Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.11.2000, Qupperneq 5

Freyr - 01.11.2000, Qupperneq 5
Við tók sauðfjárræktin sem aðalbúgreinin og sögupró- fessor einn, ættaður af Norð- urlandi, lét sér detta í hug að framgangur sauðkindarinnar hafi verið nátengdur því að um þetta leyti lærðu Islend- ingar að prjóna. Alls kyns prjónavörur gengu á góðu verði erlendis. íslendingar þurftu meiri ull og þarafleið- andi fleiri kindur. Það var á kostnað kýrinnar og harðgert sauðféð sigraði í baráttunni um minnkað beitarlandið. Fræðimenn hafa látið sér detta í hug að um 1655 hafi nautgripaeignin verið kom- in niður í 55.000 gripi.7’ En nú fara að koma áreiðanleg- ar tölur. Á árunum 1702- 1712 var íslenskur búpen- ingur talinn, Á undan var mannfólkið talið í frægu allsherjarmanntali, því fyrsta í heiminum þar sem fólkið er nafngreint. Og síð- an þótti við hæfi að telja kvikfén- aðinn í merkilegri jarðabók sem til er um mestallt landið. Samk- væmt henni voru 35.860 naut- gripir til á landinu, þar af 24.467 mjólkurkýr.8' Öldin 18. er niðurlægingartíma- bil íslenskra nautgripa. Fyrst mikil harðindaár 1751- 1757, síðan kom eldgosið mikla í Laka austast á Suðurlandi 1783. Þar kom fram hin margþekkta keðjuverkun: Á fyrsta ári eldgosið, á öðru ári skepnufellir, á þriðja ári féll mannfólkið sjálft. Um þetta leyti voru geldneyti nær því að hverfa. Sumarið 1787 var svo komið að 20 naut voru flutt inn til Islands „handa fálkaskipinu." Konungur hafði einkarétt á að flytja út veiði- fálka sem Islendingar handsöm- uðu. Þeir voru 46 þetta árið og voru fluttir út með sérskipi. Fálkar hafa verið þurftafrek kvikindi og þessi naut voru þeim ætluð.9’ Eftir því að dæma var Island nú ekki lengur sjálfbært nautgripaland. Nautgripir urðu árið 1783 20.067.'0, Það var sú lægsta tala sem nautgripafjöldinn komst í á þeirri öld. En á 19. öldinni komst hún niður í 18.546 eftir harðinda- tímabilið 1881- 1888. Þá varbotn- inum náð."’ Nú fer að brydda á áhuga fyrir betra mjólkurkyni og er greinilegt að geldneytið - til kjötfram- leiðslu- er ekki eins áhugavert alla 19. öldina. Kjötframleiðslan felst meira í ásettum geldsauðum sem fargað var tveggja til fjögurra vetra. Urðu þeir seinni hluta ald- arinnar mikil útflutningstekjulind á Englandsmörkuðum. Eftir skipsvolk voru þeir fóðraðir á gulrófum í Skotlandi í nokkrar vikur og síðan slátrað. íslenska geldneytinu hlotnaðist aldrei sú vegsemd að fara lifandi til Eng- lands. Og loks tók fyrir þennan innflutning 1896 sökum sjúk- dómahættu, að sagt var. Kynbótamenn í nautgriparækt koma fram þegar fyrir aldamótin 1800. Ég nefni tvo feðga, sem verða einna fyrstir til að flytja inn nautgripi til kynbóta. Báðir voru á sinn hátt valdamestu menn lands- ins; Ólafur Stephensen stiftamt- maður var æðsti maður hins kon- unglega framkvæmdavalds og bjó í Viðey við Reykjavík. Magnús Stephensen sonur hans var lengi æðsti dómari landsins. Hann bjó seinast búi sínu í Viðey. Svo fór þá að innflutningurinn kom fyrst inn á einangraða eyju, rétt eins og í Hrísey á vorum dögum. Ólafur og Magnús voru báðir mikilvirkir útgefendur tímarita sem tóku öll mál til meðferðar, ekki síst bún- aðarmál. Ólafur skrifaði líklegast fyrstu íslensku ritgerðina um kúna: „Um not af nautpeningi" 1786. Hann segist hafa komist að raun um að meira smjör fáist úr mjólk rauðra kúa heldur en hvítra. Hann segist því hafa farið að safna dökk- og dumbrauðum kúm.12) Magnús Stephensen gengur lengra. Hann flytur inn rauðar kvíg- ur frá Sjálandi 1816- 1819, einnig danskan bola. Sagður var hann frá FREYR 10/2000 - 5

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.