Fótboltablaðið - 01.01.2003, Blaðsíða 6
Fasteignasalan Bakki
Á besta stað í bænum! Óneitanlega fá þessi
orð mun dýpri og trúverðugri merkingu
þegar gengið er upp tröppurnar á sögufrægu
húsi í Sigtúni 2 þar sem Egill, jarlinn af Sigtúni,
eitt sinn bjó. I dag er þar rekin umsvifamikil
fasteignasala, Bakki, og þegar inn er komið
mætir manni vinalegt andrúmsloft á virðulegri
skrifstofu, allt snyrtilegt og vandað í hólf og
gólf, afar traustvekjandi enda mikilvægt á
tímum aukinna umsvifa og viðskipta frá degi
til dags. Sennilega gætir þar enn áhrifa Egils
enda maðurinn goðsögn í sunnlensku við-
skiptalífi og samofinn sögu þess.
Stofnun Fasteignasölunnar Bakka
Fasteignasalan Bakki var stofnuð árið 1981
af Hlöðveri E. Rafnssyni og Bjarna Jónssyni.
Salan var rekin samhliða bókhaldsþjónustu til
ársins 1997, en þá keyptu Árni Valdimarsson
og fjölskylda fasteignasöluhluta fyrirtækisins
og hófu sjálfstæðan rekstur á Austurvegi 22.
Til að byrja með vann sonur Árna, Þröstur
Árnason einn við söluna þangað til Árni lét af
störfum í Landsbanka íslands og kom einnig
að daglegum rekstri. Um leið og eftirspurn
jókst eftir húsnæði á Selfossi, nýju sem gömlu,
færði fyrirtækið út kvíarnar og flutti í rúm-
betra húsnæði við Austurveg 10 árið 1998.
Árið 2000 keyptu síðan eigendur Bakka
núverandi húsnæði í Sigtúni af KÁ „fyrir 300
kýrverð" eins og Árni orðaði það, og hafa á
skömmum tíma tekið það allt í gegn og breytt
og bætt.
Frá upphafi hefur fasteignasalan starfað á
Selfossi og annast milligöngu á kaupum og
sölu á íbúðarhúsnæði sem og atvinnuhúsnæði
og öðrum fasteignum víðsvegar á Suðurlandi.
Líflegast hefur verið yfir viðskiptunum á
Selfossi en markaðurinn nær yfir mun stærra
svæði, Eyrarbakka, Stokkseyri, Þorlákshöfn
og Ölfus, Hveragerði, Hellu, Hvolsvöll,
lágsveitir og uppsveitir Árnessýslu og nánast
allt Suðurland.
I dag eru starfandi umboðsmenn í Þorlák-
shöfn og Hellu og svo rekur fyrir-tækið skrif-
stofu í Reykjavík. Á öllum þessum stöðum er
opið daglega en gengið er frá öllum viðskip-
tum á skrifstofunni á Selfossi. Starfsfólk á
Selfossi eru feðgarnir Árni Valdimarsson
fasteignasali og Þröstur Árnason sölumaður,
Sigurður Sveinsson lögfræð-ingur,
Guðmundur Svavarsson rekstrarfræðingur
og Brynhildur Tómasdóttir skrifstofudama.
Ekki séð fyrir endann á uppbyggingu
Eins og áður var komið að hefur verið
töluverður uppgangur á Selfossi og mikil sala
í rað- og parhúsum, þau hús hafa reyndar
selst eins og heitar lummur. „Það hefur verið
afar vinsælt, sérstaklega hjá ungu fólki, að
kaupa sér fokheld hús og klára þau sjálf.
Þannig geta húsbyggjendur skapað sér meira
eigið fé í sinni byggingu með eigin vinnu.
Mikið hefur einnig verið um að fólk komi úr
Reykjavík og kaupi sér tilbúin, ný eða eldri
hús, og flytji á svæðið“ segir Þröstur Árnason.
Uppbyggingin á Fosslandinu á Selfossi
hefur vart farið framhjá neinum og þar hefur
Fasteignasalan Bakki séð um sölu á lóðum
fyrir Fossmenn. í dag eru örfáar lóðir eftir í
Fosslandinu og það verður ekki byggt meira
þar í bráð svo vitað sé. Á Selfossi er ekki
hægt að fá rað- eða parhúsalóð í dag!
Suðurbyggðarhverfið er nánast uppbókað en
Sigfús Kristinsson byggingaverktaki er að
skipuleggja nýtt svæði í landi Laugardæla, afar
skemmtilegt og á fallegum stað, niður með
ánni og að golfvellinum. Líklega verða þar
parhúsalóðir, raðhúsalóðir, fjölbýli og einbýli,
Á Eyrarbakka og Stokkseyri hefur hægt og
bítandi lifnað yfir fasteignaviðskiptum, þar er
töluvert um að fólk af höfuðborgarsvæði
kaupi sér ódýrara og öðruvísi húsnæði til
sumardvalar en einnig hefur eftirspurn eftir
almennu íbúðarhúsnæði aukist og verð
hækkað samhliða því.
Þorlákshöfn er eitt traustasta sveitarfélag
landsins og þar kemur til með að verða mikil
atvinnuuppbygging næstu árin svo að
fasteignaverð á eftir að hækka og því góður
tími til að kaupa þar í dag.
Verð á jörðum hefur hækkað í takt við
eftirspurn og má eiginlega segja að Ölfus og
Flóinn séu með eftirsóttasta jarðnæði á Is-
landi í dag, einkum fyrir hestafólk, en einnig
áhugafólk um náttúru og skógrækt. I
uppsveitunum er meira um sölu á sumar-
bústöðum og sumarbústaðalöndum. Austur í
Rangárvallarsýslu hefur líka verið að lifna yfir
fasteignaviðskiptum. Á Hellu er aukin eftir-
spurn, þar vantar fasteignir og þyrfti að
byggja meira.
Húsið þitt í góðum höndum!
Þröstur Árnason sölumaður spáir því að
það verði áframhaldandi gróska í fasteigna-
viðskiptum á Suðurlandi alveg út árið 2005;
ófyrirséð með árið 2006, það fer eftir vaxta-
stefnunni. Hann telur að nýja lánafyrirkomu-
lagið sé bara kostur og verði mun stöðugra
fyrir kaupendur og seljendur.
„Ég er bjartsýnn á framtíð Suðurlands og
uppbygginguna þar, hjá Bakka munum við
áfram leggja áherslu á einkunnarorð fyrirtæk-
isins, húsið þitt í góðum höndum".
grœnir og...