Freyr - 01.08.1999, Side 9
Teikning af hrossaskjóli, sjá texta. Nánari upplýsingar hjá
Byggingaþjónustu Bœndasamtaka Islands.
e. Ýmiss konar
upplýsinga-
skilta
f. Minniháttar
göngubrúa.
Um fyrsta
atriði skal taka
fram að ekki
skiptir máli hvort
gönguleiðin er
merkt með stik-
um eða vörðum.
Það er hins vegar
ekki veitt fram-
lag á að gera
gönguleiðina
greiðfærari með
ruðningi hennar
eða lagningu
göngustígs.
Oljóst orðalag
er í samningnum
um f-lið þar sem
segir að veita
megi framlag út á
minniháttar göngubrýr. Það er mis-
jafht hvað menn telja „minnihátt-
ar”. Brýr yfir læki, keldur eða gil
verða að vera þannig úr garði
gerðar að hættulaust sé að fara yfír
þær. Framlag verður allt að 50% af
kostnaði en þó að hámarki 200.000
kr.
6. Búfjárhald. Hér er um að
ræða styrk aðgerðir til að bæta að-
búnað búfjár. Stykhæf verkefni eru
þrenns konar:
1. Uppsetning á hagaskýlum fyrir
hross.
2. Breytingar á fjósum til að þau
standist reglugerðarákvæði
a. Gerð legubása í fjósum þar sem
kýr ganga lausar í stíum á
rimlagólfi.
b. Stækkun bása þar sem lengd
þeirra og/eða breidd standast
ekki ákvæði reglugerðar.
3. Breytingar á gyltustíum, sem
gerðar eru til að gyltumar geti
gengið lausar.
Ekki fæst framlag á hvaða skjól
sem er. Með grein þessari fylgir
teikning af skýli sem hlotið hefúr
viðurkenningu sem úttektarhæft
skjól. Það verður þó að vera úr
óskemmdu efni, helst nýju. Annars
konar skýli verða að uppfylla lág-
markskröfur sem koma fram á
teikningunni um veggjahæð og aðr-
ar stærðir svo og þá kröfu að vera
snyrtileg. Hlaðnir torfveggir koma
til greina, ef þeir em nægilega háir
og veita hrossum skjól í meira en
tveimur vindáttum. Einnig jarðvegs-
ruðningar sem uppfylla sömu kröfú
og sáð hefúr verið í eða tyrft yfír
þannig að frágangur sé snyrtilegur.
Framlag á hagaskjól er allt að
50.000 kr. á bú.
Um hina tvo liði þessa flokks er
rétt að taka fram að þar er um að
ræða breytingar á byggingum, eða
byggingu nýrra húsa, ef þau gömlu
hafa ekki staðist ákvæði reglu-
gerða.
Framlag á fjós er 35% af kostnaði
við breytinguna en þó aldrei hærri
upphæð en sem nemur 10.000 kr. á
hvern bás sem breytt er eða
aflagður við nýbyggingu. A svína-
hús fæst mest 3500 kr. á stíu.
7. Framræsla. Hér er
eingöngu um að ræða
hreinsun á þegar gröfn-
um skurðum, sem ræsa
fram ræktað land ásamt
nauðsynlegum framrás-
um. Ekki fæst framlag á
nýjan skurðgröft eða á
aðrar endurbætur á
framræstu landi, s.s.
ræsi ýmiss konar. Fram-
lag getur að hámarki
orðið 25 kr. á m þ.e.
25000 kr. á km.
Þetta er í raun það sem
um er að sækja af ríkis-
framlögum skv. Búnað-
arlagasamningi næstu
þrjú árin að minnsta
kosti. Rétt er að taka
fram að nú þegar þetta er
skrifað er verið að vinna
að reglugerð um fram-
lögin og þar sem því
verki er ekki að fúllu lokið kunna
einhver skilyrði, sem þarf að
uppfylla til að fá framlag annað
hvort að rýmka eða þrengjast frá
því sem hér er sagt, en það fer þó
aldrei útfyrir það sem segir í samn-
ingnum. Aðeins verður um nánari
útskýringu að ræða þar sem
samningurinn er óljós (t.d. hvað er
„minniháttar göngubrú“). Það er
hins vegar þörf á að gera hér grein
fyrir þessu, til að birtast í Frey áður
en menn eiga að hafa sent inn
umsóknir um framlög árið 2000, en
það er 15. nóvember nk.
Þá skal einnig á það minnst að
loforð um framlög fyrir árið 1999
falla úr gildi 15. nóvember. Hafí
úttektarvottorð ráðunautar ekki
borist BÍ fyrir þann tíma verður lit-
ið svo á að ekki hafí verið ráðist í
framkvæmdina á árinu 1999. Lof-
orð framlengist ekki þannig að
þeir, sem ekki hafa náð að ljúka
verkinu í tæka tíð, verða að sækja
um á nýjan leik fyrir árið 2000 ef
þeir eiga að gera sér vonir um að fá
styrk.
FREYR 9/99 - 9