Fótboltablaðið - 01.01.2003, Blaðsíða 8
Það var miðvikudaginn 21. maí 2004 sem
hópurinn lagði af stað áleiðis til Danmerkur í
æfinga og keppnisferð. Hópurinn samanstóð
af 21 leikmanni, þjálfara og tveimur.:
fararstjórum. Lent var í Kaupmannahöfn um
kvöldið og farið með rútu til Ringsted, sem er
bær ca. 55 km frá Kaupmannahöfn. Um
klukkan 22 var þangað komið og komu menn
sér f/rir í herbergjunum, 4 í hverju og að því
loknu beið kvöldverður, danskar kjötbollur
með tilheyrandi. Hófst svo alvaran strax
daginn eftir þar sem menn vöknuðu kl. 7:30,
borðuðu morgunverð og skokkuðu síðan um
8:30 á æfingasvæðið. Tók þar við kröftug
æfing þar sem menn náðu úr sér ferðaþreytu
við toppaðstæður, iðagrænt gras og sólskin.
Var þar strax Ijóst að menn voru tilbúnir að
taka vel á í þessari ferð. Eftir hádegismat gafst
mönnum tækifæri á að skoða sig um í miðbæ
Ringsted og kanna svæðið. Seinnipartinn var
síðan leikur þar sem eldra liðið atti kappi við
Ringsted og skemmst frá því að segja að sá
leikur vannst 2-1, með mörkum frá Kjartani
Helga og Ingþóri. Var þetta erfiður leikur,
sérstaklega byrjunin en liðið vann sig vel inni
leikinn, spilaði taktískt mjög vel og vann
góðan sigur. Föstudagurinn var nánast
endurtekning á fimmtudeginum, morgunæfing
og leikur seinnipartinn við Söro. Yngra liðið
hóf þann leik en reynsluboltarnir komu inn,
einn og einn í seinni hálfleik. Leikurnn fór 3-
2 fyrir Selfoss í góðum leik, Mörkin skoruðu
Arilíus, Guðmundur Marteinn og Ingi.
Aðstæður í Ringsted voru allar til fyrirmyn-
dar, maturinn góður og heimilislegt andrúm-
sloft. Æfingasvæðið var gott og gaman var að
labba í miðbænum, versla og skoða sig um. A
laugardeginum var síðan sest uppí rútu og
keyrt til Köge sem er ca. 40 km fyrir utan
Kaupmannahöfn. Eftir að menn höfðu komið
sér fyrir og borðað hádegismat, sem reyndar
var svo glæsilegur að menn héldu að þeir
væru komnir í brúðkaupsveislu, var æfing
með tilheyrandi skokki, Gústaf þjálfari hélt
því fram að á æfingasvæðið væru 4 km, en
þótti mörgum kílómetrinn undarlega langur í
Danmörku! Eftir að menn höfðu sturtað sig
var farið með lest til Kaupmannahafnar, þar
sem deginum var eytt á Strikinu og í Tívolí. Á
Strikinu rakst hópurinn á hið sunnlenska
Bjórband þar sem þeir spiluðu fyrir gesti og
gangandi, urðu þar fagnaðarfundir og
Bjórbandið tók 3 aukalög fyrir hópinn.
Gaman var að upplifa þá stemningu sem skap-
aðist hjá fólkinu og hve bandið náði góðu
sambandi við áheyrendur. Var svo farið í
Tivoliið þar sem flest tækin voru prófuð á
íslenskum ofurhraða. Það var þreyttur
hópur, en ánægður sem hélt síðan til Köge
um kvöldið. Sumir ánægðari en aðrir,
sérstaklega þeir sem héldu með Liverpool,
eftir 0-1 sigur þeirra á Man. Utd. fyrr um
daginn. Daginn eftir var síðan morgunæfing
og á seinni æfing-unni var skipt í tvö lið þar
Það vorur sko allir með í upphitununni og það fór bara vel á mannskapnum að henni
lokinni
sem ekki hafðist að fá danskt lið til að spila
við og spilaður leikur í ca. 60 mín. Þar fengu
fararstjórarnir það hlutverk að stjórna
liðunum en Gústaf þjálfari dæmdi. Liðið hans
Sigdórs vann 2-1, sem var virkilega ósanng-
jarnt og dómgæslan var vafasöm. Eftir leikinn
fóru 3 leikmenn heim til íslands þar sem þeir
þurftu að stunda nám við Háskólann daginn
eftir. Það sem eftir var af hópnum fór síðan
út að borða um köldið og átti ánægjulega
stund saman. Daginn eftir var farið heim til
íslands og kom hópurinn á Selfoss
mánudaginn 26. maí. Var ekki laust við að
mikil þreyta væri í mannskapnum enda var vel
tekið á allan tímann.
Ferðin var vel heppnuð á alla staði, góðir
gististaðir, gott veður, góðar æfingar, góð
æfingaaðstaða, góðir leikir, góður andi í hóp-
num og maturinn var alveg frábær, svo góður
að ekki nokkur maður kvartaði sem er eins-
Þessi ferð á eftir að skila miklu og í mínum
huga er alveg Ijóst að þetta lið getur gert
góða hluti í sumar, ef menn leggja sig fram og
standa saman. Hópurinn er lítill en stákarnir
úr 2. flokki sem voru með í ferðinni stóðu sig
allir með sóma og eru tilbúnir að koma inn
þegar þarf.
Þegar þetta er skrifað er fyrsti leikur í
íslandsmótinum búinn og vannst hann 5-3 á
móti Leiftri/Dalvík, liði sem spáð er upp. Þar
sýndi liðið hvað það getur þó að vantað hafi
sterka leikmenn. Skora ég á fólk að mæta á
völlinn, ég endurtek, mæta á völlinn og styðja
srákana í sumar.
Ég vil að lokum þakka öllum hópnum fyrir
frábæra ferð og þeim Gústaf þjálfara og
Sigdór fararstjóra vil ég þakka
fyrir ferðina og fræðandi upplýsingar
I. deildina ensku.
DanmeáuM
21/5 04 til 26/5 04