Barnablaðið - 01.02.1987, Blaðsíða 15

Barnablaðið - 01.02.1987, Blaðsíða 15
Ba.ri\abl&ðiö rúðuna um leið og hún hóf sig til flugs. Doktorinn hrökk í kút, en varpaði svo öndinni léttar og sagði: „Það hefur þá verið þetta.“ Svo tók hann stefnuna að viðarklædda veggnum, innan stundar var allt með kyrrum kjörum. Eftir um tíu mínútur steig Hans Georg varlega niður af stallinum og gekk með erfiðis- munum að herberginu við hlið- ina. Þegar hann kom inn and- vörpuðu allir feginslega. Þau losuðu herklæðin sundur og settu þau í venjulegar skorður í riddarasalnum. Á meðan reyndi Maríanna að hlera hvar leyni- dyrnar voru í viðarklæðning- unni. Það var ekki fyrr en þau voru búin að ganga frá og setja herklæðin aftur á sökkulinn að Maríanna hvíslaði til hinna: „Komið þið hingað! Ég heyri einhver hljóð og veit ekki hvað- an þau koma!“ Bömin flýttu sér að viðar- klæddum veggnum og hlustuðu. Það heyrðist dauft bank. „Hvað getur þetta verið?“ sagði Petra og horfði spyrjandi á Ester. „Höggin eru svo óreglu- leg.“ „Komdu, nú förum við,“ sagði Maríanna. „Hádegismat- urinn bíður eftir okkur.“ Þegar þau voru aftur komin út í kastalagarðinn horfði Marí- anna ögrandi á Hans Georg og sagði: „Við sjáunt á þér að þú hafðir ekki heppnina með þér þegar þú stóðst á gægjum, en hvað gerðist?" Hans Georg var niðurbeygður og sagði frá óför- um sínum. Eftir matinn bað mamma þau um að taka til og þrífa í herbergj- um sínum. Svo þurfti Hans Georg að kenna börnum frú Martin nokkur töfrabrögð gítar- tækninnar. Börnin voru ekki allt of spennt við að taka til. Petra hóf að syngja glaðlegt lag og þá léttist brúnin á mannskapnum og allt gekk betur. Þegar Maríanna setti sópinn inn í skáp hrópaði Petra: „Erum við búin? Það er svo þykkt ryk- lagið að maður sér fótspor um allt!“ Hún þagnaði snögglega og settist hugsandi á rúmstokkinn. „Er eitthvað að,“ spurði Mar- íanna. „Mér datt í hug hvort við gæt- um ekki fylgst með fótsporum doktorsins.“ „Fótsporum?" — Maríanna horfði forviða á Petru. „Já,“ svaraði hún. „Ef við til dæmis tökum dúk og ausum á hann sandi og óhreinindum úti í garði, brjótum hann svo saman án þess að dusta .. .“ „Og hvað svo?“ Sagði Maríanna skilnings- vana. „Sjáðu til“ sagði Petra til út- skýringar. „Svo hristum við dúkinn fyrir framan viðarþilj- urnar í riddarasalnum. Þá sest þunnt ryklag á gólfið, og doktor- inn tekur ábyggilega ekkert eftir því. Þegar svo doktor Crippen hefurgengið inn um leynidyrnar þá förum við inn í salinn og sjáum hvar dyrnar eru faldar.“ „Þetta er snjallræði,“ sagði Maríanna og horfði viðurkenn- ingaraugum á Petru. „Ef við getum lagt þessa gildru fyrir guðsþjónustu í fyrramálið,

x

Barnablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.