Freyr - 01.06.1996, Síða 30
Iðngarðar í Durham handa þeim sem vilja koma upp nýrrí atvinnustarfsemi.
því sem hér hefur tíðkast, þ.e.a.s.
reist var veglegt húsnæði þar sem
hægt var að bjóða fyrirtækjum
aðstöðu og einhverja aðstoð í
tengslum við háskólann fyrstu árin.
Þessi tilraun gekk ekki vel framan
af, en eftir að ráðinn var sérstakur
rekstrarstjóri að þessum iðngörðum,
hefur hann í tengslum við há-
skólann það markmið að fylla þetta
húsnæði af atvinnustarfsemi, en
tekin er leiga starx í upphafi. Leigan
er hófleg og atvinnustarfsemin
hefur öruggt húsnæði til fimm ára,
en síðan þurfa þeir að fara út ef
dæmið gengur upp hjá þeim eða þá
að hætta að öðrum kosti. Þar á eftir
kemur samvinna við háskólann um
hugmyndir og verkefni og hægt er
að leita eftir þeim styrkjum og
stuðningi sem að í boði eru. Þetta
hefur á margan hátt gefist vel og á
sömu lóð standa síðan tilbúnir
sökklar að nýjum byggingum, ef
þeir sem koma nýjum atvinnurekstri
á fót kjósa að byggja á þessum stað.
Flestir sem þarna hafa stigið sín
fyrstu skref í atvinnurekstri og
tekist vel til, hafa síðar leitað í
leiguhúsnæði í borgum eða bæjum.
Þessi samvinna við Háskólann
virtist gefa góða raun og þama var
alltaf fullt. Því er ekki að leyna að
alls staðar er gríðarlegt stuðn-
ingskerfi við atvinnusköpunina og
hægt að nálgast styrki og stuðning
úr ýmsum áttum og ekki annað að
sjá en að það sé talið sjálfsagt og
eðlilegt þegar um nýsköpun og
nýbreytni er að ræða. Þó kom þarna
skýrt fram, eins og markmiðið er
hér heima líka, að styrkirnir og
stuðningurinn er ætlaður til að hefja
rekstur en ekki til frambúðar.
Frœðsla sem leið til
sjálfsbjargar
Eitt það sem Bretamir lögu mikla
áherslu á var að fræðsla og hjálp til
sjálfsbjargar væri raunhæfasta
leiðin. Því kom alltaf að því sama,
þ.e. hvað fræðslan væri nauðsynleg,
ekki hvað síst vegna þess að það er
frekar fólk með litla skólagöngu
sem hefur misst atvinnuna. Fólk
sem hefur lengri skólagöngu að
baki virðist frekar eiga aðra kosti.
Hitt kom líka fram að langskóla-
gengið fólk sem lendir í atvinnu-
leysi hefði í mörgum tilvikum
minna frumkvæði og tæki síður
áhættu. Fólk með stutta skólagöngu
að baki, sem fær hvatningu og
einhverja lágmarkstilsögn á sínu
sviði, sýnir oft áræðni og frum-
kvæði þegar út í eigin rekstur
kemur. Stundum sýnir þetta fólk
e.t.v. full mikið áræði og sumir
töldu að áræðið væri vegna þess að
fólkið skynjar ekki alla þá vankanta
sem eiga eftir að koma í ljós, en
þetta var talið á margan hátt kostur,
því að oft þyrfti ótrúlegt (jafnvel
óraunhæft) áræði til að hefja nýjan
atvinnurekstur.Ymis dæmi voru
tekin um fólk sem átti í einhverjum
erfiðleikum með að tileinka sér
hefðbundið nám, en reynist síðan
frábærlega vel þegar það fór að
spreyta sig á vinnu með höndunum
ekki síður en huganum og að standa
að eigin rekstri, þó að það hafi e.t.v.
ekki skilið allar stærðfræðiformúlur
í skóla.
Ferðaþjónusta
Þarna kom líka fram að þó að
ferðaþjónusta sé tiltölulega lítil á
þessu svæði, miðað við mörg önnur
á Bretlandseyjum, þá er hún
framtíðarverkefni í atvinnusköpun.
Til þess að örva ferðaþjónustu sem
atvinnugrein var talið nauðsynlegt
að hefja bætur á umhverfinu í
héraðinu. Það var á margan hátt hart
leikið eftir stórfelldan kolanámu-
rekstur í langan tíma og eins höfðu
stóru skipasmíðastöðvarnar við
ströndina leikið strandsvæðið, fjör-
una og sjóinn, mjög hart og var talið
að strandlengjan þarna væri sú
mengaðasta í Evrópu. Uppgröftur
úr kolanámunum myndaði hæðir
hér og þar og úr þeim skóf sand- og
kolaryk sem dreifðist yfir um-
hverfið. Nú er langt komið með að
jafna úr þessum uppgreftri, en
honum er dreift yfir landið og
heppilegur jarðvegur settur ofan á
og þetta grætt upp annað hvort með
grösum, trjágróðri eða jafnvel tekið
til búskapar. Þannig hefur landið
gjörbreytt um ásýnd, er nú með
ávala hóla og hæðir, grænar eða
kjarri vaxnar. Strandlengjan verður
hreinsuð þannig að hana sé hægt að
nýta til sjóbaða og skemmtunar. Því
má með sanni segja að umhverfis-
bætur séu atvinnuskapandi.
Öflugar bœjar- og
héraðsstjórnir
Þó að við værum þarna á vegum
Háskólans og kynntumst fyrst og
fremst aðferðum þeirra við að
kenna og þjálfa fólk til atvinnu-
sköpunar, var einnig farið í heim-
sókn til bæjar- og héraðsstjóma
svæðisins. Athyglisvert var að sjá
hversu öflugar og sjálfstæðar
sveitarstjórnirnar virðast vera og
gegna e.t.v. enn stærra hlutverki
heldur en við eigum að venjast.
Mjög stórt verkefni á þeirra vegum
er atvinnusköpun og nýbreytni og er
á því sviði unnið mjög markvisst
starf í samvinnu við Háskólann,
styrkjakerfi ESB og landsstjórnina.
Áhrif gamalla hefða
Það sem gerði endurreisnarstarfið
erfiðara en sums staðar annars
246 FREYR - 6. '96