Elektron - 01.09.1918, Page 6

Elektron - 01.09.1918, Page 6
66 ELEKTRON bæði sökum þess að slæmt liefir ver- ið að ná í hæfilegar bækur, og eins liins, að enginn hefir verið til tilsagn- ar. En úr öllu þessu á nú símritun- arskólinn að bæta. Er hann sniðinn eftir fyrirkomulagi samskonar er- lendra skóla, og eru öll áböld bans hin besti. og fullkomnustu. Aðal námsgreinarnar, sem kendar verða á skólanum eru: að senda með morselykli, taka á móti skeytuin eft- ir pappír og lieyrn, »perforera« með Wheatstone’s Perforator, afskrifa Wheatstone’s skeyti, afhending skeyla, rafmagnsfræði, ritsímafræði, talsíma- fræði, innlend og alþjóða reglugjörð og franska. Þegar nemendurnir hafa fengið nægilega æfingu í ritsímaafgreiðslu, verða þeir íátnir æfa sig tíma og tima á simaslöðinni í Reykjavik. Skil- yrði fyrir inntöku í skólann er, að viðkomandi hafi óllekkað mannorð og hafi lokið gagnfræðapróli, eða notið þeirrar mentunar, sem sam- svarar því prófi og að hann sé á hæfilegum aldri, (17—21 árs). Enn- fremur verður liann að bafa læknis- vollorð, um að hann sé ekki haldinn af neinum næmum sjúkdómi, sem gæti orðið honum til tálmunar, eða skaðlegur hinum nemendunum. Kensl- an fer fram ókeypis. Skólinn tekur ekki við fleiri nemendum en úllit er fyrir, að landssíminn geti veitt at- vinnu bjá sér. Að aíloknu prófi, verð- ur nemendunum veilt starf við lands- símann jafnóðum og stöður losna. Skólinn mun vanalega eiga að standa yfir í 7 mánuði á ári, frá 1. okt. til 30. apríl, og verða kensluslundir 6 á dag. í velur var kent frá kl. 9—12 f. m. og 4—7 e. m., en vér teljum það óheppilegan tíma og hyggjum að betra væri að hafa hann l. d. frá kl. 9—12 og 1—4, því með því móli verður mönnum drýgii dagurinn. Kennarar skólans auk skólastjór- ans Friðbjarnar Aðalsteinssonar, eru þeir, O. B. Arnar, og Adolf Guð- mundsson frönskukennari. Á skólan- um voru 5 nemendur í fyrra, þeir Guðmundur Jónmundsson, Kristinn Baclimann, Iíristinn Guðbrandsson, Sigurður Dahlmann og Snorri Björns- son. Var þeim í sumar skift niður á rilsímastöðvarnar R. Sf. og Sg. Halda þeir áfram námi í vetur og munu ganga undir próf í vor. Er vonandi að símritunarskólinn geli að fullu bætt úr því mentunar- leysi sem símamenn hingað til hafa haft i sínu fagi, svo að eftir nokkur ár standi íslenzkir simamenn ekkerl að baki stéltarbræðrum sínum í öðr- um löndum livað það snertir. Stafrof rafmagDsfræflinnar. Eftir Otto B. Arnar. (Frh.). ---- BREYTISTRAUMUR. 13. mynd sýnir nokkrar kraftlínur með þeirri stefnu er örvarnar sýna. 1, 2, 3 og 4 er leiðsla sem við sjá- um í endann á og hreyfist í kraft- línasvæðinu. í fyrstu stöðunni lireyf- ist leiðslan samhliða kraftlínunum, og framleiðist þá enginn straumur í henni, því að þá sker hún enga þeirra. Eftir því sem hún nálgast aðra stöðuna eykst kraftlínafjöldinn, sem liún sker á sekúndunni og nær sá fjöldi hámarki sínu við 2. Á leið- inni til þriðju stöðunnar minkar aft- ur kraftlínafjöldinn sem hún sker á hverri sekúndu og kemst við 3 niður í lágmark silt, byrjar þá aftur að aukast og nær hámarki sínu aftur við 4. Straumur sá er myndast hefir við þetta, í leiðslunni, er táknaður j

x

Elektron

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Elektron
https://timarit.is/publication/874

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.