Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.1999, Síða 13

Freyr - 01.08.1999, Síða 13
kg Mynd 1. Arleg kornframleiðsla á mann á tímabilinu 1950-1990. (Heimild: Prófessor Tim Tyson, London School of Economics). auðlindanna (ökólogíu) en ekki hringrás peninganna (ökónomiu). Sjálfbær landbúnaður einkennist af eftirfarandi þáttum (4): * Hann byggist á staðbundnum endurnýjanlegum náttúruauð- lindum. * Hann hagnýtir sér sólarorkuna og framleiðslugetu lifkerfanna. * Hann viðheldur frjósemi jarð- arinnar. * Hann hámarkar endurnýtingu næringarefna jurta og lífrænna efna. * Hann notar ekki efni sem eru umhverfinu framandi. * Hann heldur við erfðafjölbreyti- leika, jafnt í framleiðslukerfmu sem utan þess. * Hann tryggir búfénu lífsskilyðri sem svara til vistræns hlutverks þess og kemur til móts við eðli- legt atferli þess. Persónulega kýs ég að líta á líf- rænan landbúnað sem landbúnað er vemdar náttúruauðlindirnar, þar sem hugtakið náttúruauðlind er skilið í víðasta skilningu, þ.e. sem uppspretta áframhaldandi þrifa lífs- ins. í lífrænum landbúnaði beinist athyglin bæði að náttúruauðlindum og mannlegum „auðlindum“. Lífrænn = auðlindaverndandi landbúnaður: Náttúruauðlindir * loft * vatn * jurtaríki * dýraríki * ræktunarland * birgðir hráefna Mannauðlindir * heilbrigði * menntun. Tillit til viðhalds auðlinda verður að vera hluti af hugtakinu „gæði matvæla“. Næg matvæli Er til nógur matur? Hvemig lítur matvælaástand í heiminum út um þessar mundir og hvernig em horf- umar? Svarið við spumingunni hvort það er og muni verða nægur matur handa jarðarbúum í framtíðinni byggist á tveimur þáttum, þ.e. þró- un mannfjölda og þróun í fæðu- framleiðslu, einkum kornfram- leiðslu. íbúafjöldi jarðar er nú um 6 milljarðar og þess er vænst að jarðarbúar verði um 10 milljarðar árið 2050, og jafnvel 8,5 milljarð- ar þegar árið 2020. Mannfjölda- þróun er háð mörgum þáttum, m.a. aðgangi að getnaðarvörnum og öðrum aðferðum við fjöl- skylduskipulagningu. Áárabilinu 1950-1990 þrefaldað- ist komframleiðsla í heiminum. Þessi gífurlega aukning byggðist á aukinni notkun fjögurra vaxtar- þátta; vatns, ræktunarlands, áburðar og jurtakynbóta. Ferkst vatn Nú er að því komið að aðgengi- legt ferskt vatn sé að verða fullnýtt og þar með takmarkandi þáttur við ræktun. Grunnvatnsstaða ájörðinni lækkar ógnvænlega í sumum af mikilvægustu komræktarsvæðum heimsins, t.d. í sunnanverðu kom- ræktarbelti Bandaríkjanna, í Norð- ur-Kóreu og í Punjab-héraði á Ind- landi. Vaxandi vatnsþörf þéttbýlis og iðnaðarsvæða ógnar og tak- markar möguleika á vökvun með vatni úr mörgum ám. Ræktunarland Samanlagt kornræktarland í heiminum dróst saman um meira en 5% á tímabilinu 1981 til 1993, eða úr 735 í 695 milljón hektara. í sumum iðnaðarlöndum varð enn meiri samdráttur á þessum tima, t.d. í Japan vegna vaxandi þéttbýlis. Möguleikar á auknu landi til komræktar, með þvi að brjóta nýtt land til ræktunar eða með því að ryðja skóg, em mjög takmarkaðir, auk þess sem mðningur skógar er mjög varhugaverður, sbr. regn- skógana. Jafnframt tapi á ræktarlandi vegna þéttbýlismyndunar á sér jafnt og þétt stað tap vegna jarðvegseyð- ingar og aukinnar seltu í jarðvegi sem leiðir af uppgufun vökvunar- vatns. Annars staðar verður jarð- vegurinn ófrjórri, þar sem lífræn efni hans minnka (5). Aburðargjöf /jurtanœringarefni. Víðsvegar á jörðinni kemur nú í ljós að aukin áburðargjöf skilar ekki aukinni uppskem. Hámarks- uppskem núverandi tegunda virðist vera náð. FREYR 9/99 - 13

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.