Barnablaðið - 01.02.1987, Blaðsíða 24

Barnablaðið - 01.02.1987, Blaðsíða 24
GÓÐAR GJAFIR Falleg dagatöl með ritningargreinum, góð gjöf sem minnir á gefandann allt árið, og veitir uppörvun í dagsins önn. SKÓPUNIN, veggdagatal með myndum úr ríki náttúrunnar. Ritningar- grein fyrir hvern dag ársins og reitir fyrir minnisatriði. BÖRN OG VINIR, póstkortadagatöl með myndum af börnum, gerð til að standa á borði eða hengja á vegg. Hverja mynd má nota sem póstkort að mánuðinum liðnum. HEFUR ÞÚ HEYRT? Ný hljómplata með söng margra fremstu flytjenda kristilegrar tónlistar á íslandi. Fjölbreytt lagaval, fágaður undirleikur valinna tónlistarmanna og fallegur söngur leggst hér á eitt um að skapa góða hljómplötu. Þeir sem syngja á plötunni eru: Ágústa Ingimarsdóttir, Elísabet Eir Cortes, Guðný Einarsdóttir, Ljósbrot, Pétur Hrafnsson, Sigurbjörg Níelsdóttir og Þorvaldur Halldórsson. Upptökustjórn var í höndum Magnúsar Kjartanssonar. FRIÐUR, Matteusarguðspjall og TRÚ, Bréf Páls til Rómverja. Þessar fallegu bækur eru skreyttar litmyndum á hverri síðu. Textinn er úr „Lifandi orði“, endursögn Nýja testamentisins á íslensku. Bækurnar eru einkar aðgengilegar fyrir þá, sem ekki eru vanir að lesa Nýja testamentið. fíIADELFÍA FORLAG Hátúni 2,105 Reykjavik Sími: 91-25155/20735

x

Barnablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.