Elektron - 01.04.1915, Síða 10

Elektron - 01.04.1915, Síða 10
ur botn er í öllu skipinu;. ruggkilir eru á því og útbúnaður fyrir vatns- seglfestu. Auk þverskiftingarinnar er tveim botnrúmanna skift að endi- löngu með vatnsþjettum vegg. — Aðal- þilfarið er úr stáli, 25% sterkara en Bureau Veritas heimtar. Er það al- staðar, þar sem umferð er um það, klætt nýuppfundinni húð, sem nefnist »bitumastic« með einstakri vöndun, sem ver stálið allri eyðingu og skemd- um. Sama húð er á stáli annars- staðar í skipinu, þar sem sjerstök umferð er eða önnur hætta á eyðingu eða skemdum. Kolabyrgin, sem eiga að taka 250 smál., eru þaunig útbúin, að nota má einnig fyrir aðrar vörur, ef ekki þarf að fylla þau alveg af kolum. Aðal-lestirnar eru með flytjan- legum útbúnaði fyrir hrossaflutning, með vatnsveitu o. s. frv. 5 lyftivindur eru í skipinu, og er bægl að ferma 5 báta við skipshlið í einu; eru vind- urnar mjög sterkar og kraftmiklar. »Automatisk« lyftitæki fyrir ösku frá vjelinni, hávaðalaus, Hæð siglutrjáa 00 fel og 70 fet. Kæli- og fryslirúm ineð alt að 7 sliga frosli, 4000 rúm- fet (kúbíkfet) að stærð; því má skifta í þrent og hafa mismunandi kulda- stig í hverju rúmi. Á fyrsta farrými er ætlað rúm fyrir 60 farþega. Farþegarúmin 48 undir þiljum, 12 á þilfari. A þiifarinu er borðsalur stór, ofan á honum farþega- þilfar og á því stór reykingasalur; þar ofar stjórnpallur með mælingar- herbeigi og herbergi skipsljóra. A öðru farrými er ætlað rúm fvrir 84 farþega. Þar eru 28 farþegarúmin og borðsalurinn undir þiljum, en lítill reyksalur og rúm fvrir 6 farþega á þilfari. Farrýmin eru útbúin úr vönduðu efni, snotur og þægileg, þó án íburðar. Sjerstaklega góð loftrás er í þeim og ýms smá þægindi, sem skipin skortir, sem nú eru hjer. Ralljós eru um alt skipið og 1 kastljós (search-light), sem lýsir langa leið. Skrúfan er úr bronce. Vjelin er einkar vönduð með tví- hitunarútbúnaði, sem sparar mjög kol. Eyðslan er t3 smál. kola á sólarhring. Ýmsir hlutar skipsins eru sterkari, en kraflst er af Bureau Veritas, en að öðru leyti smíðað samkvæmt fyrir- mælum þess um sldp i bezta flokki. Verð skipsins er um 580 þús. kr. (Vísir). Báti stjórnað með rafsegul- bylgjum. Maðúr er nefndur John Hays Ham- mond, og er amerískur. Hann hefur nú í nokkur ár gert tilraunir með þráðlausa firðrilun og hvernig hún verði notuð á sem margvíslegastan hált. Frá firðritunarslöð sinni gelur hann, með því að styðja á lykil, stjórnað skipi, sem liann á, í 8 milna (enskra) fjarlægð. Skipið, sem heitir »Natalia«, er knúð áfrain með 40hesta gasolinvjel. Með rafsegulbylgjunum er bægt að setja vjelina á breyfingu, stöðva hana og ennfremur stýra skip- inu. Skipið hefur 2 siglutrje, er annað þeirra mjög digurt, og með svart- og hvítmáluðum hólkum á víxl; er það til þess að skipið sjáist betur í fjar- lægð, en þegar dimt er, er þetta siglu- trje upplýst með rafljósum, svo að einnig sje hægl að stjórna skipinu í myrkri. Til þess að fylgjast með skipinu og sjá hvaða leið það fer, í myrkri, hefur Mr. Hammond afarstórt kastljós, er ljósmagn þess 186,000,000 kerta, og gelur það kastað geisla 7

x

Elektron

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Elektron
https://timarit.is/publication/874

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.