarsambandi heimilt
að leigja reftinn öðrum.“
Fyrir sauðfjárframleiðslu:
„Framleiðsluráð landbúnaðarins
leggur til eftirfarandi leigugjald
fyrir fullvirðisrétt til sauðfjárfram-
leiðslu verðlagsárið 1991-1992:
Leigugjald fyrir hverja ærgildis-
afurð verði kr. 600, með sem
grunnverð á einu kg af dilkakjöti í
fyrsta gæðaflokki A í haustgrund-
velli 1990. Pað taki breytingum
skv. framreiknuðu verði sauðfjár-
afurða til 1. júní 1991 m.v. sama
gæðaflokk af dilkakjöti. Leigusali
greiði umsjónaraðila (búnaðar-
sambandi) 3% af gjaldinu í um-
sýsluþóknun.
Við framkvæmdina verði miðað
við eftirfarandi tímamörk:
1. mars 1991: Umsóknir skulu
hafa borist frá leigutökum til að
koma til greina.
1. apríl 1991: Gengið verði frá
leigusamningum innan þess tíma.
31. ágúst 1991: Eindagi greiðslu
frá leigutaka.
15. okt. 1991: Eindagi greiðslu
til leigusala.
Hafi leigutaki ekki greitt á ein-
daga er búnaðarsambandi heimilt
að leigja réttinn öðrum.“
Reglugerð um framleiðslu
sauðfjárafurða 1991-1992.
Kynnt var reglugerð nr. 407/1990
um fullvirðisrétt til framleiðslu
sauðfjárafurða verðlagsárið
1991-1992. Engar breytingar eru á
reglum um úthlutun fullvirðisrétt-
ar til einstakra framleiðenda frá
fyrri reglugerð um sama efni.
Vegna þess að þessi reglugerð gild-
ir fyrir framleiðslu síðasta verð-
lagsárs núverandi búvörusamn-
ings, hverfa úr reglugerðinni heim-
ildir til að færa rétt frá eftirfylgj-
andi verðlagsári til verðlagsársins
sem um ræðir, 1991-1992.
Til sölu
Velger heybindivél AP53,
árgerð 1985, og dragtengd
múgavél, rakar til hœgri,
árgerð 1987.
Upplýsingar í síma
93-41256.
JARÐAKAUP/LEIGA
Óskum eftir jörð sem liggur að sjó til kaups eða leigu.
Fullvirðisréttur ekki skilyrði. Til greina kemur að seljandi/
leigjandi haldi búsetu á jörðinni eftir nánari samkomu-
lagi.
Upplýsingar í síma 95-35759.
860 Freyr
21, NÓVEMBER 1990