Freyr

Volume

Freyr - 01.08.1999, Page 20

Freyr - 01.08.1999, Page 20
Höfundi brá í brún þegar þessi yrðlingur tók á móti honum í staö œðarbónda á Vesturlandi. Yrðlingurinn reyndist gœfur og vissulega virðist hann sakleysislegur, eða hvað? 3. Leiðir til úrbóta Æðarbændur voru spurðir í þess- ari könnun hvaða leiðir væru heppi- legastar til að draga úr tjóni af völd- um refa og til hvaða ráðstafana þeir vildu að ríki/sveitarfélög gripu til. Skemmst er frá því að segja að langflestir töldu bestu leiðina vera að halda tófunni í skeljum, eða 78% umsjónarmanna nytjaðra varpa og 83% þeirra umsjónar- manna ónytjaðra varpa sem höfðu skoðun á því. Alls höfðu 31 af 68 (46%) um- sjónarmönnum nytjaðra varpa skoðun á því hvernig árangursrík- ast væri að stunda refaveiðar. Tíu (32%) þeirra álitu að efla mætti vetrarveiði og töldu það hag- kvæmustu og bestu leiðina. Rökin voru þau að minni tími færi í hvem veiddan ref og að refur ynnist áður en hann nær að valda tjóni fremur en við grenjavinnslu. Þó töldu aðrir 3 (10%) að efla þyrfti grenja- leit. Einn taldi að taka þyrfti upp eitrun fyrir refi og annar nefndi að þjálfa mætti hunda til refaveiða. Tveir töldu ekki ástæðu til breyt- inga en hinir 14 (45%) nefndu mis- munandi útfærslur á kostnaðar- skiptingu milli ríkis, sveitarfélaga og jafnvel æðarbænda sjálfra vegna refaveiða. Lokaorð Samkvæmt könnuninni má áætla að árlegur kostnaður æðarbænda vegna langvarandi og tímabimd- innar lækkunar í dúntekju af völd- um refa nemi um 3,9 ± 3,6 milljón- um króna (miðað við 40.000 kr./kg dúnverð) ef varpið að Mýmm í V,- ís. er fráskilið en 7,7 ± 12,5 millj- ónum ef Mýrar era með í reikning- um. Þó ber að hafa í huga að kostn- aður þjóðarbúsins er lægri þar eð nokkuð algengt virðist vera að æð- arkollur flytji sig tímabundið eða til langframa frá vörpum sem verða fyrir skakkaföllum vegna refa yfír á önnur vörp sem stækka sem því nemur. Auk þess má gera ráð fyrir kostnaði allt að 2,9 ± 1,7 milljón- um króna á ári vegna vöktunar varpa miðað við að jafnaðarkaup fyrir vöktun sé 700 kr./klst, ef Auðkúla í V.-ís. er ekki með í reikningum, en 6,2 ± 9,7 milljón- um sé hún meðtalin. Vöktunin er þó ekki eingöngu vegna refa heldur einnig máva, hrafna og minka og því myndi þessi kostnaður ekki hverfa þó að refur hyrfi með öllu. Við þetta bætist svo girðingar- kostnaður hjá nokkmm bændum en sá kostnaður var ekki áætlaður í könnuninni. í ljósi þess að íjárveitingar til refaveiða hafa fremur farið lækk- andi en hækkandi undanfarin ár er fátt sem bendir til annars en að vöktun, þótt kostnaðarsöm sé, verði enn um sinn helsta leið æðarbænda til þess að koma í veg fyrir tjón af völdum refa. Heimildir Ami Snæbjömsson (1996): Um nytj- ar af æðarfugli. Bliki 17:55-63. Gísli Karlsson (1996): Ársrit land- búnaðarins 1996. 47. árg. bls 20. Lárus Ágúst Gíslason (1982): Handbók um hlunnindajarðir á ís- landi. Prentsmiðjan Leiftur hf., Reykjavík. 20 - FREYR 9/99

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.