Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.08.1999, Qupperneq 38

Freyr - 01.08.1999, Qupperneq 38
Fyrsta dráttarvélin kom til Islands árið 1918. Hana keyptu Þóráur Asmundsson og Bjarni Ólafsson á Akranesi. en það varð síðar sameiginlegt heiti þessara félaga, sem þá voru farin að beita sér jafnt á öllum sviðum búskapar; búíjárrækt, bú- tækni, jafnt og jarðrækt. Búnaðar- félög voru komin í nær alla hreppa landsins um aldamótin síðustu og urðu síðar grundvöllur í nær öllum öðrum samtökum bænda. Búnaðarfélögin höfðu tíðum jarðyrkjumenn (plægingamenn) á sínum snærum sem unnu hjá bænd- um, einkum við nýrækt og til þess keyptu þau nauðsynleg jarðyrkju- verkfæri. Túnasléttun önnuðust bændur hins vegar meira með eigin vinnuafli. Búnaðarskólar voru fyrst stofn- aðir á árunum 1880 - 1890, og frá þeim breiddist verkþekking og tækni um landið. Áhrifamestur í því tilliti varð Búnaðarskólinn í Olafsdal í Dalasýslu, stofnaður 1880. Skólastjóri hans, Torfi Bjarnason, gat sér fyrst orð fyrir að láta smíða í Skotlandi árið 1867 nýja gerð af Ijáum sem tóku þeint gömlu íslensku langt fram, voru auðveldari í notkun og skiluðu stór- auknum afköstum. Einföld endur- bót á handverkfærum gat á þessum tíma skipt miklu fyrir afköst við bú- skapinn. Á skóla sínum stundaði Torfi smíðar á helstu búverkfærunr, s.s. plógum, herfum, hestarekum og hestakerrum, og auk þess aktygj- um, og kenndi þessar smíðar. Frá Ólafsdal dreifðust þessi tæki um landið allt og urðu þau algeng næstu áratugina Það var svo laust fyrir síð- ustu aldamót að fyrstu hestaverk- færi til heyskap- ar bárust til landsins, sláttu- vélar og rakstr- arvélar. Alllang- an tíma tók þó að þróa eða fá smíðaðar sláttu- vélar sem hent- uðu fyrir ís- lenskar aðstæður, bæði hestana og gróðurfarið, og notkun þessara tækja varð ekki almenn fyrr en á þriðja eða jafnvel íjórða áratug þessarar aldar, en þá voru fleiri tæki einnig komin til sögunnar. Þá var einnig orðið skammt í það að dráttarvélar og önnur vélknúin tæki leystu dráttarhestinn af hólmi í islenskum landbúnaði. Tímabil dráttarhesta við hvers konar bústörf og flutninga í landbúnaði á íslandi stóð því í reynd ekki nema í 60 - 80 ár, eða frá því um 1880 og fram undir 1960, og segir það sitt um það hve hröð tækniþróunin í íslenskum landbúnaði varð þegar hún loks fór af stað. Vélarorkan og stórvirkari vélknúin tæki Á þriðja áratugi þessarar aldar hefst nýr þáttur í tækniþróun land- búnaðar á íslandi. Þá hefst sú tæknibylting sem gekk yfír með vaxandi hraða þannig að um 30 árum siðar er ís- lenskur landbún- aður hávélvædd- ur og tæknin hef- ur náð svipuðu stigi og í ná- grannalöndunum. Fyrsta dráttar- vélin kom til landsins árið 1918, keypt af ræktunarfélagi á Akranesi. En strax eftir 1920 tók Búnaðarfélag íslands að hafa forgöngu um að búnaðarfélög og einstaklingar fengju dráttarvélar, sem fyrstu árin og allt fram til 1940 voru mest not- aðar til jarðvinnslu (nýræktar) sem þá fór ört vaxandi. Á árunum 1921-1928 keypti BÍ frá Þýskalandi sex mjög stórvirk- ar jarðvinnsluvélar, sambyggðar dráttarvélar og jarðvegstætara, sn. þúfnabana, sem frægir urðu. Með þeim var unnið allmikið land, einkum í námunda við Reykjavík og Akureyri. En þeir voru ekki vel fallnar til mikilla flutninga og voru þvi seldir úr landi og dráttarvélarnar tóku við. Skurðgröfurnar og jarðýturnar valda byltingu Framræsla lands, bæði til áveitu- gerðar og til túnræktar, var mjög mikilvægur þáttur í búnaðarfram- forum þessa tíma. Flafhar voru stórfelldar áveitu- framkvæmdir á þessum árum, bæði á Suðurlandi, (Flóaáveita, Skeiða- áveita og víðar) en einnig á láglendi dalanna á Norðurlandi. Fyrsta skurðgrafan kom til landsins árið 1919 og var notuð til grafa stóra aðveituskurði fyrir Skeiðaáveitu og Flóaáveitu og síðar fleiri. Flóaáveitan, sem unn- in var á árunum 1921-1927, var langstærsta einstaka ræktunar- Póstvagnar á leið yfir Hellisheiði. Timi hestvagnanna var ekki langur, enginn hestvagn var t.d. til i Reykjavik árið 1928. 38 - FREYR 9/99

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.