Freyr - 01.08.1999, Síða 29
Gæði grœnmetis
á íslenskum markaði
I hverju felast gæðin?
Gæði er orð sem er mikið notað
nú til dags. Fyrirtæki og stofnanir
keppast við að vinna eftir gæða-
kerfúm til að gera þjónustu sína og
vörur sem best úr garði og allt er
þetta svo í þágu neytandans. En
hvað eru gæði í augum neytenda?
Því er ekki svarað svo auðveldlega
enda er þama á ferðinni samspil
fjölmat'gra þátta. En það er alltaf í
höndum neytenda að segja hvað
gæði séu.
Hvað grænmeti varðar þá er ekki
hægt að benda á einhvem einn
gæðaþátt og tilkynna að gæði vör-
unnar liggi þar. Þessir gæðaþættir
hafa svo mismikið vægi eftir því um
hvaða grænmetistegund er að ræða.
Undir skynræna þætti fellur útlit,
lykt, áferð og bragð. Útlit er mikil-
vægasti þátturinn þegar neytandinn
kaupir vömna en þá skoðar hann lit,
stærð og þyngd, svo og hvort hann
sjái einhverja galla á vömnni.
Bragð er einnig mjög mikilvægur
gæðaþáttur en þar gegnir lykt einn-
ig stóm hlutverki.
Þægindi vöm og hagkvæmni em
þættir sem hafa fengið aukið vægi
að undanförnu. Neytendur gera
kröfú um gott aðgengi að henni og
að hún sé auðveld í notkun. Aðrir
þættir sem hér skipta máli em verð,
umbúðir og vörumerki. Stöðugleiki
vöm er mikilvægur fyrir neytendur,
en þar er átt við hvemig og hversu
lengi gæðin haldast áður en þau
fara að rýma.
Hollusta grænmetis hefúr hlotið
aukna umfjöllun á undanfomum ár-
um. Undir hollustu getum við sett
hreinleika, öryggi og næringargildi.
Almennt er talað urn að hreinleiki
íslensks grænmetis sé mikill vegna
lítillar notkunar vamarefna. Neyt-
endur gera kröfú um að varan sé ör-
ugg þannig að það sé óhætt sé að
eftir
Val Noröra
Gunnlaugsson
Matvæla-
rannsóknum,
Keldnaholti
neyta hennar. Næringargildi fellur
einnig undir hollustu en neytendur
gera kröfu um að grænmeti sé auð-
ugt af vítamínum og steinefnum og
að þau séu á nýtanlegu formi.
Orkugildi grænmetis er almennt
lágt og er það æskilegt í hinum
vestræna heimi i dag.
Umhverfísmál framleiðslunnar er
gæðaþáttur sem gefínn hefur verið
meiri gaumur nú á síðari tímum.
Spumingar vakna hvort við séum
að ganga á forðabúr náttúmnnar
eða hvort við séum að menga um-
hverfi okkar með notkun tilbúins
áburðar eða með notkun vamar-
efna. Út frá þessum spumingum
hefúr svo sprottið aukinn áhugi á
vistvænni og lífrænni ræktun. Þetta
er síður en svo tæmandi upptalning
á þeim gæðaþáttum sem snúa að
grænmeti en það að þó ljóst að gæði
samanstanda af fjölmörgum þátt-
um.
Verkefni um gæði
grænmetis
Hjá Matvælarannsóknum Keldna-
holti er nú unnið að verkefni um
gæði og hollustu grænmetis á ís-
lenskum markaði. Matvælarann-
sóknir Keldnaholti (MATRA) er ný
eining sem sinnir matvælarannsókn-
um og varð hún til við sameiningu
fæðudeildar Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins og matvælatækni-
deildar Iðntæknistofhunar. Sam-
starfsaðilar í verkefninu em Sam-
band garðyrkjubænda, Manneldisráð
íslands, Garðyrkjuskóli ríkisins,
Sölufélag garðyrkjumanna, Agæti
og Geislavamir ríkisins.
Styrkir frá Tæknisjóði Rannsókn-
arráðs íslands, Framleiðnisjóði og
Áformi-átaksverkefni gerðu þessa
vinnu mögulega. Verkefnið fór af
stað fyrir frumkvæði frá RALA og
hefur stofnunin staðið undir hluta
kostnaðar við það.
Hvers vegna var hafist
handa við verkefnið?
Mikilvægt var að heijast handa
við að rannsaka gæði íslenska
grænmetisins þar sem búast rná við
auknum innflutningi á næstu ámm.
Nauðsynlegt er að efla allt gæða-
starf við ræktun og dreifingu þann-
ig að framleiðendur séu sem best í
stakk búnir að mæta auknum inn-
flutningi. Þá er mikilvægt að fyrir
liggi upplýsingar um gæði íslensks
grænmetis þegar nýir möguleikar
opnast fýrir hráefni í tilbúna rétti en
búast má við talsverðri aukningu á
framleiðslu slíkra rétta.
Aðstæður til ræktunar grænmetis
á íslandi em sérstakar og því verða
erlendar niðurstöður ekki yfírfærð-
ar á íslenskar aðstæður án sjálf-
stæðra athugana. Kalt loftslag, lítil
notkun vamarefna, stuttur vaxtar-
tími, sérstök birtuskilyrði og rækt-
un í gróðurhúsum em þættir sem
skipta miklu máli. Ef innlend græn-
metisframleiðsla á að halda velli í
vaxandi samkeppni við innflutning
þurfa ffamleiðendur að hagnýta sér
alla mögulega sérstöðu. Hreinleiki
afurða vegna lítillar notkunar vam-
arefna og bragðgæði vegna langs
vaxtartíma em þar á meðal.
Framkvæmd
verkefnisins
Fylgst hefur verið með gæðum
FREYR 9/99 - 29