Freyr - 01.11.1990, Page 33
áður en not verða fyrir þau á með-
alstóru íslensku búi.
Nú er komin á markað aðferð
frá Alfa Laval, B.E.S.T. test, sem
er ennþá auðveldari í notkun en
þær aðferðir sem ég hef séð notað-
ar hingað til. Helstu kostir hennar
eru þeir að aðeins þarf að blanda
saman efnum á sérstaklega gerðri
glerplötu og bíða í svolitla stund
eftir niðurstöðu. Hvorki þarf að
skola né taka tíma eins og í öðrum
prófum. Aflesturinn er auðveldur,
því að aðeins þarf að greina hvort
mjólkin hefur yst eða ekki, saman-
buröarsýni er óþarft. Hafi mjólkin
yst er kýrin ekki með fangi.
B.E.S.T. test krefst heldur meiri
tækjabúnaðs í upphafi en önnur
próf, því að mælingin er fram-
kvæmd á hitaborði við 34-40uC.
Hitaborðið er selt í handhægri
tösku og því fylgir pípetta til að
nota við blöndun á efnum og
mjólk. f>að er því meiri stofnkostn-
aður við þessa aðferð en aðrar
aðferðir og efnin hafa takmarkað
geymsluþol eins og í öðrum
prófum. Hins vegar eru efnin
drýgri vegna þess að þau rýrna
ekki vegna samanburðarsýna.
Lokaorð.
Eg hef kynnt notkun á hormóna-
prófum á námskeiðum fyrir bænd-
ur í vetur og mín reynsla er að
B.E.S.T. test er einfaldara og
áreiðanlegra í meðförum en önnur
slík próf sem ég hef kynnst. Hins
vegar hef ég ekki gert neinn sam-
anburð á áreiðanleika slíkra prófa,
en almennt má gera ráð fyrir að sé
prófið framkvæmt skv. leiðbein-
ingum og það sýni að kýrin sé
kálflaus er niðurstaðan mjög
áreiðanleg. Sé niðurstaðan sú að í
sýninu mælist fósturlífsvaki, getur
kýrin verið með fangi eða beiðslið
er ekki komið.
Líklega er áreiðanlegasta niður-
staðan úr fangprófi ef tekið er sýni
21 eða 22 dögum eftir sæðingu, en
til að geta endursætt kúna þyrfti að
taka sýni daglega frá 19. degi eftir
sæðingu.
KEÐjUR
Smíöum keöjur samdœgurs eftir óskum hvers
og eins. Eigum einnig keöjur ó lager.
Sendum hvert d land sem er.
GAP
G.Á. Pétursson hf
snjókeðjumarkaðurinn
Nútíðinni Faxafeni 14, sími 68 55 80
21, NÓVEMBER 1990
Freyr 857