Fótboltablaðið - 01.01.2003, Blaðsíða 15

Fótboltablaðið - 01.01.2003, Blaðsíða 15
Styrkur Heilsurækt: Með línurnar í lagi Gísli í Styrk tók á móti okkur blaðamönnum glaður í bragði enda vor í lofti og bjartari tíð framundan. Gísli hefur nýlega tekið við rekstrinum og ætlar hann sér að hlúa vel að stöðinni í framtíðinni enda heilsurækt góð fyrir líkama og sál. „Eg er búinn að hafa áhuga á þessu sporti lengi og hef dreymt um að koma að rekstri sem þessum.“ Sagði Gísli íbygginn á svip. „Ég er sjálfur búinn að lyfta hrikalega lengi.“ Bætti Gísli við og hnykklaði vöðvanafyrir blaðamenn. Gísli er mjög gott dæmi um hversu góðum árangri hægt er að ná með ákveðni og skipu- lögðum æfingum. Gísli hefur verið traustur samstarfsaðili Strákarnir í meistaraflokki karla nýttu sér í vetur það sem Gísli hafði uppá að bjóða. Góðan tækjasal og fjölbreytta tíma sem boðið er uppá eins og BodyPump og Spinning. BodyPump veitir styrk og vöðvaþol og Spinning er gott til að bæta úthald eða brenna fitu. Strákarnir töluðu um að tímar sem þessir séu nauðsynlegir ætli maður að ná árangri í sinni íþrótt enda æfa flest íþróttafélög á svæðinu í Styrk. Oflugt gym á Selfossi A undanförnum árum hefur staðurinn stækkað og mikið endurnýjað af tækjum. Flest æfingatækin eru frá TechnoGym sem er Rolls Royce í heilsuræktartækjum. Mikið úrval hlaupabretta, hjóla og þrepastiga eru í salnum en slík tæki eru tilvalin fyrir upphitun og brennslu ásamt því að vera einföld í notkun. Klifurveggurinn hefur líka verið vin- sæll en hann er hugsaður sem æfing fýrir fjall- göngugarpa, unga sem aldna. Boðið er uppá fjölda hóptíma eins og morgunbrennslu, þrek, Spinning Fitness, Body Step, Body Balance auk Body Pump og Spinning. Ahugasömum er bent á að kynna sér æfingatöflu á vefsíðunni www.toppsport.is. „Þróunin er að fólk fer meira í tækjasal en hóptíma, ekki síður til að megrast því með auknum vöðvamassa eykst brennsla líkmans því vöðvamassinn eykur brennsluhraða líkamans" segir Gísli og leggur áherslu á að brennsla og lyftingar vinni vel saman við að koma líkamanum í gott form. Gísli ráðgerir að bæta aðstöðuna enn frekar á næstunni og verður spennandi að fylgjast með stöðinni á næstu mánuðum. Fjölbreytt þjónusta Boðið er uppá leiðsögn í tækjasal og barnapössun þegar viðskiptavinir koma og kaupa kort. Einnig eru einkaþjálfarar og sjúkranuddarar á staðnum. I anddyri stöðv- arinnar er hægt að kaupa hollar matvörur eins og skyr, jógúrt, ávexti og orkudrykki fyrir æfingar. í Styrk er líka hægt að fá fæðubótarefni frá EAS og Muscle Tech. „Sjálfur nota ég töluvert af þessu, en fæðubótarefnin gefa vöðvunum þá næringu sem þeir þurfa eftir erfiðar æfingar". Segir Gísli og leggur áherslu á rétt mataræði sam- hliða hreyfingu. Glæsilegur Ijósabekkur er á staðnum fyrir sólarunnendur. Sem sagt allt til alls og nú er bara að skella sér I ræktina. Landhönnun sif s 4823300 ■ landslagshönnun -skipulag - kortavinnsla - áætlanir - ráðgiöf Góð æfinga- aðstaða í Reykjanesbæ Sveitarfélagið Árborg hefur gert leik- mönnum meistaraflokks og 2. flokks karla kleyft með góðum stuðningi að æfa við úrvals aðstæður í Reykjaneshöll. Liðið hefur sótt æfingar í þessa glæsilegu höll einu sinni í viku yfir versta vetrar- tímann. Sveitarfélagið fær að sjálfsögðu okkar bestu þakkir fyrir þetta ágæta framtak. Yfir vetrartímann eru æfingar á grasi og óupphituðum malarvöllum oft erfiðar og jafnvel útilokaðar og þá er gott að geta farið inn og verið í skjóli fyrir veðri og vindum. Fjölnota íþróttahús leysir þennan vanda fyrir knattspyrnumenn. Á íslandi er landslagið í knattspyrnunni að breytast hvað þetta varðar. í dag skýla fjölnota íþróttahús knattspyrnumönnum þjóðarinnar yfir erfiðasta tímabilið og skapa þar með tækifæri fyrir þá að auka færni sína í íþróttinni. Með þessu móti gætum við litla Island staðið jafnfætist stórum þjóðum í framtíðinni. Það sama á við um knattspyrnumenn á Árborg- arsvæðinu. Við viljum geta setið við sama borð og Reykvíkingar, Kópavogs- búar, Reykjanesbúar og Akureyringar. Æfingaaðstaðan í Reykjaneshöll hefur nýst Selfossliðinu vel í janúar og febrúar og eru þessar æfingar gríðarlega mikil- vægur undirbúningur fyrir Deilda- bikarinn sem byrjar í mars. Deilda- bikarinn er svo aftur mjög góður undirbúningur fýrir sjálft íslandsmótið. En betur má ef duga skal. íþróttahús Reykjaneshallar er 7.840 m2 að stærð en þjónustuhúsið er 252 m2. Hægt er að skipta íþróttahúsinu upp með tjaldi þannig að fram geta farið fleiri en ein æfing í einu. Rýmið er hitað upp með lofthita og er loftræsting góð í hús- inu. Hús sem þetta býður upp á marga möguleika. Þarna hefur farið fram fjöldinn allur af leikjum I Deildabikar KSÍ ásamt öðrum viðburðum eins og tón- leikahaldi. Reykjaneshöllin er fyrsta fjöl- nota íþróttahúsið sem reist er á Islandi og er þetta glæsilega mannvirki bænum til sóma. Knattspyrnuvöllur hallarinnar er lOOm x 64m grasvöllur. Von okkar Árborgarbúa er að sjálf- sögðu sú að einhver tímann muni rísa hér álíka bygging þar sem sveitafélagið Árborg og Sveitarfélögin í kring eru í miklum vexti. Slíkt hús myndi efla og auka vöxt íþrótta í sveitarfélaginu. Valur Arnarson

x

Fótboltablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fótboltablaðið
https://timarit.is/publication/877

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.