Freyr - 01.11.2000, Blaðsíða 19
Tala búfjár,
heyfengur og uppskera
garðávaxta 1999
Um langt árabil hafa birst ár-
lega í Hagtíðindum töflur
um bústofn, heyfeng og
uppskeru garðávaxta á landinu á
liðnu ári með samanburði við næst-
liðið ár. Þessar töflur birtustu fyrst
í janúarblaði Hagtíðinda 1969 og
þá frá 1965, síðan í júlíblaði 1970
og eftir það í apríl- og maíblöðum
ár hvert.
Talnaefni þetta er fengið frá
Bændasamtökum íslands, og er það
byggt á forðagæsluskýrslum búfjár-
eftirlitsmanna í hveiju sveitarfélagi
í samræmi við ákvæði laga nr.
46/1991 um búfjárhald. Er búféð
talið á haustin að lokinni sláturtíð
og fram eftir vetri. Með töflunum
fylgja eftirfarandi athugasemdir:
1. Hænsni. Aðeins eru taldir stofn-
fuglar, þ.e. 160.640 varphænsni,
30.307 holdahænsni og 154.183
líffuglar árið 1999.
2. Loðdýr. Hér eru aðeins talin líf-
dýr, annars vegar minkalæður og
högnar og hins vegar refalæður
og steggir.
3. Annar bústofn. Auk þess búfjár
sem fram kemur í töflunum voru
á árinu 1999 skráðar 1.080 end-
ur, 359 gæsir, 500 kalkúnar og
502 geitur.
4. Garðávextir. Auk kartaflna og
rófna voru skráð 163,6 tonn af
gulrótum árið 1999.
5. Korn. Skráð voru 2.403 tonn af
komi og 1.802 tonn af grænfóðri
árið 1999.
Tala búfjár og jarðargróði 1993-1999
1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999
Nautgripir 73.912 71.923 73.199 74.816 74.791 75.500 74.534
þ.a. kýr 30.032 30.518 30.428 29.854 29.502 29.219 28.284
Sauðfé 488.787 499.110 458.341 463.935 477.306 490.002 490.538
Hross 76.726 78.517 78.202 80.518 79.804 78.400 77.330
Geitur 330 337 350 403 417 431 502
Varphænsni 173.933 165.007 164.402 166.336 154.844 166.911 160.640
Svín 3.610 3.752 3.726 3.543 3.514 3.987 3.926
Refir 5.814 6.864 7.308 9.316 8.889 5.672 3.923
Minkar 32.588 33.573 29.941 43.010 45.044 37.999 33.532
Kanínur 173 128 84 75 144 418 726
Þurrhey, m3 1.725.000 1.676.369 1.288.940 1.368.256 908.594 919.610 722.795
Vothey, m3 1.069.618 1.384.686 1.214.624 1.553.802 1.745.246 1.419.1221.612.508
Þar af votheys -rúllur, m3 945.348 1.261.273 1.109.429 1.446.965 1.690.959 1.367.0741.554.749
Heykögglar, tonn 295 375 243 1.491 60 — -
Kom, tonn 495 794 485 2.061 2.902 3.767 2.403
Kartöflur, tonn 3.913 11.145 7.324 11.214 8.557 11.544 9.013
Rófur, tonn 679 1.010 328 902 414 627 523
FREYR 10/2000 - 19