Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.08.1999, Qupperneq 7

Freyr - 01.08.1999, Qupperneq 7
laug Stefánsdóttir garðrækt. Það eru einkum kartöflur, gulrófur og gulrætur, sem þau rækta. Sigur- laug er fædd og uppalin í Mjóa- nesi, Egill er Reyðfírðingur sem stundaði sjó, en þau búa í Fellabæ. Skjólbelti í Mjóanesi úr alaskavíði, gróðursett árið 1987. (Ljósm. Sig. BL). Þau hófú skjólbeltaræktina árið 1984, og sýnir meðfylgjandi tafla lengd beltanna og flatarmál svæð- isins, sem þau skýla. Elstu beltin eru úr viðju, en stóra beltið á jaðri svæðisins gegnt norðaustri, sem önnur myndin er af, er úr alaskavíði og var gróðursett árið 1987. Mjóanesbeltin eru að öðrum ólöstuðum hin fallegustu, sem ég þekki, enda var óvenjulega vel vandað til ræktunar þeirra með m.a. nákvæmri vökvun á við- kvæmasta skeiði plöntunnar eftir gróðursetningu og að sjálfsögðu vöm gegn illgresi, sem iðulega skipti sköpum um, hvort ræktunin Skjólbeltin á Stekknum i Mjóanesi. tækist eða ekki, áður en svarta plastið kom til. Vissulega verður því ekki neitað að Mjóanes er lognværari staður en Vallanes, ekki síst þama á Stekkn- um, og geta beltin af þeirri ástæðu litið betur út. En bæði þessi skjólbeltakerfí eru óræk sönnun þess hvilikir möguleikar em hreint tæknilega til ræktunar skjólbelta, hvort sem er á Héraði eða víða annars staðar. Að lokum endurtek ég hér það, (Ljósm. Sig. Bl. 11.08.98). sem ég sagði oft á ámm áður, að ræktun skjólbelta er lokaskrefíð í ræktunarbyltingu sveitanna fyrir hin hefðbundna íslenska landbún- að. Loks hillir undir að farið verður að taka það skref í alvöru með hin- um nýju svæðisáætlunum í skóg- rækt sem skýrgreina skjólskóga og skjólbelti sérstaklega, til viðbótar nytj askógræktinni. Altalað á kaffistofunni Sú kann á mér lagið Eftirfarandi vísu skrifaði Theódór Daníelsson, kenn- ari, frá Hvallátrum á Breiða- firði, í gestabók frænku sinn- ar, Maríu Gísladóttur frá Skáleyjum, og manns henn- ar, Leifs Kr. Jóhannessonar, fyrrv. ráðunautar og fram- kvæmdastjóra Lánasjóðs landbúnaðarins. Gefur sviö og sauöahupp, sú kantt á mér lagiö. Sœlt er aó koma og setjast upp svoita annað slagiö. Mjóanes Lengd í metmm Lengd samtals: 1406 Flatarmál í ha: 6,1 FREYR 9/99 - 7

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.