Fótboltablaðið - 01.01.2003, Blaðsíða 12

Fótboltablaðið - 01.01.2003, Blaðsíða 12
Viðtal við Gústaf Adolf Björnsson, þjálfara meistaraflokks Gústaf Adolf Björnsson er 47 ára íþróttafræðingur. Hann er giftur Guðrúnu Gunnarsdóttur aðstoðar- skólastjóra og eiga þau 3 börn. Gústaf er með stúdentspróf frá Kennara- háskóla íslands, íþróttakennarapróf frá íþróttakennaraskólanum á Laugar- vatni, íþróttafræðipróf frá Norges Idrettshögskole ásamt því að hafa stun- dað mörg þjálfaranámskeið á vegum KSÍ, HSÍ, UEFA og FIFA. Gústaf starfaði í 10 ár sem íþrótta- kennari á árunum 1980-1990 eftir það starfaði hann á skrifstofu Knattspyrnu- ösambands íslands og á skrifstofu knattspyrnudeildar Fram. Gústaf hefur þjálfaðTindastól, ÍR, KS, 2.flokk karla hjá Fram, Keflavík, Hött og nú Selfoss. Gústaf hefur líka starfað við mörg verkefni á vegum KSÍ. Hann hefur þjálfað U-16 ára lið karla, verið aðstoðarþjálfari hjá A-landsliði karla og U-21 árs liði karla. Gústaf býr einnig yfir mikilli reynslu í handknattleiks- þjálfun. Hann hefur þjálfað meist- araflokk kvenna hjá Fram, Víkingi og Haukum. Gústaf þjálfaði líka karlalið Framara og A-landslið kvenna. Á þess- ari upptalningu má sjá að Gústaf býr yfir mikilli reynslu sem þjálfari. Blaðamaður Knattspyrnublaðsins tók viðtal við Gústaf heyrum hvað pilturinn hefur að segja. Átt þú þér feril sem leikmaður (með hvaða liðum)? Alla yngri flokka í FRAM og upp í meistara- flokk. Spilandi þjálfari hjá Tindastóli, IR og KS. Eru einhver tímabil eftirminnilegri en önnur? Öll tímabil hafa ákveðnar minningar og sjar- ma. Toppurinn að verða bikarmeistari með FRAM 1980 á Laugardalsvelli eftir 2-1 sigur á móti IBV. Var mjög heppinn með þjálfara allan minn feril sem og samherja. Má þar nefna þjálfara eins og Jóhannes Atlason, Guðmund Jónsson og Asgeir Elíasson. Leikmenn eins og Pétur Ormslev, Trausta Haraldsson, Martein Geirsson og fleiri og fleiri. Manstu eftir eftirminnilegum atvikum á þínum ferli? Skoraði mark í 8-liða úrslitum bikarsins 1980 á móti Vikingi sem gerði það að verkum að við fórum í undanúrslit og svo áfram í úrslita- leikinn Nú varst þú kosinn besti þjálfari Essó deildar kvenna 2002-2003 í handbolta, hvað þarf maður til brunns að bera til að ná langt sem þjálfari? Það vill þannig til að 3 sinnum hef ég hlotið þessa nafnbót. Lít á þetta sem mikla og góða viðurkenningu á það starf sem maður er að vinna í samvinnu við leikmenn, stjórn og stuðningsmenn. Númer I, 2 og 3 er að vera samkvæmur sjálfum sér og reyna að tileinka sér alla þá þætti sem snúa að þjálfun. Hver er helsti munurinn á knattspyrnu- þjálfun og handknattleiksþjálfun? í sjálfu sér er hann ekki stór. Ég get nefnt marga þjálfara sem hafa bakgrunn í þjálfun og verið leikmenn í báðum þessum greinum t.d. Loga Ólafsson, Willum Þór Þórsson, Ólaf Jóhannesson og fleiri og fleiri. Leikfræðin er að mörgu leyti lík þ.e. sókn/vörn, skora mörk og koma í veg fyrir að mörk séu skoruð. Sama má segja um líkamlegu þættina, þol, kraft, hraða, liðleika og samhæfingu. Hvort tveggja hópíþrótt sem kallar á liðssamvinnu. Þannig mætti áfram halda. Nú hefur þú þjálfað kvennalið í hand- knattleik, karlalið í knattspyrnu og unglinga. Myndir þú segja að fjölbreytt- ur þjálfaraferill skilaði sér í betri ár- angri? Hann er að mörgu leyti nauðsynlegur. Þjálfun er ekkert annað en uppsöfnuð reynsla. Maður öðlast reynslu sem maður vinnur svo úr í rólegheitunum. Hvaða þjálfaramenntun hefur þú Gústaf? UEFA-B þjálfari sem og E-stig KSÍ. Þú hefur þjálfað lið í úrvalsdeild, 3. deild og nú í 2. deild. Er mikill munur á umgjörðinni í kringum liðin? Eðlilega. Þegar ofar kemur er miklu meiri umfjöllun. í fyrsta lagi er æft meira, í öðru lagi betri leikmenn, í þriðja lagi yfirleitt betri að- staða, í fjórða lagi fleiri í kringum liðið utan vallar sem innan o.s.frv. Áttu þér einhvern uppáhaldsleikmann? þá er ég að tala um sem þú hefur þjálf- að. Já, þeir eru margir. Geri ekki upp á milli þeirra hér og nú. Vonandi bætast fleiri í hópinn. Hvert er þitt uppáhaldsfélag hér á landi? Það er móðurfélagið FRAM. Þú hefur stundað knattspyrnuþjálfun síðan 1979. Hefur landslagið í boltanum breyst mikið síðan þá? (hvernig) Já, heilmikið. Það er farið að æfa meira yfir lengri tíma. Sérhæfingin hefst fyrr, stundum of snemma að mínu áliti. Gervigrasvellirnir og knattspyrnuhúsin hafa breytt miklu. Því miður finnst hvorugt á Selfossi og menn hissa á því að liðinu gengur ekki sem skyldi að færast ofar á landsvísu. Hvernig líst þér á umgjörðina í kringum fótboltann á Selfossi? Eigum við ekki að segja að fæst orð bera minnstu ábyrgð. Auðvitað finnast leikmenn, stjórnarmenn, stuðningsmenn og almennir íbúar sem vilja gera betur og hafa metnað til þess en í dag er þessi hópurinn sem slíkur of fámennur. Hverjar telur þú framtíðarhorfurnar í knattspyrnunni vera hér á Selfossi? Vonandi liggur leiðin uppávið. Þegar ákveðnum stöðugleika í öllu starfinu verður náð koma framfarir. Hvernig finnst þér aðstaða til knattspyrnuiðkunar vera hér? Því miður er langt í land þegar umræðan á þessum málaflokki ber á góma. Mér fróðari heimamenn segja að lítið sem ekkert hafi gerst undanfarna tvo áratugi. Það segir alla söguna. Hvernig finnst þér undirbúningstíma- bilið hafa gengið? Það hefur liðið hratt í gegn. Sumt gott annað ekki eins gott. Eins og gengur. Hefur þú einhverja skoðun á því hvernig best sé að byggja upp öflugt lið sem gæti skipað sér í fremstu röð hér á Islandi? (hvernig) I gegnum æfinga- og leikjamagnið. Leggja mikið á sig á öllum sviðum. Hvernig leggst íslandsmótið í þig? Vel. í hvaða sæti endar Selfoss liðið? Ekki tímabært að velta því fyrir sér. Spyrjum að leikslokum. Við þökkum Gústafi fyrir spjallið og óskum honum og lærisveinum hans

x

Fótboltablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fótboltablaðið
https://timarit.is/publication/877

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.