Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.11.1990, Qupperneq 14

Freyr - 01.11.1990, Qupperneq 14
Auður Björnsdóltir. Gott að koma í Fagraskóg Auður Björnsdóttir í Fagraskógi tekin tali llún er fœdd og uppalin í Ölduhrygg í Svarfaðardal, dóttir Björns Jónssonar frá Hóli fram og Þorbjargar Vilhjálmsdóttur frá Bakka þar ísveit. Vilhjálmur Einarsson á Bakka, afiAuðar, var einn mesti framkvœmda- ogframfarabóndi íSvarfaðardal á sinni tíð. Hún giftist Magnúsi Stefánssyni í Fagraskógi árið 1956. Fannst þér viðbrigði að koma utan úrSvarfaðardal og hingað inneftir? Já, það voru þó nokkuð mikil við- brigði og það tók mig langan tíma að sætta mig við sjóinn og eiga heima svona nálægt honum. En þegar ég er nú búin að taka hann í sátt. þá mundi ég ekki geta hugsað mér að breyta til ineð það. Varekki líka átakfyrirþig kornunga stúlkuna að taka við húsmóðurhlutverki á þessu landsfræga bóli? 838 FREYR Jú, á vissan hátt. Það var líka að mörgu leyti öðruvísi heimilisbrag- ur hérna en ég hafði vanist og mikil viðbrigði fyrir mig, unga stúlkuna, að koma inn í heimilið. Á þeim tíma leituðu margir vegfarendur hingað í ófærð og vondum verðum. Pað hefur minnkað mjög mikið með bættum samgöngum. Eg minnist þess að oft heyrði ég um það talað heima í Svarfaðardal hvað fólki þótti gott að koma í Fagraskóg þegar eitthvað bar út af í ferðum til Akureyrar og þá ekki síst svarfdælsku mjólkurbílstjórunum sem áttu hér víst athvarf í erfiðum vetrarferðum Þetta var svona þeirra Varmahlíð, má segja, sagði Auður og hló. Finnst þér að staða húsfreyju í sveit hafi breyst í þinni tíð? Eg veit ekki hvort hún hefur breyst svo mikið, ég held ekki. Það af- skaplega mikilvægt fyrir hvert heimili að hafa góða húsfreyju þó ég sé ekki að segja að ég hafi verið 21, NÓVEMBER 1990

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.