Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.08.1999, Qupperneq 39

Freyr - 01.08.1999, Qupperneq 39
framkvæmd sem unnin hefur verið á Islandi. Aveitan náði til 166 jarða og var veitt vatni á um 11.500 ha lands. Síðar var lögð meiri áhersla á að ræsa fram mýrlendi til túnræktar enda um helmingur alls ræktanlegs lands á Islandi raklendi sem þarfn- ast framræslu til ræktunar. Til slíkrar framræslu var tekið að flytja inn hentugar skurðgröfur laust eftir 1940. Sérstök lög voru sett um styrk ríkisins við þessa framræslu og sá Vélasjóður ríkisins um innkaup og rekstur vélanna. Um svipað leyti, 1943, var fyrsta beltadráttarvélin flutt til landsins. Þær vélar breiddust síðan ört út um allt land, einkum eftir að sett voru lög um ræktunarsambönd, sem höfðu það hlutverk að kaupa og reka stórvirk jarðræktartæki og stuðla að aukinni framræslu og ný- ræktun lands. Beltadráttarvélamar vom notaðar til að brjóta ný lönd, plægja, herfa og jafna landið, en bændur gengu frá því með eigin tækjum. Heimilisdráttarvélar til almennra bústarfa, einkum heyskapar, tóku að flytjast til landsins á svipuðum tíma, þ.e. eftir lok síðari heimstyrj- aldarinnar, og í lok sjötta áratugar- ins vom þær komnar á svo til öll bú í landinu. Samfara þessu fengu menn stöðugt ljölbreyttari og af- kastameiri tæki tengd dráttarvélum til allra bústarfa, hverju nafni sem nefnast. Mest munaði um tækni til jarðræktar og heyöflunar, sem nú fór öll fram á ræktuðu landi og nú var búfénu í vaxandi mæli beitt á ræktað land. Byggingar Tækni Islendinga við húsbygg- ingar var að sínu leyti jafn fmm- stæð og við bústörfín. Nær algert skógleysi landsins gerði það að verkum að timbur var af mjög skomum skammti. Flutningar á timbri til landsins vom dýrir og sá rekaviður, sem barst til landsins með hafstraumum norðaustan úr ís- hafínu, hrökk aðeins til lágmarks- notkunar á timbri í hverja bygg- ingu. Landið bauð ekki upp á nein heppileg efhi til varanlegra bygg- inga, miðað við þá tækni sem menn almennt réðu yfír. Allar venjulegar byggingar, útihús öll, íbúðarhús og jafnvel kirkjur, vom gerðar af torfí og grjóti, jafnt þökin sem veggir og undirstöður. Aðeins burðarvirki, stoðir og þakgrindur, voru úr timbri, en vegna timburskortsins vom húsin og einkum útihúsin svo lágreist sem frekast var komist af með. Á þessu urðu nær engar breyting- ar fyrr en undir lok síðustu aldar og þá helst þær að menn byggðu held- ur stærri og reisulegri hús eftir því sem efni manna bötnuðu og timbur til bygginga varð auðfengnara með auknum og bættum siglingum til landsins. Enn héldu menn þó áfram að byggja útihúsin að mestu úr torfi og grjóti, og vom slík hús hin al- gengustu fram á þriðja og fjórða tug þessarar aldar og sáust allvíða enn í notkun fram undir 1960. Nær al- gjört vegleysi landsins og erfiðleik- ar með alla flutninga héldu lengi aftur af mönnum við að byggja úr aðfengnu efhi. Það er fyrst með tilkomu stein- steypu á fýrstu tugum aldarinnar sem Islendingar tóku að byggja varanlegar byggingar úr innlendu efni að mestu. Fyrstu útihús með nýtískulegu sniði vom byggð á bændaskólunum og á stöku stórbýlum (Korpúlfs- stöðum og Blikastöðum) laust fyrir 1930. Á ámnum 1925-1930 opnuðust möguleikar fyrir bændur til að fá stofnlán til bygginga og annarra framkvæmda á jörðum sínum með því að myndaður var Bygginga- og landnámssjóður og Búnaðarbanki íslands stofnaður. Eftir það hófst fljótlega almenn uppbygging á jörðum, samfara aukinni ræktun. Hröðust varð sú uppbygging þó eftir lok stríðsins 1945. Um 1960 em nær allar útihúsabyggingar á ís- landi úr varanlegu efni og svömðu til þeirrar tækni sem þá var beitt við búskapinn. Framfaraþróunin sem reynt var að hrinda af stað á síðari hluta átj- ándu aldarinnar tók því nær 200 ár. I upphafi þessa skeiðs bjó öll þjóðin í sveitum og hafði oft ekki nóg að borða en um lok þess bjuggu meira en 80% þjóðarinnar í bæjum, en þau tæplega 10% sem unnu að landbúnaði skiluðu meiri mat- vælum á borð þjóðarinnar en hún gat torgað og útflutningur á land- búnaðarvörum var oft umtals- verður. Helstu heimildir. 1. Ámi G. Eylands, „Búvélar og rækt- un“ (Reykjavík 1950). 2. Búnaðarsamtök á íslandi 150 ára, Afmælisrit Búnaðarfélags íslands, ritstjórn HjörturE. Þórarinsson, Jón- as Jónsson og Olafúr E. Stefánsson I. og II. bindi. Utg. Búnaðarfélag ís- lands (Reykjavík 1988). 3. Játvarður Jökull Júlíusson, „Saga Torfa Bjarnasonar og Ólafsdals- skóla“. Utg. Búnaðarfélag Islands (Reykjavík 1986). 4. Rit Björns Halldórssonar í Sauð- lauksdal, ritstjórar Gísli Kristjáns- son og Bjöm Sigfússon. Utg. Bún- aðarfélag íslands (Reykjavík 1983). 5. Sigurður Sigurðsson. „Búnaðarhag- ir“, Búnaðarfélag Islands, Aldar- minning II. bindi. (Reykjavík 1937). 6. Sturla Friðriksson: „Líf og Iand“, „Um vistfræði íslands“ (Reykjavík 1973). 7. Þorkell Jóhannesson, „Búnaðar- samtök á íslandi 1837-1937“, Búnaðarfélag Islands, Aldarminn- ing. 8. Þorkell Jóhannesson, „Á mótum gamals og nýs túna“, Andvari 1979. 9. Búnaðarrit, margir árgangar, m.a. starfsskýrslur véla- og verkfæra- ráðunauta. Grein þessi er upphaflega samin sem erindi, er Jlutt var á „Alþjóða- ráðstefnu um sögu heimskauta- og norðurslóða", sem haldin var í Reykjavík 18. - 21.júní 1998. Ráð- stefnan var á vegum Háskóla ís- lands og Utanrikisráðuneytisins. FREYR 9/99 - 39

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.