Fótboltablaðið - 01.01.2003, Síða 9

Fótboltablaðið - 01.01.2003, Síða 9
Mjólkin er góð hjá MBF Sagan: Mjólkurbú Flóamanna tók til starfa 5. desember 1929 og er stofnun þess talin marka upphaf kaupstaðarmyndunar á Selfossi. Um sama leyti fluttist verslun héraðsins frá Eyrarbakka að Ölfusárbrú. Upphafið að stofn-un Mjólkurbús Flóamanna má rekja til þeirra breytinga sem urðu í íslensku samféla- gi með þéttbýlismyndun og kröfu bændasam- félagsins um að þróast frá sjálfsþurftarbúskap yfir í markaðsbúskap. Flóaáveitan, sem jók til muna heyfeng bænda, var fyrsta skrefið og strax við gerð hennar, á þriðja áratug síðustu aldar, hreyfðu menn hugmyndinni um stofnun mjólkurbús. Mjólkurbúið er samvinnufyrir- tæki í eigu bænda. Það var stofnað af bændum í Flóanum, og hefur frá upphafi verið brautryðjandi í mjólkuriðnaði á Islandi. Það er stærsta mjólkurbú landsins og nær starf- ssvæði þess frá Hellisheiði í vestri að Hellisheiði eystri, eftir að MBF keypti mjólkursamlag KHB á Egilsstöðum árið 2002. Vöruframleiðslan: Mjólkurbú Flóamanna er afurðastöð í mjólkuriðnaði í eigu sunnlenskra og aust- firskra bænda. Fyrirtækið tekur við mjólk frá bændum og vinnur úr henni þá söluvöru sem neytendur óska eftir hverju sinni. MBF rekur mjólkurbú á Selfossi og Mjólkurstöðina á Egilsstöðum. Mjólkurbúið er í mjög nánu samstarfi við sölu- og markaðsfyrirtækin tvö í Reykjavík, þ.e. Mjólkursamsöluna og Osta- og smjörsöluna, sem sjá um að markaðssetja, selja og dreifa framleiðsluvörum mjólkur- búsins um stóran hluta landsins. Starfsmenn MBF sjá um sölu og dreifingu mjólkurvara um Suður- og Austurland, að Hellisheiði eystri. Framleiðsla mjólkurbúsins er margþætt. MBF sér Mjólkursamsölunni fyrir hluta af þeirri neyslumjólk (nýmjólk og undanrennu) sem Mjólkursamsalan pakkar og selur. Þá er stærri hluti allra sýrðra vara, (skyr, jógúrt o.þ.h.) sem MS selur, framleiddur hjá MBF. Vöruþróun hefur alltaf verið mikilvægur þátt- ur í starfsemi mjólkurbúsins og dæmi um nýjar vörur sem fengið hafa góðar viðtökur eru skyr.is og drykkjarjógúrt í dósum. Osta- og smjörsala selur viðbit, mygluosta og duft fyrir Mjólkurbú Flóamanna. Mjólkurbúðin, sérverslun með eitt mesta mjólkurvöruúrval landsins: I Mjólkurbúðinni á Selfossi fást nánast allar mjólkurvörur sem framleiddar eru á landinu. þar fæst einnig fjölbreytt úrval af nýlendu- vörum, brauði, kökum, gjafavöru og ýmsum vörum til veisluhalds. Stolt Mjólkurbúðarinnar er veisluþjón- ustan. Þið hringið eða komið, við ráðleggjum viðval veislufanga og útbúum síðan glæsilega rétti fýrir jafnt stórar sem smáar veislur. Einnig er hægt að kaupa allt efni til veisluhalds og þið útbúið veisluna sjálf. Tveggja daga afgreiðslufrestur er á stórum og sérútbúnum pöntunum. Eftirtaldir styrkja Knattspyrnudeild UMF Selfoss Veiðisport Barón Men's were Suðurlandsskógar Tannlæknastofa Þorsteins Pálssonar Karl R. Guðmundsson ehf. Ozone hárstúdíó ehf. Filmverk ehf. Húsey ehf. Stóru Sandvík Grímur Sigurðsson Sigurður Reynir Óttarsson Slippfélagið Litaland ^SELfOSSVEITDD Viðhaldsfríar ÞAKRENNUR Þegar hús eru klædd með „ vlðhaldsfrírri" ktæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfrlar"þakrennur. Rennurnar frá Grövlk Verk I Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga né brotna. Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn I notkun. Litir til á lager: Svartar, hvltar og ólitaðar, einnig fáanlegar rauðbrúnar.

x

Fótboltablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fótboltablaðið
https://timarit.is/publication/877

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.